Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Konur af erlendum uppruna eru auðlind“

„Konur af erlendum uppruna eru auðlind“
Inga Minelgaite

Inga Minelgaite ólst upp í Litháen en flutti til Íslands fyrir fimmtán árum og hefur búið hér og starfað síðan og er nú pró­fessor við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands. Hún segir íslenskt sam­fé­lag hafa breyst mikið á þeim tíma sem hún hefur búið hér hvað varðar við­horf til útlend­inga en hana dreymir um að stuðla að því að þau breyt­ist enn meira og þess vegna hefur hún frum­kvæði að ýmsum verk­efnum og styður aðra.

„Ég flutti hingað tutt­ugu og fjög­urra ára frá Litháen,“ útskýrir hún. „Ég ólst upp í vel mennt­aðri fjöl­skyldu þar sem báðir for­eldrar unnu í opin­bera geir­anum, en einnig í eigin rekstri eftir að Litháen fékk sjálf­stæði.

Á skóla­ár­unum var ég mjög virk í fjöl­breyttum félags­törfum, allt frá því að vera í kirkjukór til þess að vera vara­for­seti nem­enda­fé­lags skól­ans. En mér fannst skemmti­leg­ast í dansi. Ég var, og er enn, mikið nátt­úru­barn. Átti ýmsar hetjur sem fyr­ir­myndir sem barn, allt frá Tarzan og Línu Langsokk upp í kven­legar konur í Hollywood-bíó­myndum. Ég er alin upp í litlum bæ í Litháen þar sem allir þekkja alla og lík­aði það vel á margan hátt. Á sama tíma var ég ekki feimin við það að rísa upp gegn þeim við­horfum að reyna að gera alla eins.“

Dvaldi aldrei við fordóma

En hvað með for­dóma varðstu mikið vör við þá? „Ég dvaldi aldrei mikið við for­dóma. Ég sá eða heyrði nokkur ummæli sem mér fund­ust óvið­eig­andi, en ég kippti mér ekki sér­stak­lega upp við það og lét það ekki hafa mikil áhrif á mig. Ákvað að gera frekar eitt­hvað til að hafa jákvæð áhrif. Ég stofn­aði til dæmis lit­háískt-íslenskt félag á Íslandi. Margir menn­ing­ar­við­burðir voru skipu­lagðir þar sem íslenskir lista­menn fóru til Litháen og Litháar komu hingað. Við lærðum til dæmis að prjóna íslenskar lopa­peysur með Íslend­ingum og kenndum Íslend­ingum að prjóna lit­háískt prjón. Með stofnun félags­ins höfðum við jákvæð áhrif. Svo margt er hægt að gera á þessu sviði og margir vinna að þessu, til dæmis WOMEN, sam­tök kvenna af erlendum upp­runa. Fordómar koma til vegna fáfræði. Með fræðslu minnka for­dómar.“

 Skortur á vit­und um þá auð­lind sem erlendar konur eru

Er það þín reynsla að konur af erlendum upp­runa eigi erfitt með að kom­ast í stöður sem þeim hæfa í íslensku sam­fé­lagi? „Það væri ósann­gjarnt að tala fyrir hönd allra. Auðvitað eru nokkrar hindr­anir, en ef ein­hver vill heyra mig kvarta verð ég að valda von­brigðum. Ég held að stærsta málið sé skortur á vit­und varð­andi það hve gagn­leg auð­lind erlendar konur eru: tengsla­net þeirra getur verið „hlið“ inn í aðra mark­aði, sér­hæfð þekk­ing þeirra getur brúað núver­andi þekk­ing­ar­bil og svo fram­vegis. Að skilja það sem auð­lind sem allt sam­fé­lagið nýtur góðs af myndi leysa mörg mál, eins og skipt­ingu í „þau“ og „okkur“. Þaðan sem ég stend, sé ég „okkur“. Okkur, sem öll búum í landi þar sem við ölum upp börnin okkar, landi sem hefur nátt­úru sem við elskum og njótum, landi þar sem fram­tíðin skiptir okkur öll máli, þetta er landið sem við sýnum gestum okkar með stolti og landið sem við styðjum öll í fót­bolta fyrir meist­ara­mót.“

Ýtarlegt við­tal við Ingu um kennsl­una í Háskól­anum, stjórn­un­ar­stíl, það að vera sjálf­stæð móðir og fleira er að finna í nýj­ustu Vikunni. Tryggðu þér ein­tak.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina