Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Litlar íslenskar stelpur sem kvíða komu stoðsveitarinnar meðan jafnaldrar bíða eftir jólasveinum

Litlar íslenskar stelpur sem kvíða komu stoðsveitarinnar meðan jafnaldrar bíða eftir jólasveinum

Íslensk stjórn­völd stefna á að reka úr landi þær, Kúmbu, sex ára, og Marie, sem er þriggja ára ásamt for­eldrum sínum. Vilji er til að afgreiða brott­vís­un­ina fyrir jól. Stúlk­urnar tvær hafa ávallt búið á Íslandi landi og því varla hægt að kalla þær annað en íslenskar. Foreldra þeirra Mahe og Bassirou á að gera burtræk frá Íslandi eftir sjö ára dvöl.

Sema Erla Serdar lýsir dag­legu lífi þeirra nú í aðdrag­anda jóla. Meðan jafn­aldrar stelpn­anna bíða eftir jóla­sveinum þá ótt­ast þær komu stoðsveitar lög­regl­unnar. „Tick tock, tick tock, tick tock. Hljóðið í klukk­unni verður hærra og meira sker­andi með hverri and­vökunótt­inni. Síminn hringir. For­eldr­arnir hrökkva í kút, börnin spenn­ast upp. Allir gleyma að anda í smá stund. Ætli þetta sé sím­talið? Nei, þetta var bara vina­fólk þeirra að hringja og spyrja hvernig þau hafa það. Þetta var ekki lög­fræð­ing­ur­inn að hringja með verstu mögu­legu frétt­irnar. Það segir eng­inn neitt næstu þrjá klukku­tím­ana,“ lýsir Sema.

Hún segir alla daga ein­kenn­ast af þessu. „Fjöl­skyldan situr saman við mat­ar­borðið. Þau eru nýbúin að borða. Faðirinn er að hjálpa eldri dóttur sinni með heima­námið. Hann getur ekki ein­beitt sér. Kvíðinn og áhyggj­urnar hafa haldið honum vak­andi lengur en hann man. Hann brosir samt. Fyrir stelp­urnar. Fjöl­skyldan les saman fyrir svefn­inn. Hlær saman. For­eldr­arnir reyna að láta eins og það sé allt í lagi. Innra með sér grætur móð­irin. Hún er að sturl­ast úr áhyggjum. Hún finnur bara sárs­auka. Það er bankað á hurð­ina. Ætli það sé loks­ins komið að þessu? Eru þau komin til þess að sækja okkur og senda okkur úr landi, spyr litla stúlkan?,“ lýsir Sema og heldur áfram:

„Nei, þetta var bara vin­kona hennar að spyrja hvort hún vildi koma út að leika. Stelp­urnar fara út og for­eldr­arnir sitja eftir stjörf á gólf­inu. Enn eina ferð­ina. Á morgun end­ur­tekur þetta sig allt aftur, …og svo aftur. Í hvert ein­asta skipti sem sím­inn hringir, sem ein­hver bankar, þá halda þau að þetta sé búið.“

Sema segir þetta mann­skemm­andi. „Raun­veru­leiki fólks á flótta er átak­an­legri og sorg­legri en hægt er að reyna að lýsa. Hann ein­kenn­ist af lífs­reynslu og upp­lifun sem engum er ósk­andi. Hann ein­kenn­ist af röð áfalla, ótta og hræðslu, sorg, óvissu, átökum, sárs­auka og grimmd. Við það bæt­ist svo kvíð­inn, ótt­inn og streitan sem felst í því að búa við yfir­vof­andi brott­vísun vikum, mán­uðum og jafn­vel árum saman. Sá raun­veru­leiki, sem lýst er hér að ofan, er mann­skemm­andi,“ segir Sema.

Hún segir íslensk stjórn­völd ætla að svipta þessar litlu stelpur fram­tíð­ar­draumum þeirra. „Nú er meira en mán­uður síðan greint var frá því að brott­vísa eigi Mahe og Bassirou frá Íslandi eftir sjö ára dvöl þeirra hér á landi og senda þau aftur til þess lands sem þau neydd­ust til að flýja. Með þeim á að reka úr landi dætur þeirra, Kúmbu, sem er sex ára, og Marie, sem er þriggja ára. Stúlk­urnar eru báðar fæddar og upp­aldar á Íslandi og hafa hvergi ann­ars staðar verið. Eftir sjö ára átök við íslensk stjórn­völd og sjö ára bar­áttu fyrir til­vistar­rétti sínum hafa íslensk stjórn­völd ákveðið að svipta stúlk­urnar öryggi og frelsi sínu og taka frá þeim alla fram­tíð­ar­drauma,“ segir Sema.

Þau verða nú að bíða í þessum aðstæðum. „Beiðni fjöl­skyld­unnar um end­ur­upp­töku á máli þeirra hefur ekki enn verið tekin til afgreiðslu af kæru­nefnd útlend­inga­mála þrátt fyrir að hún hafi legið þar inni vikum saman. Ekki fást skýr­ingar á því hvers vegna. Það eru for­kast­an­leg vinnu­brögð sem ekki er hægt að skilja. Samkvæmt síð­ustu upp­lýs­ingum sem lágu fyrir hafði rík­is­stjórn Íslands ekki rætt mál fjöl­skyld­unnar eða beitt sér í því með nokkrum hætti – þrátt fyrir að dóms­mála­ráð­herra hafi verið afhentar 20.656 und­ir­skriftir gegn brott­vísun þeirra fyrir meira en tveimur vikum síðan. Svo mik­ill er áhugi rík­is­stjórn­ar­innar á mál­efnum barna sem kerfið sem þau bera ábyrgð á hafa brotið á árum saman,“ segir Sema.

Hún segir reisn okkar hinna enga meðan þetta heldur áfram. „Með hverjum deg­inum sem ekk­ert ger­ist þyng­ist róð­ur­inn hjá fjöl­skyld­unni. Með hverri vik­unni sem það kemur ekki nið­ur­staða í mál þeirra rista afleið­ing­arnar af ofbeld­inu dýpra hjá stúlk­unum og hættan á því að þær verði óaft­ur­kræfar verður meiri og meiri. Svo lengi sem íslensk stjórn­völd halda áfram að beita fjöl­skyld­una ofbeldi og neita þeim um skjól og vernd hér á landi verður reisn okkar sem sam­fé­lag engin,“ segir Sema.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ