Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Katla er látin einungis 57 ára: „Þakka þér fyrir að taka á móti mér sem lítilli 7 ára stúlku“

Katla er látin einungis 57 ára: „Þakka þér fyrir að taka á móti mér sem lítilli 7 ára stúlku“

Katla Þor­steins­dóttir er látin en hún var ein­ungis 57 ára að aldri. Katla lést á heim­ili sínu eftir bar­áttu við krabba­mein síð­ustu ár. Margir minn­ast hennar í Morg­un­blað­inu en hún var borin til grafar í dag. Katla var bar­áttu­kona fyrir betri heim en hún starf­aði um 10 ára skeið sem fram­kvæmda­stjóri Reykja­vík­ur­deildar Rauða kross Íslands. Katla starf­aði einnig sem lög­fræð­ingur hjá Alþjóða­húsi, Útlend­inga­stofnun og hjá Útfar­ar­stofu Kirkju­garð­anna.

Vinafólk hennar, Dóra og Guð­mundur, segja sárt að sjá eftir svo lífs­glað­ari konu. „Það er óend­an­lega sárt að Katla sé horfin á braut svona allt, allt of snemma. Á svona stundu er erfitt að skilja til­gang lífs­ins, hvers vegna lífs­glöð kona í blóma lífs­ins er tekin burt frá öllu ynd­is­lega fólk­inu sínu sem elskar hana svo mikið,“ segja þau.

Þau segja hana hafa sýnt þetta þegar hún greind­ist með krabba­mein. „Það var aðdá­un­ar­vert að fylgj­ast með hvernig Katla tókst á við veik­indi sín. Hún leit alltaf á það jákvæða í aðstæðum hverju sinni, með æðru­leysið að vopni. Litla ferða­flugan ákvað strax að láta veik­indin ekki stoppa ferða­lögin sín. Þannig vildi hún hafa það og þannig var það allt til enda,“ segja þau.

Elín María vin­kona hennar seg­ist muna sakna hennar til ævi­loka. „Að sitja og skrifa kveðju­orð til þín, elsku gullið mitt, er svo sárt. Hjarta mínu blæðir og sárs­auk­inn er nístandi. Fallega, trausta, skemmti­lega og jákvæða vin­kona mín með frá­bæra húmor­inn þinn. Það var hrein­lega allt gott við þig og ég elskaði ljúfu og góðu sam­veru­stund­irnar okkar. Það sem við gátum talað og hlegið og einn vinnu­dagur í heita pott­inum flaug hjá eins og sek­úndu­brot,“ segir Elín.

Hún segir það hafa verið áfall þegar Katla greind­ist með krabba­mein. „Það var mikið áfall þegar þú greind­ist með krabba­mein 2015. Þú tókst þessum fréttum af stóískri ró og miklu æðru­leysi með börnin þín og systkin þér við hlið. Fyrir rúmu ári þyrmdi yfir okkur, þegar ljóst var að meinið hafði tekið sig upp. Þú hugg­aðir fólkið þitt og vini, stað­ráðin í að nýta tím­ann vel og njóta hvers dags. Þú barð­ist eins og sönn hetja til síð­asta dags. Þrátt fyrir hrak­andi heilsu og heims­far­aldur þráði ferða­flugan að kom­ast með Þokunum sínum á vit ævin­týr­anna einu sinni enn. Við héldum í sól­ina til Tenerife þar sem við nutum sam­veru og vin­áttu í miklum kær­leik. Þessar dýr­mætu minn­ingar munum við geyma í hjörtum okkar,“ segir Elín.

Stjúp­dóttir Kötlu, Lilja, skrifar ein­stak­lega fal­lega minn­ing­ar­grein um hana þar sem hún þakkar henni fyrir að hafa tekið vel á móti sér. „Að skrifa þessi fátæk­legu orð til þín elsku Katla er þyngra en tárum taki. Ég man dag­inn sem þú komst inn í líf mitt. Ég var 7 ára, þú 23 ára. Síðan eru liðin 33 ár. Mig langar fyrst og fremst að þakka þér fyrir allt sem þú hefur verið mér í þessu lífi. Þakka þér fyrir að taka á móti mér sem lít­illi 7 ára stúlku, flétta á mér hárið og sauma á mig föt. Þakka þér fyrir þol­in­mæð­ina þegar ég var 14 ára óþekkur ung­lingur. Þakka þér fyrir öll ferða­lögin okkar saman. Þakka þér fyrir að vera áfram stór hluti af mínu lífi eftir að pabbi lést þegar ég var 20 ára. Þakka þér fyrir að hlusta og vera til staðar þegar ég var 31 árs í sál­ar­ang­ist. Þakka þér fyrir að vera amma barn­anna minna. Þakka þér fyrir að vera stjúp­mamma mín,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ