Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Helgi og Grímur skammaðir fyrir að betla eftir ofsagróða: „Svo mikil skömm að það nær engu tali“

Helgi og Grímur skammaðir fyrir að betla eftir ofsagróða: „Svo mikil skömm að það nær engu tali“

Reiði er meðal lands­manna yfir þeim fregnum að Grímur Sæmund­sen, for­stjóri Bláa lóns­ins, og Helgi Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður Bláa lóns­ins og eig­andi Frétta­blaðs­ins og DV, hafi sótt mörg hund­ruð millj­ónir í sam­eig­in­lega sjóði eftir að þeir mok­græddu. Kveikur fjall­aði um það í gær að Bláa lónið hafi fengið rúm­lega 590 millj­ónir króna í upp­sagn­ar­styrk vegna COVID en hlut­hafar fengu sam­tals rúma 7,8 millj­arða króna í arð frá félag­inu á þremur árum fyrir far­ald­ur­inn.

Þetta er for­dæmt víða á Facebook og virð­ist sam­eina hægri- og vinstri­menn. Í það minnsta eru bæði sós­í­alistar og Guð­mundur Franklín Jónsson ekki sáttir. Færsla Katrínar Bald­urs­dóttur innan Facebook-hóps sós­í­alista hefur vakið nokkra athygli en þar lætur hún Grím og Helga heyra það.

„Það sýnir í hvers konar þjóð­fé­lagi við búum þegar tveir rík­ustu menn lands­ins, þeir Grímur Sæmund­sen for­stjóri Bláa lóns­ins og Helgi Magn­ús­son stjórn­ar­for­maður Bláa lóns­ins eru í aðstöðu til greiða sér fleiri millj­arða í arð en betla svo af okkur almenn­ing 580 millj­ónir því þeir segj­ast blankir vegna Covid. Og þeir voru fljótir að koma fyr­ir­tæk­inu á upp­sagn­ar­styrki vegna veirunnar,“ skrifar Katrín.

Hún telur svo upp helstu eig­endur lóns­ins. „Bláa lónið fékk nefni­lega rúm­lega 590 millj­ónir króna í upp­sagna­styrk, en hlut­hafar fyr­ir­tæk­is­ins fengu sam­tals jafn­virði rúm­lega 7,8 millj­arða króna í arð frá félag­inu á þremur árum fyrir far­ald­ur­inn, sem er rúm­lega þrett­án­falt meira en upp­sagna­styrk­ur­inn. Grímur Sæmund­sen er langstærsti eig­andi Bláa lóns­ins og á senni­lega uppundir helm­ing þegar allt er tekið saman. Helgi Magn­ús­son sem einnig á Frétta­blaðið og Hring­braut er líka stór eig­andi. Ágústa John­son er einnig á meðal stærstu eig­enda. Ágústa er eig­in­kona Guð­laugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra.“

Hún segir alveg ljóst að þetta fólk hefði getað borgað laun starfs­manna á neyð­ar­tíma fyrir gróð­ann und­an­farin ár. „Ef við miðum við að Grímur eigi upp undir helm­ing fyr­ir­tæks­ins þá hefur hann fengið í vas­ann um 4 millj­arða í arð á síð­ustu 3 árum. En var svo félít­ill þegar kór­ónu­far­ald­ur­inn brast á að hann þurfti að betla 590 millj­ónir af okkur. Hafði geð í sér til þess að sópa millj­ón­irnar upp úr rík­is­kass­anum. Svona þjóð­fé­lag sem fyllir kistur hinna ríku en lengir raðir fátækst fólks við dyr hjálp­ar­stofn­anna er svo langt frá öllum gildum og mark­miðum sós­í­al­isma að engu er saman að jafna. Svona þjóð­fé­lag er heldur ekki í anda þess sem almenn­ingur vill. Almenn­ingur er skyn­samur og sós­í­al­ismi er skyn­samur.“

Hiti er í fólki sem skrifar athuga­semd við færslu hennar. „Svona við­bjóður gengur nú bara ekki .. og svo svelta aðrir,“ skrifar einn. Geir Jón Þórisson, fyrr­ver­andi yfir­lög­reglu­þjónn í Reykja­vík, skrifar svo: „Það er svo mikil skömm að þessu að það nær engu tali.“

Björn Birg­is­son, sam­fé­lags­rýnir frá Grinda­vík, segir svo þetta dæmi­gert í færslu. „Bláa lónið greiddi 7,8 millj­arða í arð til eig­enda sinna síð­ustu þrjú árin fyrir Covid vand­ræðin. Meira en nokk­urt annað fyr­ir­tæki í land­inu. Bláa lónið fékk 591 milljón króna af almannafé í upp­sagn­ar­styrki vegna COVID. Ríkidæmi eig­enda skert­ist ekki, en hagur rík­is­sjóðs fór hall­oka. Svona vinnur einka­fram­takið. Hirðir gróð­ann, en ávísar tap­inu á rík­is­sjóð.“

Að lokum má nefna að í hópnum Boðn­ar­mjöður varð svo til vísa um þetta. Kristján H Theo­dórs­son yrkir:

„Sveinar þeir af Svarta engi,

svelta munu ef.

Bjarni lætur bíða lengi,

að bæta þeirra kvef.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ