Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sauð upp úr hjá kristnum – Segja sparnaðinn árás á trúnna: „RÚV er eingöngu fyrir starfsmenn“

Sauð upp úr hjá kristnum – Segja sparnaðinn árás á trúnna: „RÚV er eingöngu fyrir starfsmenn“

Óhætt er að segja að það hafi soðið upp úr í gær hjá með­limum Facebook-hóps­ins Orð kvölds­ins og Morg­un­bæn verði áfram á RÚV. Meðlimir urðu æfir yfir þeim fregnum að RÚV hygð­ist hætta beinum útsend­ingum frá sunnu­dags­messum. Þar á meðal voru tveir þing­menn.

Ólafur Egilsson, fyrr­ver­andi sendi­herra, til­kynnti þetta innan hóps­ins. „Lágkúra RÚV gagn­vart sjálfu sér og þeim Íslend­ingum sem aðhyll­ast kristni – lang­flestum lands­mönnum – heldur áfram, því nú á að hætta beinum útsend­ingum frá sunnu­dags­messum sem svo lengi hafa tíðkast. Í þeirra stað mun kirkj­unni gef­inn kostur á að setja saman og taka upp athafnir á fimmtu­dögum sem síðan verði varpað út sunnu­dag­inn á eftir,“ skrifar Ólafur.

Þetta fóru ekki vel í fólk. Gústaf Níelsson, sagn­fræð­ingur sem hefur komið víða við í hægri stjórn­málum, sagði ein­fald­lega: „Rúv á enga sam­leið með þjóð­inni.“ Fleiri voru á sama máli og töldu rétt­ast að loka RÚV. Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, vildi svo vita hver hafi ákveðið þetta. „Hverjum dettur þetta í hug og fram­kvæmir það?,“ spyr Björn. Fleiri stjórn­mála­menn kveða sér hljóðs. „Óvið­un­andi. Danska sjón­varpið er með kirkju­efni á sunnu­dags­morgnum,“ segir Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Mið­flokks­ins, meðan Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, skrifar: „Þeir setja þjóð­kirkj­una til hliðar og hverfa frá góðum siðum sem öllum eru hollir. Þeir fylgja í kjöl­far borg­ar­stjórnar Reykja­víkur.“

Einn maður segir svo: „Rúv er ein­göngu fyrir starfs­menn stofn­un­ar­innar“. Það vill þó svo til að ástæða þessa breyt­inga er einmitt þver­öfug, þetta sé gert til að lækka laun tækni­manna. Í það minnsta ef marka má orð Ólafs hvað þetta varðar.

Ólafur segir þetta gert til að losna við að borga tækni­manni á helgi­daga­taxta. „Mér skilst að þetta snú­ist um að spara mis­mun­inn á hvers­dags- og helgi­daga­taxta tækni­manns! Gott er að hugað sé að sparn­aði, en með ólík­indum að við­leitni í þá átt hjá þess­ari þjón­ustu­stofnun, sem þjóðin greiðir millj­arða, skuli lenda í svona ófarn­aði. Þarna gætir e–s víð­tæk­ari skiln­ings­skorts,“ segir Ólafur.

Margir almennir borg­arar tjá sig enn fremur og eru æfir. Einn maður er þó ekki þar á meðal, Eysteinn Pét­urs­son, yfir­eðl­is­fræð­ingur á Ísótópa­stofu Land­spít­al­ans. Hann skrifar: „Þetta er ótrú­leg umræða. Er það virki­lega svo að guðs­orð úreld­ist frá fimmtu­degi til sunnu­dags­morg­uns? Lengi hefur við­geng­ist að messur séu af og til teknar upp í kirkjum á lands­byggð­inni og útvarpað jafn­vel vikum eða mán­uðum seinna – án þess að ég hafi orðið var við kvart­anir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ