Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sólveig segir oddvita Viðreisnar siðlausan – Syrgir ekki hamfara sem gerðust á hennar vakt

Sólveig segir oddvita Viðreisnar siðlausan – Syrgir ekki hamfara sem gerðust á hennar vakt

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir að ára­móta­ávarp Þórdísar Lóu Þór­halls­dóttur, odd­vita Við­reisnar í borg­ar­stjórn, sé sið­laust og lýsi gíf­ur­legu skeyt­ings­leysi hvað varðar lífa borg­ar­búa. Þórdís Lóa fjallar nokkuð um ham­farir á liðnu ári, svo sem á Flateyri og Seyð­is­firði en nefnir ekki einu orði elds­voð­ann á Bræðra­borg­ar­stíg.

Sólveig byrjar á að benda á hvað Þórdís vinnur við. „Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir er odd­viti Við­reisnar í borg­ar­stjórn. Hún er for­maður borg­ar­ráðs og stað­geng­ill borg­ar­stjóra í Reykja­vík. Hún á einnig sæti í Neyð­ar­stjórn Reykja­víkur, sem vara­maður borg­ar­stjóra. Senni­lega á hún sæti í fjöl­mörgum öðrum nefndum og ráðum vegna valda­stöðu sinnar í höf­uð­borg­inni,“ segir Sólveig og vitnar svo í grein Þórdísar sem hefst svo:

„Þetta er ár sem verður lengi í minnum haft. Margir munu jafn­vel minn­ast þess sem annus horri­bilis. Þetta er árið sem hófst á snjó­flóðum á Flateyri og í Súg­anda­firði. Sem betur töp­uð­ust þar ein­ungis ver­ald­legar eignir og mann­björg varð. En umhverfið okkar var stað­ráðið í að minna okkur á að það eru ekki alltaf mann­fólkið sem ræður för. Umhverfið hélt áfram að minna á sig með óveðri og rauðum við­vör­unum, jarð­hrær­ingum við Grinda­vík, heims­far­aldri sem hefur sett líf okkar nokkuð úr skorðum. Nú síð­ast með aur­skriðum á Seyð­is­firði.“

Sólveig seg­ist hafa lesið pistil hennar tvisvar því hún trúði ekki eigin augum. „Ég er búin að lesa árá­móta-grein Þórdísa Lóu tvisvar. Í seinna skiptið vegna þess að ég hélt að mér hlyti að hafa yfir­sést “eitt­hvað”, mér hlyti að hafa yfir­sést kafl­inn, máls­greinin, setn­ingin, þar sem for­maður borg­ar­ráðs, stað­geng­ill borg­ar­stjóra, vara­maður borg­ar­stjóra í Neyð­ar­stjórn Reykja­víkur fjall­aði um elds­voð­ann á Bræðra­borg­ar­stíg, harm­leik­inn þar sem þrjár ungar mann­eskjur, 22 ára, 25 ára og 26 ára, létu lífið við skelfi­legar aðstæður. Elds­voð­ann sem var sá mann­skæð­asti í marga ára­tugi. Elds­voð­ann sem varð í húsi sem algjör opin­ber vit­neskja var um að ekki væri manna­bú­staður en fjöldi fólks bjó samt í. Bjó í vegna þeirrar hús­næð­iskreppu sem fengið hefur að við­gang­ast á kostnað hinna eigna­lausu. En mér yfir­s­ást ekk­ert. Á elds­voð­ann er ein­fald­lega ekki minnst einu orði. Ekki einu orði,“ segir Sólveig.

Hún veltir því næst fyrir sér hvað veldur að þetta hræði­lega atvik sé ekki nefnt á nafn: „Hvað gerir það að verkum að for­maður borg­ar­ráðs minn­ist ekki einu orði á þann mikla harm­leik sem átti sér stað 25. júní síð­ast­lið­inn? Hvað gerir það að verkum að atburður sem leiddi til hræði­legs dauð­daga þessa unga fólks er ekki partur af annus horri­bilis skrá­setn­ingu Þórdísar Lóu? Er hún svo hug­laus að hún þorir ekki að draga athygli að atburð­inum vegna þess að athyglin leiðir óum­flýj­an­lega til þess að við hug­leiðum stétt­skipt­ing­una sem grass­erar í borg­inni, breiðir úr sér líkt og eldur breiðir úr sér í gömlu og ónýtu húsi þar sem engum eld­vörnum hefur verið sinnt? Eða hefur hún þegar gleymt hinum skelfi­lega degi?

Er skeyt­ing­ar­leysi hennar gagn­vart örlögum aðflutts vinnu­afls, lág­launa­fólks­ins sem hefur verið ómissandi partur af fram­leiðslu-gang­verki vellyst­ina þeirra sem íslensk yfir­stétt lifir við, svo mikið að jafn­vel atburður líkt og sá sem hér um ræðir, atburður sem er afleið­ing þess að dauða­gildra var spennt og skilin eftir svo að sak­laust fólk gæti stigið í hana, skilin eftir með algjörri vit­neskju þeirra sem fara með völd, nær ekki að brjót­ast í gegnum sjálfs­á­nægj­una og sjálfs­upp­hafn­ing­una, nær ekki að brjóta þó ekki væri nema lítið gat á hina ein­beittu veru­leikafirr­ingu með­lima þeirrar stéttar sem á og sem má?“

Sólveig seg­ist nokkuð viss um að Þórdís hefði minnst á þetta ef íbúar hefðu til­heyrt yfir­stétt Reykja­víkur. „Ég full­yrði að ef þau sem létu lífið á Bræðra­borg­ar­stíg hefðu verið börn reyk­vískrar borg­ara­stéttar, en ekki með­limir hins stóra hóps aðflutts verka­fólks, ekki pólskt vinnu­afl, ekki pólsk verka­manna-ung­menni, léti for­maður borg­ar­ráðs sér ekki detta til hugar að gleyma sorg­ar­deg­inum mikla svo fljótt,“ segir Sólveig.

Hún gerir ráð fyrir því að ein­hverjir munu skamma hana sjálfa fyrir að benda á þetta. „Ég veit að ein­hverjum finnst ljótt af mér að tala um þetta. Að ég sé „reið“ og „æst“, sé að ráð­ast á Þórdísi Lóu. En það verður svo að vera. Ég er reið. Reið yfir því að ógeðs­legt aðskiln­að­ar­kerfi sé látið við­gang­ast í þess­ari borg. Ógeðs­legt kerfi stétt­skipt­ingar og xen­ófó­bíu. Kerfi sem er alveg raun­veru­legt, ástand sem er á ÁBYRGÐ þeirra sem telja sig best um komin af öllum til að bera mikla ábyrgð og þiggja fyrir það mikil laun. Ástand sem vex og dafnar í skjóli þess að þau sem völdin láta eins og það sé ekki raun­veru­legt. Kerfi sem mun end­ur­næra sjálft sig VEGNA þess að þau sem telja sig svo merki­leg að þau séu best til þess fallin að stjórna eru blinduð af eigin stétta­andúð á þeim sem ekk­ert eiga og ekk­ert mega. Nema vinna og halda áfram að vera ósýni­leg. Þetta er stað­reyndin og það er fárán­legt að láta sem hún sé ekki raun­veru­leg. Og ég hef ekki áhuga á að afneita raun­veru­leik­anum,“ segir Sólveig.

Hún segir Þórdísi grobba sig af því að sitja í Neyð­ar­stjórn Reykja­víkur. „Elds­voð­inn á Bræðra­borg­ar­stíg þann 25. júní var neyðar-atburður. Í neyð kastaði fólk sér út um glugga. Í neyð dó fólk við þær aðstæður sem sam-mann­eskju­legt er um alla ver­öld að flokka sem þær óbæri­leg­ustu sem manns­hug­ur­inn getur hugsað sér. Fyrir aðstand­endur þeirra sem dóu og þau sem sluppu við illan leik er árið sem leið ár hörm­unga, annus horri­bilis.

Einhver myndu eflaust segja að stað­reyndin að mann­eskja sem grobbar sig af því að eiga sæti í Neyð­ar­stjórn Reykja­víkur sem vara­maður borg­ar­stjóra skuli ekki sá ástæðu til að minn­ast á atburð­inn sé neyð­ar­legt í merk­ing­unni “ bros­legt á napran eða vand­ræða­legan hátt”. En ég ætla að segja að það sé sið­laust og til skammar. Ömurlegt, kald­rana­legt, fárán­legt. Og ég skamm­ast mín fyrir að hafa lesið grein­ina tvisvar, fyrir að hafa raun­veru­lega haldið að ég hefði gert mis­tök í lestr­inum, fyrir að hafa ekki strax áttað mig á því að Þórdís Lóa er ein­fald­lega ekki að eyða hugs­unum sínum og orðum í aðflutt verka­fólk og orlög þess. Hvernig sá ég ekki strax að ekk­ert er aug­ljós­ara en það?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ