Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Kvenskörungar á norðurslóðum

Kvenskörungar á norðurslóðum

Mikið hefur mætt á rík­is­stjórnum flestra landa í heims­far­aldr­inum und­an­farna mán­uði og hefur athyglin beinst að for­kólfum þeirra sem aldrei fyrr. Dregið hefur verið fram að lönd þar sem konur eru í æðstu emb­ættum hafa mörg hver staðið sig betur í bar­átt­unni við veiruna en lönd þar sem karlar eru í for­svari. Á norð­ur­slóðum eru konur í meiri­hluta í emb­ættum for­sæt­is­ráð­herra og því ein­boðið að kíkja aðeins nánar á hvaða konur það eru sem hafa borið hit­ann og þung­ann af bar­átt­unni í lönd­unum sem næst okkur eru.

Nicola Sturgeon

Fyrsti ráð­herra Skotlands, Nicola Sturgeon, hefur algjör­lega stolið sen­unni á Bret­landseyjum í her­ferð­inni gegn COVID-19 og er einn af fáum þjóð­ar­leið­togum sem hefur aukið vin­sældir sínar í far­aldr­inum. Hún hefur mætt í beina útsend­ingu á BBC á hverjum ein­asta virkum degi síðan um miðjan mars, stappað stál­inu í þjóð­ina og sýnt mannúð og mildi sem hefur skilað henni virð­ingu og vænt­um­þykju þjóð­ar­innar, þrátt fyrir að sótt­varna­að­gerðir í Skotlandi hafi að mörgu leyti verið strang­ari en hjá hinum þjóð­unum sem mynda Bretland.

Nicola er for­maður Skoska þjóð­ar­flokks­ins, SNP, og hefur verið fyrsti ráð­herra Skotlands síðan 2014. Hún fagn­aði fimm­tugs­af­mæli sínu í júlí, er lög­fræð­ingur að mennt, gift Peter Murrell en barn­laus. Undir hennar stjórn hefur SNP sópað til sín fylgi og er nú langstærsti flokkur Skotlands. Meg­in­mark­mið flokks­ins er að Skotland segi skilið við Bretland og verði sjálf­stætt ríki í fyrsta sinn í þrjú hund­ruð ár. Þrátt fyrir nauman sigur þeirra sem kusu gegn aðskiln­aði frá Bret­landi í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni 2014 benda kann­anir nú ein­dregið til þess að SNP fái hreinan meiri­hluta á skoska þing­inu í kosn­ingum á næsta ári og þá er sjálf­stæðið næst á dag­skrá.

Sanna Marin

Hin þrjá­tíu og fjög­urra ára gamla Sanna Marin hefur verið for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands síðan í des­em­ber 2019. Hún er yngsti for­sæt­is­ráð­herra sem Finnland hefur haft og yngsta kona sem er starf­andi for­sæt­is­ráð­herra í heim­inum í dag. Hún þykir skör­ug­legur þjóð­ar­leið­togi og var rík­is­stjórn hennar ein sú fyrsta í heimi til að lýsa yfir neyð­ar­á­standi vegna heims­far­ald­urs­ins og útbreiðsla veirunnar í Finn­landi er ein sú minnsta í Evrópu.

Sanna hóf afskipti af póli­tík strax um tví­tugt og tók sæti á þingi fyrir Sós­í­alde­mókrata árið 2015 eftir að hafa verið í borg­ar­stjórn Tampere síðan 2013. Hún var kosin for­maður Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins í ágúst 2020. Í sama mán­uði gift­ist hún æsku­ást sinni, Markus Räikkönen, eftir margra ára sam­búð og saman eiga þau dótt­ur­ina Emmu.

Mette Frederiksen

Mette Frederik­sen hefur verið for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur síðan í júní 2019 og for­maður Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins síðan 2015. Hún er fjöru­tíu og tveggja ára gömul og yngsti for­sæt­is­ráð­herra í sögu Dan­merkur. Hún hefur setið á danska þing­inu síðan 2001 og hefur verið á kafi í póli­tík nán­ast allt sitt líf. Tölu­verður styrr hefur staðið um hana sem stjórn­mála­mann, einkum eru margir and­vígir stefnu hennar í inn­flytj­enda­málum, sem mörgum þykir ekki beint í anda sós­í­alde­mókrata. Hún hefur þó vaxið í áliti á tímum far­ald­urs­ins og þykir hafa tekið vel á sótt­vörnum.

Mette gift­ist kvik­mynda­leik­stjór­anum Bo Tengberg í júlí í sumar, en hún á tvö börn frá fyrra hjóna­bandi.

Erna Solberg

Erna Solberg hefur verið for­sæt­is­ráð­herra Noregs síðan 2013 og for­maður Íhalds­flokks­ins síðan 2004. Hún þykir hörð í horn að taka og sumir kalla hana JárnErnu með vísun í Margaret Thatcher. Hún hefur setið á norska þing­inu síðan 1989, er önnur konan sem hefur gegnt for­sæt­is­ráð­herra­stöðu í Noregi og jafn­framt sá for­sæt­is­ráð­herra Íhalds­flokks­ins sem lengst hefur setið í emb­ætti. Hún þykir hafa staðið sig fádæma vel þar, einkum á alþjóða­vett­vangi og hlaut meðal ann­ars Global Citizen World Leader-verð­launin árið 2018 fyrir fram­lag sitt til alþjóða­sam­skipta.

Erna er fimm­tíu og níu ára gömul, gift Sindre Finnes og tveggja barna móðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina