Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Tara krefst þess að ræða við útvarpsstjóra – Frétt frá 2010 um fituhjöss enn aðgengileg

Tara krefst þess að ræða við útvarpsstjóra – Frétt frá 2010 um fituhjöss enn aðgengileg
Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson.

Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir, for­maður Samtaka um lík­ams­virð­ingu, birtir opið bréf stílað á Stefán Eiríks­son útvarps­stjóra. Það má lesa í heild sinni hér fyrir neðan. Þar sakar hún RÚV um for­dóma gegn feitu fólki og nefnir ýmis dæmi um það. Hún leggur for­dóma gegn feitum að jöfnu við kyn­þátta- og kynja­for­dóma og gefur jafn­vel í skyn að þeir séu alvar­legri. Hún kvartar enn fremur yfir því að talað sé um fitu­hjöss í frétt frá árinu 2010.

Bréfið í heild sinni:

Reykja­vík, 3. febr­úar 2021

𝐎𝐩𝐢ð 𝐛𝐫𝐞́𝐟 𝐭𝐢𝐥 𝐒𝐭𝐞𝐟𝐚́𝐧𝐬 𝐄𝐢𝐫𝐢́𝐤𝐬𝐬𝐨𝐧𝐚𝐫 𝐮́𝐭𝐯𝐚𝐫𝐩𝐬𝐬𝐭𝐣𝐨́𝐫𝐚 𝐯𝐞𝐠𝐧𝐚 𝐬𝐤𝐚ð𝐥𝐞𝐠𝐫𝐚𝐫 𝐟𝐣𝐨̈𝐥𝐦𝐢ð𝐥𝐚𝐮𝐦𝐟𝐣𝐨̈𝐥𝐥𝐮𝐧𝐚𝐫 𝐮𝐦 𝐡𝐨𝐥𝐝𝐚𝐟𝐚𝐫.

Samtök um lík­ams­virð­ingu vilja lýsa yfir áhyggjum og von­brigðum með efn­is­tök Rík­is­út­varps­ins (RÚV) þegar kemur að umfjöllun um holda­far.

𝐄𝐢𝐧𝐡𝐥𝐢ð𝐚 𝐨𝐠 𝐬𝐤𝐚ð𝐥𝐞𝐠 𝐞𝐟𝐧𝐢𝐬𝐭𝐨̈𝐤 𝐮𝐦 𝐡𝐨𝐥𝐝𝐚𝐟𝐚𝐫 𝐚́ 𝐝𝐚𝐠𝐬𝐤𝐫𝐚́

Nú í jan­úar hafa verið sýndir tveir heim­ilda­þættir frá BBC á RÚV. Ann­ars­vegar er um að ræða þátt­inn Skyndi­megr­un­ar­til­raunin (The Big Crash Diet Experiment) þar sem fylgst er með fjórum feitum ein­stak­lingum sem settir eru á öfga­fullan, fljót­andi megr­un­ar­kúr þar sem þau fá ein­ungis að neyta um 700 hita­ein­inga á dag í 9 vikur. Nið­ur­staða þátt­ar­ins er sú að það slæma umtal sem fylgir öfga­kenndum megr­un­ar­kúrum eigi ekki rétt á sér og að það sé vel á það reyn­andi að skella sér á slíka kúra. Þessi nið­ur­staða er þvert á nið­ur­stöður ára­tuga rann­sókna sem hafa tekið af öll tví­mæli um að skyndi­megr­anir sem þessar séu stór­hættu­legar lík­am­legri, and­legri og félags­legri heilsu.

Fyrir utan lélegar árang­urs­tölur þegar kemur að langvar­andi þyngd­ar­tapi, sem eru á bil­inu 3-5%, þá hefur ekki enn tek­ist að sýna fram á að þyngd­ar­tapið sjálft leiði til heilsu­bótar. Algeng­asta útkoman úr þyngd­ar­tap­stil­raunum, hvaða nafni sem þær nefn­ast, er þyngd­ar­aukn­ing (1, 2, 3 og 4).

Líkurnar á því að feitt fólk nái ein­hvern tím­ann kjör­þyngd á ævi sinni eru stjarn­fræði­lega lágar (5). Þetta orsakast ekki af skorti á vilja­styrk heldur mót­væg­is­að­gerðum sem lík­am­inn grípur til þegar hann upp­lifir hung­ursneyð og hafa fylgt mann­kyn­inu frá upp­hafi.

Í heims­frægri til­raun Ancel Keys þar sem 36 karl­menn tóku þátt í hálf­svel­tit­il­raun í 24 vikur voru afleið­ing­arnar þessar:

Lík­am­legar afleið­ingar:

  • Nagandi hungur
  • Kuldi
  • Lík­am­legur van­máttur
  • Svimi
  • Yfir­þyrm­andi þreyta
  • Vöðva­rýrnun
  • Hár­missir
  • Umfang hjart­ans minnk­aði um 20%
  • Púls lækk­aði
  • Lík­ams­hiti lækk­aði
  • Grunn­brennsla lækk­aði um 40%

Andlegar afleið­ingar:

  • Þrá­hyggju­kenndar hugs­anir um mat
  • Átkasta­hegðun
  • Djúp geð­lægð
  • Mikil and­leg neyð
  • Pirr­ingur
  • Minnkuð kyn­hvöt
  • Áhugi á öllu nema mat hvarf
  • Félags­leg ein­angrun
  • Tauga­veiklun

Karl­arnir í þess­ari til­raun neyttu 1560 hita­ein­inga á dag. Tvöfalt fleiri en þátt­tak­endur neyttu í þætt­inum sem RÚV sýndi nú í jan­úar. Við teljum okkur geta full­yrt að eng­inn heil­brigð­is­starfs­maður eða nær­ing­ar­fræð­ingur gæti mælt með þeim aðferðum sem við­hafðar voru í þætt­inum.

Hinn þátt­ur­inn sem RÚV bauð upp á er heim­ilda­þáttur frá BBC sem kall­ast Sann­leik­ur­inn um offitu (The Truth About Obesity). Þrátt fyrir örlítið gagn­rýn­ari umfjöllun um orsaka­þætti er meg­in­þráður þátt­ar­ins áhyggjur af heilsu­fars­legum og fjár­hags­legum kostn­aði við „flóð­bylgju“ og „far­aldur“ offitu þar sem spjótin bein­ast aðal­lega að hreyf­ingu og matar­æði. Sýnt hefur verið fram á að birt­ing­ar­mynd fjöl­miðla af feitu fólki sem byrði á sam­fé­lag­inu ýti undir fitu­for­dóma í sam­fé­lag­inu (6, 7). Slíkri umfjöllun er oft ætlað að vekja upp við­bjóð og reiði hjá áhorf­and­anum og er hún oftar en ekki skekkt þar sem hún fjallar um holda­far ein­ungis frá þyngd­ar­mið­aðri nálgun (weight-normative approach), en aldrei þyngd­ar­hlut­lausri nálgun (weight-neutral approach). Þyngd­ar­hlut­laus nálgun fjallar meðal ann­ars um heilsu­fars­legar afleið­ingar fitu­for­dóma, mis­mun­unar og end­ur­tek­inna þyngd­ar­tap­stil­rauna. Sýnt hefur verið fram á að umfjöllun um holda­far af þessu tagi, þar sem hallar mjög á aðra hlið­ina, hafi mjög skað­leg áhrif út í sam­fé­lagið.

Við höfum jafn­framt miklar áhyggjur af umfjöllun og efn­is­tökum RÚV þegar kemur að offitu­að­gerðum, allt frá frétta­skýr­ing­ar­þáttum eins og Kveik (20) yfir í útvarps­við­töl við skurð­lækna og sjúk­linga sem hafa geng­ist undir slíkar aðgerðir, nú síð­ast 19. jan­úar í morg­un­út­varpi Rásar 2 þar sem skurð­læknir líkti maga­ermis­að­gerðum við gall­blöðru­að­gerðir. Var ákveðnum dýrð­ar­ljóma slegið um þessa teg­und aðgerða án þess að farið væri djúpt í auka­verk­anir og áhættu, rétt eins og oft áður. Samtök um lík­ams­virð­ingu hafa áður gert athuga­semd við fjöl­miðlaum­fjöllun um offitu­að­gerðir og reynt að vekja athygli á hætt­unum við slík vinnu­brögð (21). Við teljum áður­nefnda umfjöllun á villi­götum enda er um mikla og flókna aðgerð að ræða með ekki síður miklum og flóknum fylgi­kvillum, og fólk sem fer í hana með óraun­hæfar vænt­ingar er í sér­stak­lega mik­illi áhættu (22).

Það sem kemur aldrei fram í þess­ari umfjöllun er að fólk sem und­ir­gengst aðgerð­irnar upp­lifir ekki alltaf bætt lífs­gæði og stundum versna þau. Algengt er að fólk þyng­ist aftur eftir að það hefur náð sinni lægstu þyngd eftir aðgerð og að sjúk­dómar á borð við kæfisvefn og syk­ur­sýki 2 sem fóru í sjúk­dóms­hlé láti á sér kræla á ný eftir örfá ár. Átrask­anir og áfengis- og vímu­efna­notkun eru einnig tíð­ari meðal þeirra sem hafa geng­ist undir aðgerð af þessu tagi. Krónísk vannær­ing, kvið­verkir og nið­ur­gangur eru við­búin vanda­mál. Aðgerðin hefur áhrif á horm­óna­jafn­vægi og dregur úr ghrelin-magni í lík­am­anum sem minnkar mat­ar­lyst en eykur líkur á þung­lyndi. Minni hæfni lík­am­ans til að draga til sín nauð­syn­leg nær­ing­ar­efni gerir það síðan að verkum að hann er ekki fær um að taka til sín virk efni þung­lynd­is­lyfja eins og áður og er því erf­ið­ara að lyfja­stilla þung­lyndið. Sjúk­lingar lýsa erf­iðum til­finn­ingum við að upp­lifa breytt við­mót umheims­ins þegar þeir grenn­ast og fitu­for­dómar og mis­munun minnkar, en von­leysi þegar þeir þyngj­ast nær óhjá­kvæmi­lega aftur og verða fyrir jað­ar­setn­ingu á ný. Skömmin, von­leysið og sjálfs­á­sök­unin sem fylgir þessu ferli er stór­hættu­leg en eðli­leg ef tekið er til­lit til þess að hvergi heyrum við að þetta séu eðli­legar og nátt­úru­legar afleið­ingar aðgerð­ar­innar og mót­væg­is­að­gerðir lík­am­ans við henni. Þess í stað tönnlast for­svars­fólk aðgerð­anna stöðugt á því að árangur af aðgerð­inni fari að nær öllu leyti eftir því hversu dug­legur sjúk­ling­ur­inn er við að til­einka sér „nýja lífs­hætti“ og ábyrgðin þannig sett í hendur sjúk­lings­ins. Afleið­ingin er sú að sjálfs­vígs­tíðni meðal feitra sem hafa farið í offitu­að­gerð er mun hærri en hjá jafn feitum sem hafa ekki farið í slíka aðgerð (22).

𝐉𝐚ð𝐚𝐫𝐬𝐞𝐭𝐧𝐢𝐧𝐠 𝐨𝐠 𝐚𝐟𝐦𝐞𝐧𝐧𝐬𝐤𝐮𝐧 𝐟𝐞𝐢𝐭𝐫𝐚

Í nútíma­sam­fé­lagi er feitt fólk jað­ar­sett og verður fyrir kerf­is­bund­inni mis­munun. Þegar við sjáum feita mann­eskju hefur sam­fé­lagið skil­yrt okkur til að dæma hana sem lata, gráð­uga, óaðl­að­andi, heimska og sið­ferð­is­lega óæðri (8). Sam­fé­lags­leg skila­boð þess eðlis dynja á okkur úr öllum áttum, ekki síst frá fjöl­miðlum. Tíðni fitu­for­dóma í Banda­ríkj­unum var orðin sam­bæri­leg tíðni kyn­þátta- og kynja­for­dóma árið 2008 (9). Nýleg rann­sókn sem skoð­aði þróun með­vit­aðra og ómeð­vit­aðra for­dóma gagn­vart kyn­hneigð, kyn­þætti, húð­lit, aldri, fötlun og þyngd á tíma­bil­inu 2007-2016 sýndi fram á að nei­kvæð við­horf til allra þátta höfðu ann­að­hvort minnkað eða staðið í stað, nema til þyngdar. Fordómar á grund­velli þyngdar juk­ust á tíma­bil­inu (10).

Skýrsla Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins „Fordómar á grund­velli holda­fars í íslensku sam­fé­lagi“ (11) sýndi að fitu­for­dómar lifa góðu lífi á Íslandi. Þar kom einnig fram að „sökum þess hve for­dómar á grund­velli holda­fars koma fram víða má færa rök fyrir því að feitt fólk búi við kerf­is­lægt mis­rétti sem eigi sér rætur í almennum við­horfum og gild­is­mati sam­fé­lags­ins“ og voru fjöl­miðlar og birt­ing­ar­myndir feitra sem þar sjást til­tekin sem orsaka­þáttur.

Afleið­ing þess­arar þró­unar er sú að feitt fólk hefur verið afmennskað af sam­fé­lag­inu. Rann­sóknir sýna að þátt­tak­endur eru óhræddir við að stað­festa að þeir álíti feitt fólk síður mennskt og síður þróað en fólk sem er ekki feitt. Þeir sýna feitu fólki einnig minni sam­kennd en grennra fólki (12, 13). Afmennskunin hefur þau áhrif að for­dómar, mis­munun og ofbeldi gegn feitu fólki verður sam­þykkt og rétt­læt­an­leg. Veiga­mik­ill þáttur þarna er áður­nefnd birt­ing­ar­mynd fjöl­miðla.

𝐕𝐨̈𝐧𝐝𝐮ð 𝐮𝐦𝐟𝐣𝐨̈𝐥𝐥𝐮𝐧 𝐮𝐦 𝐡𝐨𝐥𝐝𝐚𝐟𝐚𝐫 𝐞𝐫 𝐥𝐲́ð𝐡𝐞𝐢𝐥𝐬𝐮𝐦𝐚́𝐥

Það þarf ekki frjótt ímynd­un­ar­afl til að sjá að áður­nefnd félags­leg staða feitra hefur áhrif á lík­am­legt, and­legt og félags­legt heilsu­far. Rann­sóknir meðal sam­fé­lags­hópa sem hafa orðið fyrir mis­munun sýna auknar líkur á ýmsum heilsu­farskvillum, svo sem háþrýst­ingi, lang­vinnum verkjum, kvið­fitu, efna­skipta­villu, æða­kölkun og brjóstakrabba­meini, jafn­vel þegar tekið hefur verið til­lit til ann­arra áhrifa­þátta (14). Rann­sóknir sýna enn­fremur að reynsla af fitu­for­dómum eykur líkur á þung­lyndi, nei­kvæðu sjálfs­mati, slæmri lík­ams­mynd, ofáts­vanda og minni þátt­töku í hreyf­ingu (14).

Nýleg rann­sókn sýndi fram á að reynsla af fitu­for­dómum hafi for­spár­gildi og nái að útskýra nærri þriðj­ung af þróun lífstíls­sjúk­dóma sem hafa hingað til verið útskýrðir með sjálfri lík­ams­fit­unni (15).

Í minn­is­blaði vinnu­hóps Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins um aðgerða­á­ætlun til að draga úr tíðni offitu frá 2013 (16) segir: „Rann­sóknir und­an­far­inna ára­tuga sýna að fitu­for­dómar (anti-fat prejudice) og mis­munun á grund­velli holda­fars er algeng í vest­rænum sam­fé­lögum og hafa íslenskar rann­sóknir m.a. stað­fest að slík mis­munun á sér stað í atvinnu­líf­inu hér á landi. Við inn­leið­ingu aðgerða þarf því að leggja áherslu á að þær stuðli allt í senn að and­legu, lík­am­legu og félags­legu heil­brigði og vellíðan en verði ekki til þess að auka nei­kvæð við­horf eða van­líðan í tengslum við holda­far. Þvert á móti er mik­il­vægt að efla virð­ingu fyrir fjöl­breyttum lík­ams­vexti í sam­fé­lag­inu þar sem slæm lík­ams­mynd og for­dómar vegna holda­fars geta haft nei­kvæð áhrif á heilsu­tengda hegðun, heil­brigði og líðan. Þ𝐯𝐢́ 𝐞𝐫 𝐫𝐚́ð𝐥𝐚𝐠𝐭 𝐚ð 𝐚ð𝐠𝐞𝐫ð𝐢𝐫 𝐬𝐭𝐣𝐨́𝐫𝐧𝐯𝐚𝐥𝐝𝐚 𝐟𝐞𝐥𝐢𝐬𝐭 𝐢́ 𝐞𝐟𝐥𝐢𝐧𝐠𝐮 𝐡𝐞𝐢𝐥𝐛𝐫𝐢𝐠ð𝐫𝐚 𝐥𝐢𝐟𝐧𝐚ð𝐚𝐫𝐡𝐚́𝐭𝐭𝐚 𝐚́ 𝐛𝐫𝐞𝐢ð𝐮𝐦 𝐬𝐚𝐦𝐟𝐞́𝐥𝐚𝐠𝐬𝐥𝐞𝐠𝐮𝐦 𝐠𝐫𝐮𝐧𝐝𝐯𝐞𝐥𝐥𝐢 𝐚́𝐧 𝐬𝐞́𝐫𝐬𝐭𝐚𝐤𝐫𝐚𝐫 𝐚́𝐡𝐞𝐫𝐬𝐥𝐮 𝐚́ 𝐨𝐟𝐟𝐢𝐭𝐮 𝐞ð𝐚 𝐥𝐢́𝐤𝐚𝐦𝐬þ𝐲𝐧𝐠𝐝.“

Það er því ekki ein­ungis mann­rétt­inda­mál að umfjöllun um holda­far sé vönduð og í jafn­vægi, heldur einnig brýnt lýð­heilsu­mál. Á þeim grund­velli hefur Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin (WHO) vakið athygli á fitu­for­dómum sem heilsuvá og til­tekið sér­stak­lega fjöl­miðla sem stóran áhrifa­þátt (16).

𝐋𝐚𝐠𝐚𝐥𝐞𝐠𝐚𝐫 𝐬𝐤𝐲𝐥𝐝𝐮𝐫 𝐑𝐔́𝐕 𝐬𝐞𝐦 𝐟𝐣𝐨̈𝐥𝐦𝐢ð𝐢𝐥𝐬 𝐢́ 𝐚𝐥𝐦𝐚𝐧𝐧𝐚þ𝐚́𝐠𝐮

Á með­fylgj­andi mynd má sjá inn­gang að frétt RÚV frá árinu 2010. Fram kemur í mynda­text­anum að Íslend­ingar þurfi að hugsa sinn gang og herða sókn­ina gegn offitu þar sem ný skýrsla sýni að Íslend­ingar séu í hópi mestu „fitu­hjassa“ í heimi. Fréttin er enn aðgengi­leg á vef RÚV (17).

Nær­tækara dæmi er umfjöllun um ráð­stefnu um offitu sem Íslensk erfða­grein­ing stóð fyrir í febr­úar 2020. Kári Stef­áns­son kom af því til­efni í útvarps­við­tal á RÚV og var skrifuð frétt upp úr því sem einnig var birt á vef RÚV (18). Kári segir m.a.: „ef við hugsum um þetta út frá klass­ísku mati okkar í sam­fé­lag­inu á hegðun fólks, þá er offitan að með­al­tali tján­ing á heldur lélegri starf­semi heil­ans, það er ósköp ein­falt.“ Í kjöl­farið af ráð­stefn­unni þar sem máluð var upp mynd af feitu fólki sem heimsku og óhlýðnu skrif­aði for­maður Samtaka um lík­ams­virð­ingu pistil (19) og gagn­rýndi þessa orð­ræðu. Pistill­inn var sendur á tölvu­póst­fang RÚV og óskað eftir því að fjallað yrði um þá hlið umræð­unnar til að gæta jafn­vægis. Erindinu var ekki svarað.

Í fyrstu máls­grein 1. kafla laga um Rík­is­út­varpið, fjöl­miðil í almanna­þágu (nr. 23/2013), segir að mark­mið lag­anna sé að „stuðla að lýð­ræð­is­legri umræðu, menn­ing­ar­legri fjöl­breytni og félags­legri sam­heldni í íslensku sam­fé­lagi með fjöl­miðla­þjón­ustu í almanna­þágu. Rík­is­út­varp­inu er falin fram­kvæmd hennar eins og nánar er kveðið á um í lögum þessum. Rík­is­út­varpið er þjóð­ar­mið­ill og skal rækja fjöl­breytt hlut­verk sitt af fag­mennsku, metn­aði, heið­ar­leika og virð­ingu.“

Við óskum eftir opnu sam­tali við útvarps­stjóra til að ræða hvernig við getum, sem fag­fólk og aðgerða­sinnar, stutt Rík­is­út­varpið við að fram­fylgja áður­greindu laga­á­kvæði eftir bestu getu.

Í stuttu máli…

– Samtök um lík­ams­virð­ingu lýsa yfir áhyggjum og von­brigðum með efn­is­tök Rík­is­út­varps­ins (RÚV) þegar kemur að umfjöllun um holda­far.

– Borið hefur á ein­hliða og skað­legri umfjöllun um holda­far á vegum RÚV sem málar feitt fólk upp sem byrði á sam­fé­lag­inu. Slík birt­ing­ar­mynd hefur afmennsk­andi áhrif á feitt fólk og ýtir undir fitu­for­dóma í sam­fé­lag­inu (6, 7).

– Fitu­for­dómar og mis­munun á grund­velli holda­fars hafa alvar­legar lík­am­legar, and­legar og félags­legar afleið­ingar fyrir feitt fólk (14, 15). Vönduð umfjöllun fjöl­miðla um holda­far er því ekki ein­ungis mann­rétt­inda­mál heldur brýnt lýð­heilsu­mál.

– RÚV ber skylda til þess sam­kvæmt lögum að sinna hlut­verki sínu af fag­mennsku, metn­aði, heið­ar­leika og virð­ingu.

– Samtök um lík­ams­virð­ingu óska eftir fundi með útvarps­stjóra í því skyni að eiga opið sam­tal um hvernig megi koma í veg fyrir skað­lega umfjöllun um holda­far.

Virð­ing­ar­fyllst, stjórn Samtaka um lík­ams­virð­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ