Haukur nokkur, íbúi í Sandgerði, trúði varla sínum eigin augum þegar inn um bréfalúguna barst fallegur og óvæntur páskaglaðningur á dögunum. Glaðningurinn var frá tveimur ungum stúlkum í bænum sem virðast hafa glatt fleiri bæjarbúa með svipuðu.
Haukur segir frá gleðinni í hópi bæjarbúa á Facebook og birtir þar mynd af páskaglaðningnum óvænta. Þar segir hann:

„Kæru vinir, hingað á Hlíðargötuna barst fallegur glaðningur frá tveimur ungum stelpum, þeim Eddu og Íssól. Þær settu óumbeðið inn um lúguna bæði nammi og pening með miða þar sem okkur var óskað gleðilegra páska. Góðverk og hlýhugur sem þessum ber að fagna frá svo ungum einstaklingum. Takk fyrir okkur og vona að þið eigið yndislega páska. Þið fáið mikið hrós frá okkur fyrir fallega framtaksemi.“
Sigurbjörg býr líka í Sangerði og fékk samskonar sendingu á dögunum. „Við fengum einmitt 2 bréf, lítinn stein og 10 krónu pening inn um lúguna hjá okkur,“ segir Sigurbjörg.
Andrea samgleðst með þeim. „Vá en yndislegt, segir Andrea. Það gerir Jóhanna einnig. „En yndislegt. Gaman að heyra svona fallegar sögur,“ segir Jóhanna. Og Gunnhildur gleðst líka. „Manni hlýnar í hjartanu, segir Gunnhildur.































Athugasemdir