Kristján Markús Sívarsson, oft kenndur við Skeljagranda líkt og bróðir hans, Stefán Logi, hóf nýlega okurlána starfsemi með hvelli. Hann kynnti fyrirtækið, Pawnshop.is, í áberandi viðtali við Vísi þar sem hann meðal annars fagnaði því að sitja einn að veðlánabransanum. Það reyndist ekki alveg rétt því Sverrir Einar Eiríksson rekur fyrir álíka starfsemi með fyrirtæki sínu Kaupum gull. Nú karpa þeir á Facebook.
Kristján Markús á að baki langan sakaferil, en fyrir ríflega ári var hann ákærður fyrir að koma barnsmóður sinni ekki til hjálpar þegar hún lést úr ofneyslu fíkniefna. Áður hafði unnusta hans látist við ofneyslu fíkniefna í borginni Algeciras á Spáni. Þá eru ótalin öll ofbeldisbrotin sem hann hefur gerst sekur um. Skeljagrandinn sem þeir eru kenndir við vísar til heimilis þeirra bræðra en árið 2003 voru þeir ákærðir fyrir hrottafegna árás þar. Kristján Markús fékk tæplega fimm ára dóm árið 2015 fyrir fimm ofbeldisbrot.
Samkeppnisaðili Kristjáns Markúsar er hins vegar engin ofbeldismaður, þó hann eigi vissulega að baki skrautlega viðskiptasögu. Það má segja að Sverrir Einar Eiríksson hafi um tíma stundað næstum allt brask á gráu svæði sem hugsast getur á Íslandi. DV fór yfir feril hans árið 2017 en þar kom fram að Sverrir hefði rekið starfsmannaleigu fyrir hrun, þar áður selt Herbalife, en eftir hrun stofnað smálánafyrirtækið alræmda Hraðpeningar. Um tíma fór hann svo í útrás til Afríku. Þar stundaði hann stundaði viðskipti með demanta á árunum 2009 til 2011. Að lokum sneri hann sér að núverandi starfsemi, Kaupum gull.
Fyrir um mánuði síðan deilir Kaupum gull viðtali við Sverri á Vísi og verður ekki betur séð en borgað hafi verið undir hana svo færslan lifði lengur á Facebook. Við þá færslu skrifar fyrirtæki Kristjáns Markúsar nokkurs konar ögrun á dögunum. „Ég er sanngjarn og það er komin tími á samkeppni. Allavega eru mínir viðskiptavinir yfirleitt að flýja ræningja sem sat einn á markaði og komst upp með að níðast á fólki bara fyrir að eiga ekki pening,“ skrifar fyrirtækið Pawnshop.
Fyrirtæki Sverris svarar og virðast menn ískaldir þar á bæ. „Pawnshop Ísland það er þvílík bragabót fyrir almenning að fá þig á markaðinn, leiðinlegt að þú hafir ekki getað byrjað fyrr.“ Þá skrifar Pawnshop önnur skilaboð: „Nei nei nei Kallinn bara farinn að óttast samkeppni og auglýsir á fullu. Komið frekar til mín vinir. ÉG KAUPI ALLT!!!! Og nóg til 777-3333 Pawnshop.is.“ Aftur blikkar ekki Sverrir og skrifar: „Pawnshop Ísland bara besta mál að fá samkeppni. Gangi þér allt í haginn“. Ljóst er að Sverrir hefði getað fjarlægt þessi skilboð en gerir það ekki.































Athugasemdir