Þorsteinn Friðrik Halldórsson, blaðamaður á Fréttablaðinu og fyrrverandi stjórnarmaður í Heimdalli, afhjúpar í skoðanapistli sem birtist í blaðinu í dag hvernig stjórnendur misnota jafnlaunavottun til þess að borga starfsfólki ekki hærri laun. Þorsteinn segir jafnlaunavottun skelfilega stefnu sem sé fyrst og fremst Viðreisn um að kenna.
Þorsteinn segir að jafnlaunavottun hafi ýmsar afleiðingar. „Rétt fyrir síðustu áramót var greint frá nýrri rannsókn á upplifun stjórnenda á áhrifum jafnlaunavottunar. Niðurstöðurnar voru í senn athyglisverðar og fyrirsjáanlegar. Rannsóknin byggði á viðtölum við stjórnendur hjá fyrirtækjum og stofnunum og var upplifun flestra viðmælenda sú að vottunin hefði að einhverju leyti önnur áhrif en markmiðið var með lagasetningu hennar. Hægt væri að uppfylla skilyrði jafnlaunavottunar þótt kynbundinn launamunur væri til staðar,“ segir Þorsteinn.
Hann vitnar svo í upplifun atvinnurekenda af þessu. „Það er ekki nóg með að jafnlaunavottunin sé gagnslaust tól, eða „tálsýn“, eins og sumir viðmælendur komust að orði, heldur er hún beinlínis íþyngjandi fyrir bæði atvinnurekendur og launþega, en á ólíkan hátt. Fyrir atvinnurekendur felur jafnlaunavottunin í sér „aukið skrifræði“ og „tilfærslu ákvörðunarvalds“ til miðlægra stjórnenda og vottunaraðila. Óvissan sem fylgir reglulegum úttektum vottunaraðila gerir atvinnurekendum erfiðara fyrir að bregðast við ef starfsmaður fær betra tilboð annars staðar.“
Þorsteinn segir svo atvinnurekendur hafa viðurkennt fyrir sér að þetta gagnist þeim helst til að halda niðri launum. „Sumir stjórnendur viðurkenndu undir nafnleysi að þeir nýttu vottunina sem yfirvarp til þess að komast auðveldlega hjá því að veita starfsfólki launahækkun. Göfuga jafnlaunavottunin getur þannig nýst atvinnurekendum til þess að halda launum niðri. Eflaust má finna vísindaskáldskap frá síðustu öld þar sem dystópískri sýn á framtíð kapítalismans er lýst með svipuðum hætti,“ segir Þorsteinn og er í engum vafa um hver ber ábyrgð:
„Orðin sem stjórnendur nota til þess að lýsa jafnlaunavottuninni eru áfellisdómur yfir lagasetningunni sem þingflokkur Viðreisnar stóð stoltur að. En rannsóknin fékk litla athygli í fjölmiðlum og ekki þótti ástæða til þess að spyrja þingmenn flokksins, sem er tíðrætt um jafnrétti og viðskiptafrelsi, hvað þeim þætti um þá skoðun stjórnenda að jafnlaunavottunin væri gagnslaus fyrir jafnrétti og íþyngjandi fyrir atvinnulífið.“































Athugasemdir