Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Magnús læknir segir fólk halda áfram að deyja þó það fái bóluefnið

Magnús læknir segir fólk halda áfram að deyja þó það fái bóluefnið

Magnús Karl Magn­ús­son, pró­fessor og fyrr­ver­andi for­seti lækna­deildar Háskóla Íslands, segir í færslu á Facebook sem hefur vakið mikla athygli að fólk þurfi að átta sig á því að fólk á elli­heim­ilum muni halda áfram að falla frá þó það hafi fengið bólu­efnið við COVID. Hann segir að fólk verði að átta sig á þessu þegar dauðs­föll bólu­settra eru gerð tor­tryggi­leg. Hann segir eðli­legt að þetta sé rætt en vonar að fólk bíði örlítið rólega með dóm.

„Ég kenni læka­nemum og fleiri stéttum lyfja­fræði, þar á meðal um auka­verk­anir lyfja. Þið þekkið senni­lega flest lista af mis­spenn­andi auka­verk­unum sem koma fram á fylgiseðlum lyfja. En hvernig vitum við um þessar auka­verk­anir og eru þær óhjá­kvæmi­legar? Öllum lyfjum fylgja auka­verk­anir en með klínískum rann­sóknum af ýmsu tagi þá reynum við að þekkja og skilja þær auka­verk­anir sem fylgja hverju lyfi. Það er síðan hlut­verk lyfja­stofn­ana sem veita leyfi að meta hvort verkun lyfs­ins sé að jafn­aði meiri en hættan á hugs­an­legri auka­verkun,“ segir Magnús Karl.

Hann segir þetta oft geta verið snúið. „En það er ekki alltaf auð­velt að meta hugs­an­legt orsaka­sam­band milli lyfs og auka­verk­unar. Ef að ég fæ höf­uð­verk eftir töku á lyfi þá gæti það hæg­lega verið til­viljun, það gæti verið raun­veru­leg auaverkun lyfs eða jafn­vel svokölluð „placebo“-áhrif (stundum kölluð nocebo-áhrif þegar um er að ræða auka­verkun). Þegar við gerum klínískar lyfja­til­raunir áður en lyf eru sam­þykkt þá er einmitt lagt mat á hugs­an­legar auka­verk­anir og þar er til dæmis borin saman tíðni hugs­an­legra auka­verk­ana milli hóps­ins sem tekur nýja lyfið og hinna sem ekki taka lyfið. Eftir að lyf eru komin á markað er haldið áfram að rann­saka hugs­an­legar auka­verk­anir, til dæmis með skrán­ingu  þeirra hjá lyfja­stofnun, með rann­sóknum á gögnum í lyfja­gagna­grunnum og með ýmsum öðrum leiðum. En við verðum að muna að það er erfitt að meta orsaka­sam­band og því getur ómark­viss umræða og óskýr hugsun leitt til rangra álykt­ana,“ segir Magnús Karl.

Hann bendir á að íbúar hjúkr­un­ar­heim­ila eiga margir ekki langt eftir. „Nú hefur komið upp umræða um dauðs­föll eftir bólu­setn­ingar hjá íbúum hjúkr­un­ar­heim­ila. Auðvitað þurfum við að vera á var­bergi, hugs­an­legar auka­verk­anir á að til­kynna, það er hluti af gæða­kerfi lyfja­stofn­unar sem hefur sam­ráð við aðra lyfja­stofn­anir um allan heim. En það að vera á varð­bergi krefst þess að við reynum að afla upp­lýs­inga og reynum síðan að draga réttar álykt­anir um orsakir og afleið­ingar. Við verðum þannig að muna að íbúar hjúkr­un­ar­heim­ila eru hrumir og flestir aldr­aðir. Þar deyja all­nokkrir á hverri viku. Það er auð­vitað sorg­legt en það er lífs­ins gangur. Ef að 10 íbúar deyja að jafn­aði á viku og við bólu­setjum allla íbú­ana á 2-3 dögum þá munum við vænta þess að að á næstu viku muni 10 íbúar deyja. Það er enn og aftur lífs­ins gangur. Annað væri óvenju­legt. Við skulum því bíða róleg,“ segir Magnús og biður blaða­menn sér­stak­lega að hafa þetta í huga að lokum:

„Þetta segi ég ekki að því að við eigum halda upp­lýs­ingum frá almenn­ingi, þvert á móti á almenn­ingur rétt og kröfu á að vita um auka­verk­anir jafn­mik­il­vægra lyfja og bólu­efni eru. Ég segi þetta til að almenn­ingur geti skilið og dregið réttar álykt­anir um orsök og afleið­ingar. Frétta- og blaða­menn hafa þarna veiga­miklu hlut­verki að gegna að útskýra þetta flókna sam­band, raunar myndi ég halda því fram að þetta væri grund­vall­ar­hlut­verk frétta- og blaða­manna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ