Það má ætla að nokkur kostnaður falli á skattgreiðendur vegna komufarþega sem hingað koma frá dökkrauðum löndum samkvæmt skilgreiningu Evrópsku sóttvarnastofnunarinnar og eru ekki með vottorð um bólusetningu. Frá og með 1. apríl verða þeir að fara í sérstök sóttvarnahús stjórnvalda og dvelja þar í fimm daga sóttkví.
RÚV greinir frá því að þetta fólk verði sent með rútu á hótel þar sem ríkissjóður greiðir allt. Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurnesjum, segir við RÚV: „Þeir sem falla undir þessu nýju reglu fara héðan í rútu og á hótel. Og verður það þá lokað inn á herbergi í fimm daga? Já væntanlega já, þannig er þetta sett upp.“
Hann segir einnig að mikil fjölgun sé á farþegum til landsins nú. Síðustu þrjá daga komu um 700 farþegar á dag. „Ég gær kom einkaþota og við vísuðum því fólki frá landinu. Það fór í morgun eftir að tólf tíma, lögbundin hvíld áhafnar var búin.“































Athugasemdir