Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Reykjanesbæ, kom samstarfsfólki sínu hressilega á óvart á fjarfundi bæjarstjórnar. Nokkuð rólegt virtist yfir fundarmönnum þar til að Margrét gerði þau mistök á haka ekki burt hljóðnemann áður en hún hrópaði á börnin sín.

Skemmtilegt myndband af atvikunu fer nú um netheima. Þar má sjá að Margrét var greinilega nýbúin að leggja eitthvað til málanna á fundinum þar sem fundarstjóri þakkar henni fyrir. Í kjölfarið er orðið gefið laust og Margrét lét ekki segja sér það tvisvar. Á sama augnabliki hverfur hún úr mynd og hefur greinilega ætlað sér að loka fyrir bæði hljóð og mynd. Það tókst augljóslega ekki því næst heyrist hún hrópa yfir fundinn:
„Krakkar, ég þarf hleðslutækið mitt NÚNA!“































Athugasemdir