Sverrir nokkur hefur fengið sig fullsaddan af vitleysingum sem spóla stanslaust á Selfossi. Hann kvartar undan þessu innan Facebook-hóps íbúa þar.
„Núna vil ég að sveitarfélagið drullist til að gera eitthvað til að stoppa þessa vitleysinga sem eru endalaust að spóla á bílaplaninu við Sunnulækjaskóla. Þetta er orðið fokking óþolandi! Það klikkar ekki að ef það er bleyta eða hálka, þá eru einhverjir tilitslausir vitleysingar mættir til að halda manni vöku,“ skrifar Sverrir.
Ein kona stingur upp á því að dreifa nöglum um lóðina. Þá væri þetta úr sögunni að hennar sögn. „Já það gæti óvart gerst en ég held að starfsmenn skólans yrðu ekki hrifnir. Það væri líklega best að setja hraðahindranir, grindverk eða eitthvað annað til að planið henti illa fyri spól og drift,“ svarar Sverrir.































Athugasemdir