„Við sjáum þig kannski ekki mikið oftar, því ég veit að það á að gera aðra tilraun til að senda þig í frí. Vonandi tekst það og gangi þér vel með það. Vonum að aðstæður geti verið þannig að Víðir geti verið í fríinu.“
Svo lauk Ingólfur Bjarni Sigfússon viðtali sínu við Víði Reynisson, deildarstjóri almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, í hádegisfréttum RÚV. Víðir fær því loksins frí þar sem gosið reyndist minna en menn héldu. Óhætt er að segja að mikið hefur mætt á Víði undanfarið en eldgos í viðbót við COVID hefði bætt gráu ofan á svart. Af brosi Víðis að dæma þegar Ingólfur Bjarni sendi hann í fríið þá er það langþráð.
Fyrr hafði hann lýst ástandinu svo: „Við erum með hættustig í gangi. Ástæðan fyrir því að við förum upp á neyðarstig er óvissan þegar svona atburður er. Það tekur nokkra klukkutíma til að fá betri mynd af þessu. Þegar við sáum í morgun hver raunveruleg staðan var, bara lítið gos að ræða þá lækkuðum við okkur niður á hættustig.“
Víðir er þó ekki áhyggjulaus. „Svæðið er ekki lokað en það er hættulegt og varasamt. Gott að hafa í huga ef fólk ætlar að labba þangað þá eru þetta sex til átta tímar sem það tekur að ganga frá, til dæmis bílastæðinu við Bláa lónið, yfir úfið hraun og það er erfitt. Svo er tveggja stiga hiti og slydda. Þetta er bara ganga fyrir vant fólk og velbúið. Svo ég er ekki að mæla með því, en svæðið er ekki lokað. Það er samt varasamt, bæði gasmengunin og svo geta aðstæður breyst mjög hratt,“ sagði Víðir.
Víðir loksins kominn í langþráð frí: „Við sjáum þig kannski ekki mikið oftar“































Athugasemdir