Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kristján Loftsson kveður goðsögn: Mikið lán að hafa átt sam­leið með Rabba. Hann kveður okk­ur nú.

Kristján Loftsson kveður goðsögn: Mikið lán að hafa átt sam­leið með Rabba. Hann kveður okk­ur nú.
|

Rafn Magnús­son vél­fræð­ing­ur fædd­ist 25. febr. 1932 á Þránd­ar­stöðum í Kjós. Hann lést 15. febr. 2021 á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Ísa­fold í Garðabæ. 26. des­em­ber 1954 gift­ist Rafn eft­ir­lif­andi eig­in­konu sinni, Evu Guðmunds­dótt­ur frá Eystri-Mó­hús­um á Stokks­eyri. Eva og Rafn eign­uð­ust þrjú börn, þau Vil­borgu, Krist­inn og Elsu.

Rafn eða Rabbi eins og hann var oft kall­aður er hálf­gerð þjóð­sagna­per­sóna í sögu hval­veiða hér á landi. Það má segja að að veiðar á þessum skepnum hafi verið Rafni í blóð borið, fæddur og upp­al­inn í Hval­firði. Og Rabbi og Kristján Loftsson, for­stjóri Hvals, voru bestu vinir og fylgd­ust lengi að. Á Hval 1 sum­arið 1956 var Rabbi vél­stjóri. Kristján var messi, aðeins 13 ára í sínum fyrsta túr og sá var hún ekki hár í loft­inu. Hval­veiðar hafa því fylgt þessum tveimur mönnum stærstan hluta lífs­ins.

Rabbi starf­aði hjá Hvali hf. yfir sum­arið, frá árinu 1954 og var á veiðum heil sautján sumur. Þá fannst honum tími til kom­inn að hætta að stíga öld­una og fór í land og var einn starfs­manna í hval­veiði­stöð­inni í Hval­firði. Þó tók við nokk­urt hlé, en þá vant­aði hann gamla vin, Kristján Loftsson, vakt­mann, til að hafa augu með hval­veiði­bát­unum.

Hval­veiðar voru því stór hluti af lífi Rafns. Í sam­tali við Morg­un­blaðið í októ­ber 2002 sagði hann:

„Þetta var voða­legt fútt meðan þetta var af fullum krafti. Það var unnið allan sól­ar­hring­inn og aldrei stoppað.“

Rafn var vél­stjóri á hval­veiði­skip­unum í 17 ár eða frá árinu 1954 til 1970. Árið 1990 varð hann svo vakt­maður skip­anna, þar sem Hvalur 6,7,8 og 9 lágu við bryggju. Þá hafði Hvalur 1,2,3,4 verið grandað, enda gömul og úrelt skip en hvalur 5 end­aði á safni í Þýska­landi.

Hvalfjörður hafði mótandi áhrif

Rafn ólst upp í Hvamms­vík en hug­ur­inn stefndi til að vinna með vél­ar. Í minn­ing­ar­grein Morg­un­blaðs­ins segir að ekki sé ólík­legt að nánd við vél­búnað setu­liðs­ins í Hval­f­irði hafi mótað þann áhuga.

Rafn var yfir­vél­stjóri hjá Hvali en færði sig árin 1970 til 71 í ál­ver­ið í Straums­vík. Rafn hóf störf sem smíða- og suðu­kenn­ari við Vél­skóla Íslands 1971 og starf­aði við það þar til hann hætti störf­um árið 2001. Frá 1974 var Rafn stöðvar­stjóri í hval­stöð­inni í Hval­f­irði á sumr­in. . Árið 2008 fékk Rafn heið­urs­merki sjó­manna­dags­ráðs fyr­ir störf sín.

Forðast fjölmiðla

Faðir Krist­jáns Lofts­sonar var einn þeirra sem stofn­uðu Hval. Í við­tali sagði Kristján:

„Svo vann ég þarna og hef nú eig­in­lega hvergi verið ann­ar­staðar en þar.“

Kristján er ekki aðeins for­stjóri Hvals held­ur einnig aðal­eig­andi HB Granda. Þá á hann hlut í og situr í stjórnum ýmissa ann­arra félaga sem flest tengj­ast inn­byrðis.

Kristján forð­ast helst fjöl­miðla og veitir sjaldan við­töl. Í nær­mynd DV sagði að Kristján væri gjaf­mildur og góð­hjart­aður og þekktur fyrir að ausa fé til góð­gerða­fé­laga án þess að gorta af því á opin­berum vett­vangi.

Þekkst frá unga aldri

Kristján hefur þekkt Rafn eða Rabba eins og þeir köll­uðu hann ævin­lega. Kynni þeirra ná langt aftur eða til árs­ins 1956. Rabbi er þá annar vél­stjóri á Hval 1. Kristján Loftsson er messi, aðeins 13 ára gam­all. Þetta er hans fyrsta frumraun til sjós. Hval­veiðar hafa fylgt Krist­jáni í kringum 70 ár. Kristján segir:

„Næst vor­um við skips­fé­lag­ar á Hval 2 og Hval 7 sam­tals í fjór­ar hval­ver­tíðir, ég sem há­seti og Rabbi vél­stjóri.

Rabbi sagði mér að aðdrag­andi þess að hann réðst til Hval hf. var að skóla­bróðir hans í Vél­skól­an­um bað hann að leysa sig af í hálf­an mánuð í byrj­un hval­ver­tíðar 1954 sem 3. vél­stjóri á Hval 2.“

Umsvif minnkuðu

Rabbi var alla ver­tíð­ina og gott bet­ur hjá Hval hf. Starfaði hann á hinum ýmsu bátum Hvals þar til hann hætti á sjó árið 1970. Hann leysti þó af við og við ef mann vant­aði á bát. Kristján Loftsson segir:

„Öll um­svif hjá Hval hf. minnk­uðu auð­vitað veru­lega er hval­veiðar hættu eft­ir ver­tíð­ina 1989 er hið svo­nefnda hval­veiði­bann tók gildi. Áfram varð að líta eft­ir skip­un­um og sjá til þess að allt væri í lagi um borð. Fólst það m.a. í að snúa aðal­vél­inni og smyrja hana reglu­lega og margt fleira,“ segir Kristján.

Rabbi þekkti manna best hvern krók og kima í hval­bát­un­um svo hér var ekki kot vísað. Natni, vand­virkni og snyrti­mennska var Rabba í blóð bor­in er kom að eft­ir­liti og því sem þurfti að gera svo skip­in yrðu klár í slag­inn er kallið kæmi,“ Kristján og heldur áfram:

„Er það svo loks gerð­ist 2006 er Hval­ur 9 fór í stutta ver­tíð í lok sum­ars og veiddi sjö lang­reyðar, þá var skip og vél­bún­aður í eins góðu ástandi og maður gat best á kosið eft­ir að hafa legið í Reykja­vík­ur­höfn síðan haustið 1989. Sam­visku­semi Rabba sýndi sig hér áþreif­an­lega.“

Rabbi hætti hjá Hval hf. Að eigin ósk sögum ald­urs í lok árs 2006. Hann var þá 74 ára.

„Kom hann oft í kaffi til að ræða mál­in eins og geng­ur og ger­ist. […] Það var mikið lán fyr­ir Hval hf. að hafa fengið mann eins og Rabba til starfa hjá fé­lag­inu, mann sem kunni sitt fag og var úrræða­góður ef eitt­hvað bját­aði á,“ segir Kristján og bætir við:

„Þegar ég hugsa til baka þá var ég nú ekki hár í loft­inu 13 ára á Hval 1 en þar um borð var ein­vala áhöfn og marg­ir þeirra störf­uðu hjá fyr­ir­tæk­inu í ára­tugi eins og Rabbi, enda leið mér vel þar og síðar til sjós með þeim,“ segir Kristján.

Góður vinur kvaddur

„Það hef­ur verið mikið lán fyr­ir mig per­sónu­lega að hafa átt sam­leið með Rabba í nær 65 ár er hann kveður okk­ur nú. Hann kenndi mér margt um gufu­vél­ar en þær þekkti hann eins og lóf­ana sína,“ segir Kristján um sinn gamla vin.

„Að leið­ar­lok­um vil ég fyr­ir mína hönd og fjöl­skyldu minn­ar senda Evu og fjöl­skyldu okk­ar inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur.“

Útför Rafns fór fram frá Vídalíns­kirkju í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ