Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Birgir sagði hingað og ekki lengra- Læknir bað hann að handtaka sjúkling: „Á hvaða öld erum við?“

Birgir sagði hingað og ekki lengra- Læknir bað hann að handtaka sjúkling: „Á hvaða öld erum við?“
Biggi lögga

Birgir Örn Guð­jóns­son, betur þekktur sem Biggi lögga, seg­ist búinn að fá upp í kok af forn­ald­ar­legu hátt­ar­lagi gagn­vart fíkni­efna­neyt­enda á Íslandi. Hann segir kom­inn tími á að hugsa um það fólk sem sjúk­linga en ekki glæpa­menn. Máli sínu til stuðn­ings segir hann frá því þegar læknir bað Birgi um að hand­taka sjúk­ling sem hálf­gerða redd­ingu. Birgir segir mik­il­vægt fyrir opin­bera starfs­menn að lýsa aðstæðum fyrir almenn­ingi að því gefnu að slík frá­sögn sé ekki rekj­an­leg.

„Hér er smá inn­sýn í sam­fé­lagið okkar gegnum störf lög­reglu. Sönn saga en lyg­inni lík­ust. Við fengum aðstoð­ar­beiðni frá aðstand­endum aðila sem var að glíma við vímu­efna­vanda. Hafði hann að þeirra sögn ætlað að enda líf sitt með of stórum skammti. Lög­reglan hafði upp á honum og kom honum undir lækn­is­hendur. Hann vildi ekki þyggja þá aðstoð og fór aftur heim,“ segir Birgir.

„Næsta dag hafði lög­reglan afskipti af heim­ili aðil­ans eftir að veg­far­andi til­kynnti óeðli­lega hegðun tengda heim­il­inu. Ég tek fram að þetta heim­ili er ekk­ert óeðli­legt og ekki það sem fólk myndi kalla „óreglu“ heim­ili. Aðstand­endur afþökk­uðu aðstoð að svo stöddu. Seinna sama dag höfðu þessir aðstand­endur samt aftur sam­band og ósk­uðu þá eftir sjúkra­bif­reið og lög­reglu til að flytja aðil­ann undir lækn­is­hendur. Var þá and­legt ástand aðil­ans orðið það slæmt að þau voru komin á enda­stöð og urðu að fá við­eig­andi fag­lega aðstoð fyrir hann.“

Birgir segir mál sem þessi í raun ekki eiga heima hjá lög­regl­unni. „Það er ekk­ert í lögum sem leyfir lög­reglu að hand­taka fólk fyrir að vera veikt og ég var ekki að fara að gera slíkt. Eðlilega vita aðstand­endur samt ekki hvernig þetta gengur fyrir sig. Þau vilja bara hjálpa ást­vini. Ég afpant­aði því sjúkra­bíl en hafði sam­band við lækni og fékk hann á heim­ilið. Þessi læknir mat að ástand aðil­ans væri það slæmt að brýn þörf væri á að koma honum á sjúkra­stofnun og að hann væri of veikur til að geta metið það sjálfur. Var hann því sjálf­ræð­is­sviptur í þrjá sól­ar­hringa. Aðilinn brást illa við þess­ari ákvörðun og streytt­ist við er lög­regla flutti hann á sjúkra­stofnun í umboði lækn­is­s­ins,“ segir Birgir.

Þá var hann enn og aftur beð­inn um að hand­taka mann­inn. „Eftir að hafa rætt við aðil­ann hafði annar læknir á þeirri sjúkra­stofnun sam­band við mig. Hann sagði aðil­ann hættu­legan sjálfum sér og öðrum en undir það miklum áhrifum og í það slæmu ástandi að hann þyrfti að „óska eftir því“ að hann yrði vistaður í fanga­klefa um nótt­ina og komið yrði með hann næsta dag. Já þetta er í alvör­unni sönn saga! Þetta er langt frá því að vera í fyrsta sinn sem lög­reglan lendi á svona vegg en þarna fékk ég bara nóg. Þarna var annar læknir búinn að sjálf­ræð­is­svipta aðil­ann en það átti að aflétta þeirri svipt­ingu og lög­reglan að yfir­taka ábyrgð­ina og setja aðil­ann í fanga­klefa. Á hvaða öld erum við?,“ spyr Birgir.

Hann segir þetta ein­fald­lega ekki eðli­legt. „Ég ræddi lengi við lækn­inn og útskýrði þá skoðun mína að slíkt væri á engan hátt eði­legt. Heil­brigð­is­stofnun gæti ekki óskað eftir því að aðili yrði hand­tek­inn. Ég ákvað því að neita lækn­inum um þessa beiðni hans. Ég sagði að ef þau gætu ekki aðstoðað veikan aðila þá værum við ekki að fara að taka við honum. Lög­reglan hefði ekki slíkar for­virkar heim­ildir að geta hand­tekið aðila sem hugs­an­lega á eftir að gera eitt­hvað vegna veik­inda sinna. Þar á heil­brigð­is­kerfið að grípa inn í,“ segir Birgir.

Hann bætir við að lokum að ekki hafi verið við neinn ákveð­inn mann að sakast. Kerfinu sé um að kenna. „Lækn­ir­inn ákvað að lokum að taka við aðil­anum og leggja hann inn. Ég tek fram að lækn­ir­inn var mjög kurt­eis á allan hátt og ég er ekki að dæma hann eða sam­starfs­fólk hans. Þetta eru nefni­lega þau sem eru sér­fræð­ing­arnir á þessu sviði. Ekki lög­reglan. Þetta er bara partur af göllum og götum í kerf­inu sem við höfum búið við. Göllum sem verður að lag­færa, götum sem þarf að stoppa upp í og hug­ar­far sem þarf að breyt­ast. Þetta ástand er hvorki boð­legt fyrir lög­reglu né heil­brigð­is­starfs­fólk og alls ekki þá sem eru veikir og þurfa aðstoð. Aukið sam­starf mis­mun­andi stofn­anna og félaga­sam­taka er lyk­ill­inn að for­vörnum og auk­inni vel­sæld þeirra hópa sem eru í hvað við­kvæm­astri stöðu. Það eru til lausnir og ráð. Við verðum að gera betur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ