Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Inga minnist Jónínu stóru systur: „Ég mun sakna þín til hinstu stundar og minnast þín með gleði“

Inga minnist Jónínu stóru systur: „Ég mun sakna þín til hinstu stundar og minnast þín með gleði“
Mynd / Heiðdís

Ingi­björg Sara Bene­dikts­dóttir segir það von­laust að ætla að fylla það tóma­rúm sem varð til við frá­fall Jónínu systur hennar. Hennar muni hún sakna til sinnar hinstu stundar og minn­ast með bæði gleði og stolti yfir að hafa átt sem systur og vin­konu.

Ingi­björg minn­ist stóru systur sinnar í hjart­næmri færslu á Facebook. Hún segir það einmitt vera sitt síð­asta prakk­ara­strik til Jónínu að birta minn­ing­ar­orð sín þar í stað þess að birta þau í Morg­un­blað­inu. „Ég var að hugsa um að senda minn­ing­ar­grein um fen­omenið systur mína í blöðin. Svo átt­aði ég mig á því að ég er búin að búa of lengi í Noregi til að vera með­virk með þessu liði. Missi örugg­lega nokkra vini en það verður bara að hafa það. Fjöl­miðlar voru alltaf frekar til­búnir til að skrifa um systur mína þegar illa áraði en þegar vel gekk. Veit að hún hefði orðið brjáluð út í mig að birta þessi skrif mín ekki í Morg­un­blað­inu sem hún elskaði að lesa, að birta þetta bara hér á mínum vegg á facebook verður síð­asta prakk­ara­strikið mitt til þín Jónína mín,“ segir Ingi­björg.

„Hins vegar sá ég aldrei fyrir mér systur mína sem aldr­aða konu með göngu­grind, það hefði passað henni ákaf­lega illa“

Ingi­björg segir að í sumum sam­fé­lögum fæð­ist stundum svo stórir ein­stak­lingar að fólk standi bara á gati og að Jónína systir hennar hafi sann­ar­lega verið slík. „Það var 8 ára ald­urs­munur á okkur, sem minnk­aði með árunum en ég man lítið eftir henni sem barn. Bara þess­ari rosa­lega fal­legu og dug­legu systur minni, sem von­laust var að vera í ein­hverri sam­keppni við. Held að við for­eldrar og systk­ini höfum öll áttað okkur snemma á því að Jónína var eitt­hvað svo miklu stærra en bara dóttir og systir, hún var það sem ég myndi kalla á norsku „fen­omen“ eða fyr­ir­bæri,“ segir Ingi­björg og heldur áfram:

„Við systur vorum tals­vert ólíkar og ósam­mála um margt, hún skyldi ekk­ert í mér að vera trú­laus, vinstri sinnuð og ekki vildi ég koma í detox með henni og háðum við marga rimm­una um þau mál­efni, allt þó í góðu. Mér fannst örugg­lega jafn gaman að stríða henni og henni mér. Það var henni mjög erfitt að þiggja en ekki gefa. Þær eru fal­legar síð­ustu minn­ing­arnar sem við eigum um hana. Það eru þær sem eru mik­il­vægastar. Hún var ekk­ert á förum, hug­ur­inn var alls ekki á förum, hún elskaði jólin, elskaði að gefa. Því miður er það svo að þótt hug­ur­inn sé í bata þá segir lík­am­inn stundum stopp. Hins vegar sá ég aldrei fyrir mér systur mína sem aldr­aða konu með göngu­grind, það hefði passað henni ákaf­lega illa. Hún lifði hratt en hefði svo sann­ar­lega mátt fá mörg ár í við­bót, kynn­ast barna­börn­unum betur, sjá þau vaxa úr grasi og jafn­vel eign­ast ný.“

Hér er fjöl­skyldan saman komin. For­eldr­arnir Ásta og Benedikt á sitt­hvorum vængnum í efri röð og á milli þeirra eru eldri systk­ini Jónínu, Pálmi og Hólm­fríður. Í neðri röð­inni eru yngri systur Jóninu, þær Helga (lengst til vinstri) og Inga í miðj­unni. Jónína heitin er svo lengst til hægri.

Ingi­björg segir þau systk­inin sjaldan hafa tekið hvert annað alvar­lega og það hafi iðu­lega verið mikið hlegið á hitt­ingum. Þrátt fyrir strangar sótt­varn­ar­reglur náðu þær systur að faðm­ast í haust áður en Jónína kvaddi. „Ég faðma þig bara samt“ sagði hún þegar við hitt­umst í haust í ferm­ing­ar­veislu í miðju kóf­inu og ég eitt­hvað að reyna að halda 2ja metra reglu, nýkomin frá Noregi. Mikið afskap­lega þykir mér núna vænt um að hún hafi þó einu sinni haft vit fyrir bet­ur­vit­anum litlu systur sinni og gefið mér þetta ynd­is­lega faðm­lag, sem reynd­ist því miður okkar síð­asta. Við sitjum hérna öll eftir hálf­dofin. Hún elskaði ömmu hlut­verkið og spillti barna­börn­unum vís­vit­andi. Það var ekki síst þeim að þakka að hún fékk trú á sjálfri sér aftur sem ein­stak­lingi og að ömmu­hálsa­kotið væri nóg, að hún þyrfti ekki að gefa öllum gull og græna skóga til að fólki þætti vænt um sig. Dætrum mínum var hún góð frænka og þær höfðu oft á orði að Jónína frænka væri allt önnur mann­eskja en þessi Jónína Ben sem stundum var í fjöl­miðlum,“ segir Ingi­björg og bætir við:„Ég mun varð­veita minn­ingu systur minnar sem fjár­sjóð og fæ von­andi tæki­færi til segja næstu kyn­slóð frá upp­á­tækjum hennar og elsku. Líf þitt var stundum dans á rósum systir en þyrn­arnir stungu oft illa. En þó þú bogn­aðir þá gafstu aldrei upp, þerraðir tárin og hélst áfram þinn veg – á þinn hátt. Tóma­rúmið sem þú skilur eftir þig verður von­laust að fylla, ætla ekki einu sinni að reyna það. Þessi fátæk­legu skrif mín koma öllum til­finn­ingum mínum til þín ekki alveg til skila. Ég mun sakna þín til hinstu stundar og minn­ast þín með gleði og stolti yfir því að hafa átt slíka systur og vin­konu. Kærar þakkir fyrir sam­fylgd­ina allt mitt líf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ