Í gær hefði Jónína Benediktsdóttir orðið 64 ára gömul, en hún var bráðkvödd á heimili sínu í desember síðastliðnum.
Jóhanna Vilhjálmsdóttir minnist vinkonu sinnar með minningarorðum sínum úr jarðarför Jónínu í tilefni dagsins.
Í minningarorðunum segist Jóhanna vera óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið að njóta vináttu Jónínu í yfir 20 ár.
Hún segir engan vera eins Jónína var og finnst erfitt að lýsa henni:
„Lýsingar eða orð verða eitthvað svo fátækleg – því hún var svo stór og mikil manneskja – svo margslungin og var ótrúlega margt til lista lagt. Orðin sem koma upp í hugann eru stórbrotin, mögnuð, kjörkuð, frumkvöðull, húmoristi – já og eiginlega frábær uppistandari. Ræðan í brúðkaupi Jóhönnu Klöru dóttur Jónínu og Stefáns er orðin fræg því einn frægasti uppistandari landsins sem tróð upp í brúðkaupinu bliknaði í samanburðinum. Hún var eldhugi, töffari, listræn, frábær kokkur, heimsborgari, óhefðbundinn, uppátækjasöm – einhver sagði náttúruafl – en sem vinkona – var hún einfaldlega konan með stærsta hjartað, trú, trygg, kærleiksrík og umhyggjusöm – og gjafmildi hennar engu líkt,“ skrifar Jóhanna.
„Jónína kom til dyranna eins og hún var klædd og var ekkert að setja sig í stellingar og hvað þá að láta setja sig í box,“ skrifar Jóhanna. Hún segir að það hafi ekki verið til snobb í henni og fyrir henni hafi allir verið jafnir. „Jónína var líka búin að upplifa að eiga allt en einnig að standa á götunni með börnin sín og eiga í engin hús að venda. En hún reis alltaf upp og kom alltaf sterk til baka,“ heldur Jóhanna áfram.

Jónína var ekki gallalaus skrifar Jóhanna, en segir hún það ekki hafa farið fram hjá þjóðinni, því hún var mjög opinská um vandamál sín.
Segir hún Jónínu ekki hafa hikað við að taka slaginn fyrir fjölskyldu sína og vini ef henni fannst á þá hallað, þó hún hefði kannski betur látið það ógert á tíðum, því það hafi tekið sinn toll af henni. Jónína hafi verið viðkvæm sál og tók hún margt inn á sig og átti erfitt með að sleppa tökunum af sumu.
Jóhanna segir hún Jónínu hafa gefið afar mikið af sér og gert óteljandi góðverk í hljóði, hjálpað fjölskyldum og skjólstæðingum með kærleiksríkum stuðningi, hvatningu og einnig veraldlegum gjöfum og peningagjöfum. Þetta hafi Jónína gert líka þegar hún sjálf átti lítið og á erfiðum tímum í hennar lífi.
Jóhanna segir að sjálf hafi hún ekki farið varhluta af örlæti Jónínu, frekar en aðrir sem hana þekktu: „Hún gaf svo mikið af sér, ást, hvatningu, hrós og gjafir. Hún hvatti mig endalaust áfram, var dugleg að láta í sér heyra og segja okkur hve vænt henni þætti um okkur og vildi helst fá okkur heim.“
Þegar Jóhanna og fjölskylda var á Íslandi síðasta sumar hittu þau Jónínu, sem tók ekki annað í mál en að borga reikninginn á veitingahúsinu sem þau borðuðu saman á. Ekki nóg með það heldur hljóp Jónína út í bíl til að ná í lambalæri sem hún vildi endilega gefa fjölskyldunni. Jóhanna segir Jónínu líka hafa boðið þeim að búa í húsinu sínu, hún myndi bara finna sér einhvern annan stað til að búa á á meðan.
Þetta segir Jóhanna bara vera lítil dæmi um góðvild Jónínu, sem ætlaðist aldrei til að fá neitt til baka. Segir Jóhanna jafnframt að hún og eiginmaður hennar, handboltaþjálfarinn Geir Sveinsson, hafi litið á Jónínu sem hluta af fjölskyldunni, enda hafi það verið hún sem hafi leitt þau saman.































Athugasemdir