Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Leigubílstjórinn sem lá látinn mánuðum saman í Breiðholtinu: „Við vorum náin“

Leigubílstjórinn sem lá látinn mánuðum saman í Breiðholtinu: „Við vorum náin“

Í fyrra­sumar fannst lík í rjóðri fyrir neðan Erluhóla í Breið­holt­inu. og hafði þá verið þar í nokkurn tíma. Ekki er fylli­lega ljóst hvenær hann lést en ljóst er að það voru nokkrir mán­uðir síðan.

Það tók lög­regl­una langan tíma að bera kennsl á líkið. Síðar kom í ljós að það var af Erni Ing­ólfs­syni, 83 ára gömlu leigu­bíl­stjóra úr Breið­holt­inu. Hann var 83 ára gam­all er hann lést. Enginn hafði til­kynnt um hvarf hans og virt­ist eng­inn vita að hann væri týndur.

Síðar steig dóttir hans, Álf­heiður, fram í við­tali við Mannlíf. „Við vorum náin en ég var sú eina sem hann hélt sam­bandi við. Hann vildi ekki vera í sam­bandi við neina aðra,“ sagði Álf­heiður um sam­band þeirra feðgina.

Örn Ing­ólfs­son heit­inn.

Örn var mik­ill ein­fari að sögn Álf­heiðar en hann starf­aði lengi sem leigu­bíl­stjóri í Reykja­vík. Hann skilur eftir sig eina dóttur og níu barna­börn en önnur dóttir hans lést arið 2000. Hvergi leið Erni þó betur heldur en úti í sveit segir Álf­heiður sem bjó lengi með föður sínum í Stað­ar­sveit á Snæ­fells­nesi. Hún kall­aði hann gjarnan Adda.

„Við vorum náin en ég var sú eina sem hann hélt sam­bandi við. Hann vildi ekki vera í sam­bandi við neina aðra,“ segir Álf­heiður Arn­ar­dóttir, dóttir Arnar Ing­ólfs­sonar sem fannst lát­inn í Breið­holti, um föður sinn.

Örn var mik­ill ein­fari en hann starf­aði lengi sem leigu­bíl­stjóri í Reykja­vík. Hann skilur eftir sig eina dóttur og níu barna­börn en önnur dóttir hans lést árið 2000. Hvergi leið Erni þó betur heldur en úti í sveit segir Álf­heiður sem bjó lengi með föður sínum í Stað­ar­sveit á Snæ­fells­nesi. Hún kall­aði hann gjarnan Adda.

„Okkur lík­aði mjög vel sveita­lífið saman. Pabbi var mjög orð­hepp­inn og gat verið skemmti­legur maður. Hann var mjög góður við mig og hélt mikið upp á mig. Hann var mjög stoltur af mér sem faðir, það er ekk­ert laun­ung­ar­mál.“

Lík Arnar heit­ins fannst í rjóðri fyrir neðan Erluhóla og hafði þá verið þar í nokkurn tíma. Ekki er fylli­lega ljóst hvenær hann lést en ljóst er að það eru nokkrir mán­uðir síðan. Enginn hafði til­kynnt um hvarf hans og virt­ist eng­inn vita að hann væri týndur. Það tók lög­regl­una því langar tíma að bera kennsl á Örn sem var 83 ára þegar hann lést.

„Það var svo erfitt að bera kennsl á líkið því pabbi var með falskar tennur og það voru engir fing­ur­gómar eftir þar sem hann hafði legið svo lengi þannig að það var svo lítið eftir,“ segir Álf­heiður.

Álf­heiður situr nú uppi föð­ur­laus en það er ekki eini miss­ir­inn sem hún hefur upp­lifað á lífs­leið­inni. Árið 2000 lést systir hennar, Sigrún Gabrí­ella Arn­ar­dóttir, og fyrir tveimur árum missti hún mann­inn sinn ungan úr Alzheimer.

„Þannig að maður er öllu vanur. Því miður er lífið svona og ég er ekki að gera neina drama­tík úr þessu. Í sjálfu sér var þetta ekki mikið áfall, þetta er nú lífs­ins gangur og pabbi var orð­inn mjög full­orð­inn og slappur. Ég var svo sem ekki hissa þegar bankað var upp hér og mér til­kynnt and­látið,“ segir Álf­heiður.

Álf­heiður Arn­ar­dóttir hefur nú misst föður sinn. Áður hefur hún misst bæði systur sína og eig­in­mann.

Nágrannar Arnar hafa lýst honum sem indælum manni og fyr­ir­myndar nágranna. Aðspurð seg­ist Álf­heiður hafa fundið á sér að eitt­hvað bját­aði á og seg­ist hafa verið komin á fremsta hlunn með að lýsa eftir föður sínum. „Ég hafði ekki heyrt lengi í honum og var búin að vera að hugsa það að ég þyrfti að fara heyra í honum. Ég fékk ein­hverja til­finn­ingu um þetta því ég átti alveg von á þessu eftir okkar síð­asta sam­tal því þá var þungt yfir honum og hann kvart­aði yfir því hversu slappur hann var. En ég átti kannski ekki von á því að hann fynd­ist úti í móa,“ segir Álf­heiður. Síðast ræddu þau feðginin saman í síma fyrir hálfu ári, 15. mars en þau voru vön að heyr­ast í síma á tveggja til fjög­urra vikna fresti.

„Hann hefur lík­lega dáið fljót­lega eftir það. Mér fannst hann mjög slappur í þessu sím­tali og hann kvart­aði mjög, eitt­hvað sem hann var ekki vanur að gera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ