Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Bíð spennt eftir að lífið verði aftur bland í poka

Bíð spennt eftir að lífið verði aftur bland í poka
Jónína Leós­dóttir

Jónína Leós­dóttir rit­höf­undur von­ast til að sjá fleira fólk og aðra staði á nýju ári.

Hvernig leggst 2021 í þig?
„Ég er örlítið tor­tryggin gagn­vart næsta ári. Þetta er svipað og að treysta ís á vatni eftir að hafa fallið ofan í vök. Árið 2020 byrj­aði svo vel – þetta fal­lega ártal, dag­inn var tekið að lengja og ég var með ýmis­legt spenn­andi á prjón­unum – en síðan brotn­aði ísinn og allt fór á bólakaf.

Núna langar mig að trúa því að bólu­efnin reyn­ist vel og að allir fái bólu­setn­ingu sem fyrst … og þá á ég að sjálf­sögðu ekki bara við Íslend­inga heldur á heims­vísu. En ég er dauð­hrædd um að veiru­kvik­indið stökk­breyt­ist eða eitt­hvað annað ger­ist sem klúðrar öllu. Ég stíg því var­lega til jarðar og stilli vonum og vænt­ingum í hóf.“

Ára­móta­heit fyrir 2021?
„Ég man ekki eftir að hafa strengt heit um ára­mót. Það hentar mér betur að taka bara einn dag í einu.“

Hvað hefur 2020 kennt þér?
„Þrátt fyrir allt, finnst mér árið 2020 hafa kennt heims­byggð­inni dýr­mæta lexíu. Það sýndi okkur hvers fólk er megn­ugt ef það stendur saman, þvert á landa­mæri. Þá á ég við bólu­efnið sem vís­inda­mönnum tókst að þróa og byrja að fram­leiða á algjörum met­tíma, af því að ver­öldin stóð frammi fyrir sam­eig­in­legum óvini og allir lögð­ust á eitt.

Svona per­sónu­lega kenndi árið mér kannski ekki margt nýtt en það stað­festi ýmis­legt sem ég þótt­ist vita fyrir – m.a. að lífið er leið­in­legra án þrí­víddar-sam­skipta við fjöl­skyldu og vini og sárs­auka­fyllra án viku­legra tíma hjá sjúkra­þjálf­ara. Já, og svo rifj­að­ist upp fyrir mér hvað það getur verið gaman að leggja kapal.“

Hvernig ætlarðu að nýta þá reynslu á nýju ári?
„Mér finnst mik­il­væg­ast að mann­kynið nýti reynsl­una af bar­átt­unni við far­ald­ur­inn og að þjóðir heims taki næst höndum saman við að leysa önnur brýn vanda­mál sem snerta alla jarð­ar­búa. Því miður er ég þó ekk­ert sér­lega bjart­sýn á að mér verði að þeirri ósk.“

Hvað ætlarðu að gera á nýju ári?
„Ég var að kaupa mér liti, teikni­blokk og stórt strokleður – og ætla að athuga hvort ég kann enn þá að teikna. Svo mun ég halda áfram að skrifa eins lengi og ég hef heilsu til.“

Hvers hlakkar þú mest til?
„Mesta til­hlökk­un­ar­efnið er að lífið verði aftur bland í poka. Þar sem ég fór í sjálf­skip­aða vernd­ar­sótt­kví 5. mars og slak­aði allt of stutt á henni í sumar hefur lífið verið mjög ein­hæft megnið af árinu. Þótt ég eigi ynd­is­lega konu og hlýtt og gott heim­ili verður gaman að sjá fleira fólk og aðra staði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Atvikið varð við lögreglubifreið eftir að dyraverðir höfðu óskað aðstoðar
Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina