Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Líf mitt er svolítið eins og töfrandi ævintýri“

„Líf mitt er svolítið eins og töfrandi ævintýri“
Hjördís Dögg Grímars­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Hjördís Dögg Grímars­dóttir er þekkt fyrir góðar og flottar köku- og mat­ar­upp­skriftir og hefur í rúman ára­tug rekið síð­una mömmur.is sem er með mörg þús­und fylgj­endur á Facebook og Instagram.

Þessi ljúfa og jákvæða Skaga­kona er í for­síðu­við­tali jóla­blaðs Vikunnar sem komið er á næsta sölu­stað og fæst einnig í áskrift. Ekki nóg með það, heldur sá Hjördís um að elda jólamat­inn fyrir okkur og deilir upp­skrift­unum með les­endum Vikunnar.

Hjördís Dögg Grímars­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Með jákvæðni og þakklæti að leiðarljósi

„Mér finnst líf mitt vera svo­lítið eins og töfr­andi ævin­týri með öllum sínum tæki­færum. Auðvitað hef ég fengið áskor­anir eins og aðrir en mót­lætið eflir mann bara. Mér finnst ég bara svo oft vera á réttum stað á réttum tíma og hitta rétta fólkið á réttum tíma,“ segir hún og áréttar: „Ég á ynd­is­lega fjöl­skyldu og þau skref sem ég hef tekið sem snerta börnin mín, hús­næð­is­mál og atvinnu hafa verið mér til mik­illar gæfu. Ég tel mig hafa verið ein­stak­lega lánsama í gegnum lífið og hef þá sýn að með jákvæðni og þakk­læti að leið­ar­ljósi fáir þú það sem þú leggur í lífið. Stundum eru það tæki­færi en einnig áskor­anir sem maður þroskast af. Það hefur svo sann­ar­lega komið á dag­inn.“

Hjördís Dögg er í for­síðu­við­tali í nýjasta tölu­blaði Vikunnar sem kemur í versl­anir á morgun, fimmtu­dag.

Fáðu þér Vikuna í áskrift

Benný Sif Ísleifs­dóttir var orðin fjöru­tíu og sex ára þegar hún gerði alvöru úr því að leggja skriftir fyrir sig. Hún seg­ist sára­lítið hafa skrifað fyrir þann tíma, var heima­vinn­andi hús­móðir með fimm börn og síðan í námi í þjóð­fræði í Háskól­anum. Skrift­irnar liggja þó vel fyrir henni og nú er önnur skáld­saga hennar, Hans­dætur, komin út og fær ríf­andi góða dóma. Benný segir vel­gengn­ina þó geta verið tví­eggjað sverð, góðar við­tökur og hrós séu auð­vitað hvatn­ing til að halda áfram en setji jafn­framt pressu varð­andi næstu bók.

Í Málinu sem er nýr efn­isliður í Vikunni munum við taka fyrir mál­efni sem eru í umræð­unni. Í þess­ari viku tókum við umræð­una frið­helgi barna, sér­stak­lega þegar kemur að birt­ingu mynda af þeim á sam­fé­lags­miðlum og vef­síðum. Mega for­eldrar og for­sjárað­ilar birta óhindrað myndir af börnum sínum? Mega aðrir gera það?

Söngv­ar­arnir Jóhanna Guðrún Jóns­dóttir, Friðrik Ómar Hjör­leifs­son, Erna Hrönn Ólafs­dóttir og Margrét Eir Hönnu­dóttir, og leik­ar­inn Sverrir Þór Sverr­is­son, sitja fyrir svörum um jóla­hefðir og minn­ingar frá liðnum jólum.

Hildur Lofts­dóttir, barna­bóka­höf­undur og kenn­ari í íslensku sem erlendu máli í Tin Can Factory, er undir smá­sjánni. Aðspurð um hver myndi leika hana í bíó­mynd svarar hún: „Vala Kristín á yngri árum og Helga Braga nú á dögum. Mér finnst ég greini­lega bæði sæt og fyndin.“

Viðtöl við þessa ein­stak­linga og marga fleiri má lesa í jóla­blaði Vikunnar þar sem einnig má finna umfjöllun um fræga fólkið, afþr­ey­ingu, menn­ingu, heilsu, tísku, húð­um­hirðu, og fleira, auk þess sem Málið, Deiglan, Líf­reynslu­saga Vikunnar, kross­gátan, orða­leit og stjörnu­spá Vikunnar eru á sínum stað.

Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða í vef­verslun okkar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina