Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Jenný Anna er látin: „Ég er breysk manneskja. Ég er fljótfær, kjaftfor.“

Jenný Anna er látin: „Ég er breysk manneskja. Ég er fljótfær, kjaftfor.“
kerti

Jenný Anna Baldurs­dóttir er látin. Hún var þjóð­fé­lags­rýnir og í hópi vin­sæl­ustu blogg­ara lands­ins. Jenný Anna var 69 ára er hún lést. Jenný Anna skrif­aði lengi hug­renn­ingar sínar þegar Eyjan.is var sá mið­ill sem var mið­stöð póli­tískrar umræðu á net­inu. Jenný Anna lýsti sér sjálf með eft­ir­far­andi orðum:

„Ég er breysk mann­eskja. Ég er fljót­fær, kjaft­for, hugsa stundum (og skrifa líka) áður en ég tala og þarf reglu­lega að biðj­ast afsök­unar á brestum mínum þegar ég missi mig við alls­konar tæki­færi. Þá er það frá – allir eru mann­legir og jadíjadída.“

Jenný not­aði þessa mynd ítrekað sem höf­unda­mynd á blogg­inu

Jenný Anna hóf fer­ill sinn sem blogg­ari á vef Morg­un­blaðs­ins. Jenný Anna var óhrædd við að tjá óvin­sælar skoð­anir og á end­anum varð hún vin­sæl­asti blogg­ar­inn á vef Morg­un­blaðs­ins.

Þá ákvað Jenný Anna árið 2009 að sölsa um og færa sig á Eyjuna. Ákvað Jenný að flytja sig um set eftir að Davíð Oddsson var gerður rit­stjóri Moggans.

Í Morg­un­blað­inu í dag er greint frá að þessi merka kona sé fallin frá. Þar segir:

Okkar ást­kæra eig­in­kona, móðir, tengda­móðir og amma, JENNÝ ANNA BALDURSDÓTTIR, Herj­ólfs­götu 38, Hafn­ar­firði, lést á Land­spít­ala Hring­braut fimmtu­dag­inn 28. jan­úar. Útför mun fara fram í kyrr­þey að ósk hinnar látnu.

Einar Vilberg Hjart­ar­son Sara Hrund Ein­ars­dóttir María Greta Ein­ars­dóttir Ari Benóný Malmquist Helga Björk Laxdal Björn Axelsson og barna­börn

Á Eyjunni Var Jenný fljót að skipa sér í hóp vin­sæl­ustu bloggar­anna. Oft skrif­aði hún þar stuttar, snarpar færslur og gagn­rýndi þar sam­fé­lag sitt og stjórn harð­lega. Síðan voru aðrar per­sónu­legri og lengri, þar sem hinn kald­hæðni rit­snill­ingur opn­aði sig um ýmis per­sónu­leg mál.

Annað dæmi um skrif Jennýjar er pist­ill eins og þessi:

Ég hef ekki bloggað mjög lengi – Só?  Stundum verður maður yfir­kom­inn af því sem er að ger­ast í þjóð­fé­lag­inu. Þol­þrösk­uld­ur­inn hrein­lega brast

Stað­reyndin er þó sú að ég er lif­andi búmmer­ang, sorrí, ég kem alltaf aftur og aftur og aftur,  og allar yfir­lýs­ingar mínar um annað eru á pari við þegar ég hét öllum mínum fyrr­ver­andi ævar­andi tryggð, ég meina það full­kom­lega þangað til að ég geri það ekki lengur.

Ég sá mig ekki hafa geð­heilsu til að blogga við und­ir­spil öskur Vigdísar Hauks­dóttur eða lyga SDG og dugnað hans í að svíkja kosn­inga­lof­orðin sem hann gaf þjóð­inni eins og hann væri með gull­stangir í fórum sínum til handa þess­ari þjáðu og þjónk­un­ar­fullu þjóð, sem gleypti kjaftæðið um nán­ast full­kom­inn heim, bara ef þjóðin kysi hann.

Áfallið yfir að lands­menn mínir gleyptu þessa snáka­olíu hráa var þó verst.

Halló, þegar við kusum voru 4 ár frá hruni og allir alveg: Helvítið hann Stein­grímur og Jóhanna sem að sögn hrun­flokk­anna settu þjóð­ina á höf­uðið.

Jóhanna,  Stein­grímur J og þeirra sam­starfs­menn eru örugg­lega óvin­sælasta ræst­ing­ar­fólk í heimi.

Talandi um að vera fastur í Fell­ini­bíó­mynd þar sem aðal­leik­ar­arnir (á sýru) ljúga eins og sprútt­salar upp á fólkið sem tók að sér að þrífa upp eftir hrun­flokk­ana, sem eru hrun­flokkar enn í dag og munu verða þar til þeir gera sjálfa sig upp.

Ég veit ekki hversu oft blogg­and­inn heltók mig á þessu tíma­bili – en sú stað­fasta kona sem ég er (jeræt) náði áttum og það end­aði með því að ég kveikti í lyk­il­orð­inu að mínu eðla bloggi svona figúra­tívt, sjálfri mér til verndar.

Ég kvald­ist í hljóði,  bak­aði og lærði harð­angur og klaustur (rosa­lega skemmti­leg prjóna­að­ferð).

En nú er ég komin aftur -les­endum eyj­unnar til mik­illar gleði, jájá, og ætla að láta gossa, bara eins og and­inn blæs mér í brjóst.

Það eru einkum tvö mál sem gera það að verkum að tján­ing­ar­þörfin er að drepa mig.

Ef það böggar ein­hvern þá eru úti­dyrnar hér og Mogginn fæst á öllum betri bens­ín­stöðvum.

Að mál­unum sem ég mun ein­henda mér í að blogga um til að byrja með, nei ekki í dag, ég ætla ekki að fara að blogga doðranta, kommon, er Leka­málið hennar Hönnu Birnu (já hún á það tótallí sko af því hún er ráð­herra mála­flokks­ins).

Bullið, barna­skap­ur­inn, van­still­ingin, hrok­inn og þvælan í SDG sem náði hámarki í við­tali við Gísla Martein í dag, er svo óásætt­an­legt þegar æðsti maður þjóð­ar­innar á í hlut, að það er ekki hægt að dansa skottís fram hjá því.

Fyrr myndi ég hætta að reykja, ganga á Esjuna, stunda sjóstund og hefja át á fisklifur.

Takk SDG fyrir að koma mér í blogg­ham.  Ég vissi að þú ættir eftir að gera eitt­hvað fyrir mig.

Gísli Marteinn er maður dags­ins.  Ég var að gef­ast upp á GM þeim ljúfa dreng, fannst að þarna færi Familie Journalþáttur, með skoð­ana­bræðrum hans í aðal­hlut­verki það reynd­ist sem betur fer ástæðu­laus ótti.

Gísli Marteinn, taktu stjórn- og stjórn­ar­að­stöðu­fólk með þessum hætti líka, sýndu mér og öðrum sem þrá við­töl þar sem gengið er eftir svörum versus drottn­inga, að þú sért kom­inn til að vera svona sem alvöru maður – alltaf, ekki bara gegn and­stæð­ingum þínum í stjórn­málum.

Ég sé ykkur á morgun vill­ing­arnir ykkar.  Þið sem viljið halda ykkur frá vondri konu sem rífur kjaft upp á eitt­hvað á Vigdísi þegar þannig liggur á mér, farið og látið gott af ykkur leiða við að bjarga heim­inum,  fara til messu or som­þeing.

Æ dónt gif a fokk tú bí onest.

Sí jú.

Jenný Anna yngri

Jenný Anna tjáði sig um feril sinn í við­tali við fjöl­miðla árið 2007.

„Ég byrj­aði að blogga í febr­úar 2007 því þá hafði ég allt í einu svo mik­inn tíma. Ég var ný­lega komin úr með­ferð eftir að hafa drukkið á mig sykur­sýki, orðin sjúk­lingur og gat ekki unnið. Ég hafði áður unnið mjög mikið og var nú kyrr­sett heima með þeim af­leið­ingum að ég fór að blogga eins og eng­inn væri morgun­dag­ur­inn.“

Vin­sældir Jennýjar má meðal ann­ars rekja til þess að hún kom til dyr­anna akkúrat eins og hún var klædd. En eins og hún sagði sjálf:

„Ég hef ekk­ert að fela.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ