Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Kári reiður og sár: Tekinn af lífi af Sveppa og Pétri – Kári vill berjast við Sveppa

Kári reiður og sár: Tekinn af lífi af Sveppa og Pétri – Kári vill berjast við Sveppa

Kári Frið­riks­son leigu­bíl­stjóri og óperu­söngv­ari er afar ósáttur, sár og reiður þeim Pétri Jóhanni Sig­fús­syni og Sverri Þór Sverris­syni, betur þekktur sem Sveppi. Sveppi og Pétur Jóhann gerðu end­ur­tekið grín að holda­fari og hár­greiðslu leigu­bíl­stjór­ans og birtu opin­ber­lega í hlað­varpi þeirra félaga Beint í bíl­inn. Kári er sár og reiður og hefur skorað Sveppa á hólm í blönd­uðum bar­daga­listum til að kenna honum lexíu. Það gerir Kári þrátt fyrir að vera mun eldri en þeir félagar.

„Þessir menn lentu víst báðir í ein­elti og stríðni á yngri árum. Samt finnst þeim svona fram­koma í lagi,“ segir Kári.

Í hlað­varp­inu aka þeir Svepp og Pétur um bæinn og gera grín að því sem fyrir augu ber. Sveppi og Pétur höfðu í tvígang ekið fram­hjá Kára og á gert grín að útliti hans. Þeir óku síðan í þriðja sinn að leigu­bíl hans í þeim til­gangi að skipt­ast á nokkrum orðum svo að Pétur Jóhann sæi betur hversu lík­am­legt og hlægi­legt útlit Kára leigu­bíl­stjóra væri. Sjálfur lýsir Kári því á þann hátt að Pétur Jóhann og Sveppi hafi laum­ast að leigu­bílnum og haft uppi ýmsar niðr­andi og ósmekk­legar athuga­semdir.

„Mest um fitu og hvað ég liti asna­lega út. Þeir tala jafn­vel um það, hvernig þeir mundu berj­ast við mig:

„Ég myndi fara í lapp­irnar á honum,“

sagði annar, og hinn tók undir að ég væri með svo mikla kúlu, að ég myndi rúlla, en varla geta staðið upp […]Svo fannst þeim flot að líkja mér við sel.“

Á upp­tök­unni hefur Sveppi sig mun meira frammi og sagði Kára spor­öskju­laga, kringlóttan og hann liti út eins og selur á þurru landi. Þá væri hann lík­lega í buxum sem væru að stærð 46 í mitti og 26 að lengd. Þá var einnig gert grín að hári Kára. Hann væri með stutt að framan og sítt og krulla hár að aftan.

„Hann var allur svona kringl­óttur,“ sagði Sveppi eftir að þeir höfðu ekið fram­hjá Kára. „Hann var ekki beint kringl­óttur, hann var spor­öskju­laga eins og spor­öskju­laga selur. Hann var með góða miðju. Það væri erfitt að ná honum niður. Þú verður að fara beint í lapp­irnar.“

Sveppi ákvað svo að snúa við og aka aftur fram­hjá Kára í þeirri von að leigu­bíl­stjór­inn væri þar enn þá.

„Mig langar svo að pakka honum saman, troða honum í skottið, fara bara með hann heim og skreyta hann fyrir jólin. Hengja á hann jóla­seríu og hafa hann sem jóla­tré, “ sagði Sveppi og bætti við eins og hann væri að tala við börnin sín: „Það er ekk­ert jóla­tré í ár, það er bara vel skreyttur leigu­bíl­stjóri. Stutt að framan, sítt að aftan.“

Pétur Jóhann og Sveppi renndu að bíl Kára til að eiga við hann orð. Þá hafði Kári hallað sæt­inu í bílnum og lét fara vel um sig.

„Hann er búinn á því. Hann liggur bara, með hárið sleikt aftur og með krullur. Liggur þarna bara eins og spor­öskju­laga selur á þurru landi, svaka­legt ein­tak.“

Þeir stöðv­uðu bíl sinn við hlið Kára og undir fölsku flaggi ósk­uðu þeir eftir leið­bein­ingum til að kom­ast niður á Tómasar­haga. Eftir að þeim sam­skiptum lauk hélt grínið áfram á kostnað leigu­bíl­stjór­ans.

Leigu­bíl­stjór­inn var ósáttur þegar hann heyrði hvernig gert var óspart grín að honum í um tíu mín­útur í hlað­varps­þætti þeirra félaga.

Kári er afar ósáttur við fram­kom­una í sinn garð.

„Þeir voru í tíu mín­útur að snudd­ast í kringum bíl­inn án þess að ég tæki eftir og komu svo að tala við mig,“ segir Kári og bætir við: „[Þeir] gera grín að útliti mínu, hvað ég væri feitur, sköll­óttur, með sítt hár og með axla­bönd.“

„Voru að tala um hvort ég væri hættu­legur, ég væri þrek­inn og þá myndu þeir fara í lapp­irnar á mér,“ segir Kári og ákvað því að skora á Sveppa að glíma við sig í búri, í blönd­uðum bar­daga­listum.

Kári kveðst vilja snúa Sveppa niður til að kenna honum lexíu og kurt­eisi.

„Hann ætti varla að vera hræddur við gamlan mann sem er orð­inn sex­tugur, hann sem er fæddur 1977 og verður fjöru­tíu og þriggja á árinu,“ segir Kári og upp­lýsir að hann hafi stundað lík­ams­rækt og taki 120 kíló í bekk­pressu. Kári von­ast til að Sveppi taki áskor­un­inni.

„Ég vil ekki gera lítið úr Pétri Jóhanni, en amma mín hefði ekki viljað að ég væri að „berja minni máttar“, ann­ars ætti hann líka skilið ráðn­ingu.“

Þá hefur Kári, sem er einnig tón­list­ar­maður, samið lag og ljóð til að lýsa reynslu sinni af Sveppa og Pétri Jóhanni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ