Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Allt á hliðina vegna nýrra laga um sóttvarnarhótel – „Hættið að væla”

Allt á hliðina vegna nýrra laga um sóttvarnarhótel – „Hættið að væla”

Allt sam­fé­lagið er farið á hlið­ina vegna nýrra laga um sótt­varn­ar­hótel, sem tóku gildi í gær 1.april.
Lög­fræð­ing­ur­inn Ómar R. Valdi­mars­son hefur stigið fram og boðið ókeypis aðstoð við mála­rekstur vilji fólk láta reyna á laga­heim­ild þving­aðrar sótt­kvíar á sótt­varn­ar­hót­eli. Orðrétt segir í Facebookfærslu Lög­manns­stof­unnar Valdi­mars­son:

„Ef ein­hver vill láta reyna laga­heim­ild á þving­aðri sótt­kví í gúlagi „Hér eru íslenskar gæsalappir“stjórn­valda, við kom­una til lands­ins, býðst lög­manns­stof­an til þess að reka málið fyr­ir við­kom­andi án þess að rukka hana/​hann um krónu.“

Hættið að væla

Svein Andri Sveins­son hæsta­rétt­ar­lög­maður er allt annað en sam­mála eins og sjá má á skrifum  á Facebooksíðu hans:

„Við sem sýnum sótt­varna­sam­stöðu og neitum okkur um utan­lands­ferðir fögnum þessum nýj­ustu og löngu tíma­bæru sótt­varna­ráð­stöf­unum. Ef ein­hver kemur til mín og biður mig um að sækja mál fyrir sig út af dvöl í þessu lúxus-sótt­kví­ar­hót­eli, mun ég segja við­kom­andi að hætta að væla. Sótt­varnir heillar þjóðar og almanna­heill eru mik­il­væg­ari en það hvort fólk taki út sótt­kví heima hjá sér eða á lúx­us­hót­eli. Laga­grund­völl­ur­inn er auka­at­riði.“

Telja brotið á frelsi fólks

Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata og Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, sem einnig er áheyrn­ar­full­trúi í vel­ferð­ar­nefnd, vilja láta kanna rétt­mæti nýrra laga um sótt­varn­ar­hótel. Þær telja báðar að um of mikið inn­grip í frelsi fólks sé að ræða. Fólk sem eigi um aðra kosti að velja en sótt­varn­ar­hót­els­vist eigi að vera und­an­skilið nýju lög­unum, sem efast er um að haldi vatni. Visir fjall­aði fyrst um málið.

Segir nei

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins, þver­neitar að sam­þykkja það að Vel­ferð­ar­ráð verði kallað úr páska­fríi til þess að funda um málið. Samþykki allra í nefnd­inni þarf til svo kall­aður verði  fundur.

Vill ræsa heilbrigðisráðherra út

Helga Vala Helga­dóttir, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, telur mik­il­vægt að heil­brigð­is­ráð­herra boði til fundar vel­ferða­ráðs. Hún telur að það sé brýnt að hægt sé að benda á  laga­stoð­ina  sem fylgir hertum aðgerðum.

Einn farinn

Ef marka má frétt á MBL.is hefur einn nú þegar óskað eftir því að fá að yfir­gefa sótt­varn­ar­hót­elið og kýs að láta reyna á laga­hlið­ina á vist­un­inni.

Fólk virðir ekki sóttkví

Á sama tíma ber­ast fréttir af því, hvað eftir annað, að fólk sem á að vera í sótt­kví sé að mæta upp á gossvæðið og á fleiri staði. Að því er virð­ist er bæði um Íslend­inga og erlenda ferða­menn að ræða. Talað er um að treysta verði fólki til þess að halda sótt­kví en það hefur ekki gef­ist of vel hingað til.

Alvar­leiki máls­ins

Hver er réttur þeirra sem settir eru í hættu með svona hátta­lagi ? Gerir fólk sér almennt ekki grein fyrir því að skæður heims­far­aldur er í gangi ? Ekki er búið að bólu­setja nema 23.698 manns á Íslandi auk þess sem stöðugt eru að ber­ast miður góðar fréttir af þróun Covid- 19 mála utan úr heimi og hér á landi. Bólu­settir bera í sér veiruna og geta smitað og veikst sjálfir. Fólk er að fá Covid- 19 oftar en einu sinni og margir  sem hafa fengið fengið veiruna eru enn ári síðar að berj­ast við að ná heilsu.

Börnin

Breska afbrigðið sem komið er til Íslands leggst harðar og í rík­ari mæli á börnin okkar sem ekki eru búin að taka út sinn þroska og ekki er vitað hver áfrifin verða á þau í fram­tíð­inni. Hér á landi hafa 29 mann­eskjur tapað bar­átt­unni við Covid- 19. Þessir 29 ein­stak­lingar áttu sér líf áður en veiran tók það frá þeim og þá frá fjöl­skydum og ást­vinnum. Gerir fólk sér grein fyrir álag­inu á heil­brigð­is­starfs­fólk sem og kenn­ara, leik­skóla­kenn­ara og allt fram­línu­fólkið okkar ?

Bólusetningar

Bólu­setn­ingar ganga hægt og ekki er útséð um hvenær lokið verður við að bólu­setja við­kvæm­ustu hópanna, 67 ára og eldri og þá sem eru með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Þetta fólk hefur haldið sig mjög til hlés í rúmt ár. Hver er réttur þess­arra hópa ?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ