Sigurlaug nokkur, íbúí í Norðlingaholti, segir barnaperra hafa reynt að tæla dóttur sína upp í bláan bíl í gærkvöldi. Viðkomandi reyndi að lokka stúlkuna til sín með nammi en stúlkan lét ekki glepjast.
Sigurlaug greinir frá atvikinu í hverfishópi íbúa á Facebook. Þar segir hún:
„Dóttir mín var að hjóla heim núna rétt rúmlega 9,það stoppaði hana lítill blár bíll sem var maður í og spurði hana hvort hun vildi far hann væri með nammi,gerðist við Rauðavað. Hun panikkaði og brunaði heim. Vildi láta vita af þessu, endilega hafið augun opin.“
Fjöldi íbúa bregst illa við tíðindunum og hvetja til þess að atvikið sé tilkynnt til lögreglu. Sigurlaug staðfestir að svo hafi verið gert. Sirra er ein þeirra sem fylltist óhug. „Ojjjjj,“ segir Sirra.
Berglind er fegin að stúlkan hafi sloppið. „Úff, gott að hún brást rétt við. Takk fyrir að láta vita,“ segir Berglind. Frey var líka brugðið. „Þetta er grafalvarlegt…það þarf að hafa samband við lögregluna,“ segir Freyr.
Sigurður vonast til að fá frekari upplýsingar um perrann. „Endilega setja inn allar upplýsingar sem koma í ljós varðandi þetta hérna inn. Þetta hljómar eins og aðili sem á ekkert erindi neinsstaðar og þá er best að sem flestir séu upplýstir,“ segir Sigurður.
Rúnar vill líka vera upplýstur. „Andskotans perra helvíti. Væri gott að fá update af þessu,“ segir Rúnar.































Athugasemdir