Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Óskarsverðlaunahafinn í kastalanum á Sólvallagötu seldi glæsihýsið

Óskarsverðlaunahafinn í kastalanum á Sólvallagötu seldi glæsihýsið

Eitt glæsi­leg­asta ein­býl­is­hús borg­ar­innar er Kast­ala­húsið á Sól­valla­götu. Líkt og kemur fram á vef Mannlíf fyrr í dag, keyptu hjónin Ragnar Jónasson rit­höf­undur og María Margrét Jóhanns­dóttir húsið. Ragnar er glæpa­sagna­höf­undur sem nú situr í efstu sætum met­sölu­lista um allan heim. María er blaða­maður. En hver seldi húsið?

Jú, það er Ósk­arsverð­launa­hafi sem hefur búið með sam­býl­is­manni í hús­inu í mörg ár. Ósk­arsverð­launa­haf­inn heitir Marketa Irglova og er tékk­neskur tón­list­ar­maður sem hlaut hin virtu verð­laun árið 2008 fyrir lag í írsku kvik­mynd­inni Once. Þá var hún aðeins 19 ára gömul og yngsti ein­stak­ling­ur­inn sem tekið hefur við þessum virtu verð­launum, ef utan eru skildir leik­li­st­ar­flokk­arnir.

Í raun má segja að Market sé Íslend­ingur, hefur fest hér rætur, eign­ast mann og börn og talar okkar erf­iða tungu­mál eins og ekk­ert sé. Hér má t.d. sjá við­tal á íslensku við Marketu.

Marketa lék annað aðal­hlut­verk­anna í kvik­mynd­inni sem hlaut frá­bærar við­tökur og dóma. Fáir vita að Marketa búi hér á landi en árin eru að verða hátt í tíu. Maður Marketa er Sturla Míó Þórisson, upp­töku­stjóri og eiga þau tvö börn.

Marketa og Sturla eiga félagið Kjarn­epli ehf sem skráð var fyrir hinu hag­an­lega kast­ala­húsi. Þau keyptu húsið árið 2013 en halda nú á önnur mið, vænt­an­lega með Ósk­arsverð­launa­stytt­una í far­angrinum.

Verð­mið­inn fyrir hið virðu­lega hús, sem byggt var árið 1925 og er um 240 fer­metrar, var rétt tæpar 130 millj­ónir. Í umfjöllun um kaupin má sá fjölda mynda og einnig fylgja nokkrar þess­ari umfjöllun. Þá má lesa afar áhuga­vert við­tal frá árinu 2018 við hina ungu tón­list­ar­konu sem kom fyrst til Íslands árið 2010 til að koma fram á tón­leikum. Helstu áhrifa­valdar hennar eru Simon og Gar­funkel, Joni Mitchell, Kate Bush og Leonard Cohen. Hún segir að Það hafi komið mjög á óvart þegar lag hennar fékk til­nefn­ingu til Ósk­arsverð­launa en lagið heitir „Falling Slowly“ og má sjá mynd­skeið af flutn­ingi hér neðst í frétt­inni. Aðspurð um hvernig til­finn­ingin var að sigra í flokknum svarar Marketa:

„Eins og flug­elda­sýn­ing. Það voru alls konar til­finn­ingar sem hrísl­uð­ust um mann. Líkaminn býr til ser­atónín og allt þetta góða fer af stað. Svo fer maður að anda grunnt, titra og getur varla talað.“

Líkt og áður segir ferð­að­ist Marketa til Íslands og féll strax fyrir landi og þjóð og strengdi þess heitt að koma aftur og taka upp eigin tón­list.

Við það stóð hún.

Reyndist það örlaga­rík ákvörðun sem breytti lífi hennar til fram­búðar og rétt eins og í hinni frá­bæru írsku mynd var það tón­listin sem sam­ein­aði en í þessu Íslands­æv­in­týri var Sturla Míó upp­töku­stjóri og segir Marketa að strax hafi neistað á milli þeirra. Áttaði hún sig á viku seinna að hún væri ást­fang­inn af Sturlu.

Marketa hefur fest rætur á Íslandi og hér vil hún búa. Síðasta verk­efni hennar er í sam­vinnu við Emilíönu Torrini en þær semja tón­list fyrir leik­verkið Vertu Úlfur sem sýnt er á fjölum Þjóð­leik­húss­ins.

„Ég hef ein­hverja teng­ingu við Ísland og líður ekki eins og ég sé útlend­ingur. Kannski bjó ég hér í fyrra lífi,“ segir Marketa en ekki hefur farið mikið fyrir henni á Íslandi frá því að hún festi hér rætur. Það er ævitýra­ljómi yfir því að við Íslend­ingar áttum því alltaf einn Ósk­arsverð­launa­hafa sem fæst okkar vissu af í kast­al­anum á Sól­valla­götu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ