Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Tímavél til sölu í Fossvoginum: „Herbergið sem tíminn gleymdi“ – Sjáðu myndirnar

Tímavél til sölu í Fossvoginum: „Herbergið sem tíminn gleymdi“ – Sjáðu myndirnar

Í Foss­vog­inum er að finna áhuga­verða fast­eign eða eins konar tíma­vél. Um er að ræða endarað­hús að Kúrlandi 12. Eignin telur alls 217,3 fer­metra ásamt 25 fer­metra bíl­skúr. Inn­rétt­ingar og gól­f­efni eru allt upp­runa­legt og var allt hannað á sínum tíma af Gunnari Magn­ús­syni inn­an­hús­hönn­uði.

Húsið er byggt árið 1973 og til­finn­ingin örugg­lega ekki ósvipuð og að fá far með tíma­vél. Kúrland 12 er á tveimur hæðum. Tíma­vélin kostar 87.9 millj­ónir króna.

Eignin hefur þegar vakið athygli á sam­fé­lags­miðlum en Bragi Þor­grímur birti mynd af eign­inni á Twitter, að þarna væri tæki­færi til að kaupa sig aftur í tím­ann með því að fjár­festa í Kúrlandi 12. Inga nokkur svar­aði Braga og sagði:

„Ég trúi ekki öðru en að fólkið sem býr þarna eigi rainbow ryksugu sem hefur svo­leiðis gert sitt gagn í gengum tíð­ina. Þess vegna held ég að teppið lykti ekki jafn illa og ég ímynda mér þegar ég horfi á það.“

Valgerður Arnadóttir átti áhugaverða uppástungu:

„Það ætti að halda þessu húsi nákvæm­lega svona og leigja út slök­un­ar­tíma þar sem maður gæti hlustað á guf­una, flett dönsku blöð­unum og borðað nýbak­aðar kleinur.“

Þá vakti tölvan mikla athygli. Benedikt Pálmason sagði:

„Tvö fimm og kvart-drif er algjör snilld ef maður er ekki með harð­andisk. DOD 3.3 á einum og Multiplan á hinum. Ég er ekki að jafna mig á þessu. Að halda svona tölvu gang­andi er ekk­ert grín.“

Bragi Þor­grímur sagði að um væri að ræða PC-tölvu með tvö­földu 5 1/4″ floppy drifi sem var senni­lega hætt að nota í kringum 1991.

Hinn reyndi og skeleggi fréttamaður á RÚV, Brynjólfur Þór Guðmundsson, segir réttilega:

„Her­bergið sem tím­inn gleymdi.“

Á efri­hæð er for­stofa með flísum, eld­hús er með upp­runa­legum ljósum inn­rétt­ingum, inn af eld­húsi er einnig búr. Þar er borð­stofa með mik­illi loft­hæð, björtum gluggum og fal­legum arinn.

Úr stof­unni er gengið út á svalir sem snúa til suð­urs. Gól­f­efnin á eign­inni eru teppi í alrými og dúkur á her­bergjum.

Á neðri hæð er hjónaherbergi með rúmgóðum fataskápum, þaðan er svo gengið út í suðurgarð með grasflöt. Þar er einnig að finna þrjú svefnherbergi með fataskápum og rúm gott sjónvarpshol. Baðherbergi flísalagt með baðkari.

Ekki er vitað um ástand lagna, skolp, neysluvatns, raflagna og miðstöðvar í húsinu.

Stutt er í alla þjónustu, skóla og leikskóla sem og afþreyingu. 4 svefnherbergi eru í húsinu, tvær stórar stofu og tvö baðherbergi.

Það er kominn tími til að kveðja tímavélina að Kúrlandi 12 í Fossvogi

Bílskúr fylgir en ekki þessi 22 ára gamli MITSUBISHI – PAJERO

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ