Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Menningarsnobb akademíunnar

Menningarsnobb akademíunnar

Eftir / Lindu Björg Árna­dóttur

Á síð­asta ári síð­ustu aldar kom hópur fólks að því að gefa út blað sem bar nafnið 24/7 sem átti að fylgja Morg­un­blað­inu einn dag í viku sem auka­blað og fjalla um mál líð­andi stundar, popp­menn­ingu, tón­list og tísku. Ég kom aðeins að þessu þar sem for­síðu­við­talið og for­síðu­myndin var af fata­hönn­uðum og fyr­ir­ætl­uðum við­burði í þeim geira.
Blaðið kom út einu sinni og svo ekki meir. Ástæðan var sú að hinir íhalds­sömu og elí­tísku áskrif­endur Morg­un­blaðs­ins urðu æfa­reiðir yfir auka­blað­inu og sendu kvart­anir í hrönnum til rit­stjórnar MBL varð­andi hvað það ætti að þýða að senda þeim þessa lág­menn­ingu og rusl og hót­uðu í kjöl­farið að segja blað­inu upp.

Það var því hætt við áfram­hald­andi útgáfu þessa ágæta blaðs og er það miður. Það er nefni­lega þannig að eitt­hvert fólk hefur ákveðið að sum menn­ing er hámenn­ing og önnur menn­ing, sem ekki er eins mik­ils virði, er lág­menn­ing, öðru nafni popp­menn­ing, menn­ing fólks­ins.

Í nýlegu við­tali við kvik­mynda­fram­leið­and­ann og lista­mann­inn Sigurjón Sig­hvats­son á Vísi gerir hann skilin á milli hámenn­ingar og lág­menn­ingar að umtals­efni. Hann segir frá því að hann hafi á árum áður, verið við nám í bók­mennta­fræði í Háskóla Íslands og þar hafi hann ekki verið hátt skrif­aður sem og hans verk og tón­list, en hann var með­limur í hinum vin­sælu hljóm­sveitum Brimkló og Ævintýri. Að það sem hann hafi verið að gera, hafi sam­kvæmt fræði­mönn­unum ekki flokk­ast sem tón­list eða listir vegna þess að það var ekki hámenn­ing.

Ég hef lengi verið að velta þessu fyrir mér vegna þess að ég hef unnið í listum í 30 ár og hef ekki séð að það séu lista­menn sem standa fyrir þess­ari hug­mynd um elít­isma og lag­skipt­ingu innan list­anna. Hug­myndin virð­ist alger­lega koma frá fræði­mönnum og aka­dem­í­unni.
En hvað er það sem gefur fræði­mönnum og aka­dem­í­unni leyfi til þess að taka listir og flokka þær með þessum hætti. Útiloka sumar listir og stað­setja svo sjálfa sig með hálist­unum og elít­unni? Þessi hug­mynd hefur ekki orðið list­unum til fram­dráttar.

Samkvæmt kenn­ingum félags­fræð­ings­ins Pierre Bourdieu þá koma listir og menn­ing frá elít­unni og síðan seytla þær niður sam­fé­lagið til lægri stétta. Hvernig stendur á því að list­irnar eigi að koma frá elít­unni? Hún býr þær ekki til heldur lista­menn sem hafa almennt engan áhuga á elít­isma.

Sigurjón bendir rétti­lega á að þessi hug­mynd sé víkj­andi og að núna sé það bara eldri kyn­slóðin sem sér list­irnar með þessum hætti. Skilin milli hámenn­ingar og lág­menn­ingar eru að hverfa. En voru þau ein­hvern tíman til? Voru þau ekki bara búin til af fræði­mönnum?
Sigurjón hélt eftir þetta til kvik­mynda­borg­ar­innar Hollywood og lét þar þessar hug­myndir ekki hefta sig og fram­leiddi margt frá­bært sem hægt væri að flokka í báða þessa flokka list­anna þar á meðal upp­á­halds­kvik­mynd­ina mína „Wild at heart“ eftir David Lynch.

En það verður erfitt fyrir suma að sleppa þess­ari hug­mynd vegna þess að margt fólk hefur notað hug­mynd­ina um hámenn­ingu og lág­menn­ingu til þess að upp­hefja sig, til þess að stað­setja sjálft sig í efri lögum sam­fé­lags­ins. Notað þessar hug­myndir sér til aðgrein­ingar frá almúg­anum. Því sam­kvæmt þessu, ef ein­stak­lingur gefur til kynna að hann hafi þekk­ingu á hámenn­ing­unni þá telur sá hinn sami sig til­heyra elít­unni.

Ef les­endur Morg­un­blaðs­ins hefðu ekki verið svona íhalds­samir og elí­tískir árið 1999 og lagt niður blaðið 24/7 þá væri það í dag kannski fjöl­miðla­sam­steypa á stærð við Torg ehf.
Nú eru mörg fylgi­blöð sem fylgja Morg­un­blað­inu um ýmiss mál­efni, tísku og popp­menn­ingu þar á meðal, og hefur orðið aug­ljós breyt­ing á þessu flokk­un­ar­kerfi list­anna núna 20 árum seinna en samt vantar tölu­vert upp á.

Höfundur er dós­ent og dokt­or­snemi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina