Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Leifur Garðarsson hættir sem skólastjóri eftir óviðeigandi samskipti við konu

Mynd / Skjáskot RÚV.
Mynd / Skjáskot RÚV.

Á dögunum óskaði Leifur Garðarsson eftir því að láta af störfum sínum sem skóla­stjóri Áslands­skóla frá 1. apríl. Árdís Ármanns­dóttir, samskipta­stjóri Hafnar­fjarðar­bæjar, stað­festir þetta í samtali við

mbl.is

.

Sjá einnig: Leifur skóla­stjóri í leyfi vegna óeðlilegra samskipta við konur

Leifur S. Garðarsson, skóla­stjóri Áslands­skóla, var sendur í ótíma­bundið veikinda­leyfi frá störfum sínum í febrúar síðastliðnum eftir að upp komst um óviðeigandi samskipti hans við leikmann meistara­deildar kvenna í körfu­knattleik.

Leifur starfaði einnig sem körfubolta­dómari en snemma árs 2020 greindi Leifur frá því á samfélags­miðlum að leiktíð sinni sem körfubolta­dómari væri lokið vegna meiðsla.

Í janúar á þessu ári greindi KKÍ hins vegar frá því að krafta hans yrði ekki óskað til frambúðar vegna brota á siða­reglum líkt og Mannlíf greindi frá og var hann tekinn af dómara­skrá Körfuknatt­leiks­sam­bands Íslands.

Ástæðan eins og áður sagði voru ósæmileg samskipti við kvenkyns leikmann sem áttu sér stað á samskipta­miðlum snemma árs í fyrra og hefur Hafnar­fjarðarbær staðfest að áður hafi borist kvartanir vegna Leifs.

Sjá einnig: Skóla­skrifstofa Hafnar­fjarðar skoðar mál Leifs skóla­stjóra

Áður hefur Mannlíf greint frá óviðeigandi framkomu af hálfu Leifs, en stúlka sem hann þjálfaði eitt sinn steig fram og birti skilaboð sem hann hafði sent sér.
Skrifaði stúlkan á Twitter:
„22 ára gömul fékk ég þessi skilaboð frá þjálfara í deildinni. Mjög svo óviðeigandi frá rígfullorðnum giftum manni. Slík hegðun fjölmargra þjálfara sem ég veit um gagnvart ungum stúlkum í deildinni hefur liðist í öll þessi ár. #timeisup“

Í skila­boðunum stóð meðal annars:

Fanney … nú ferð þú að sofa stúlka 🙂 !

Svo góð og stillt

Tvær mannætur voru á röltinu í skóginum þegar þær sáu þvílíkt vel vaxna ljóshærða gellu … hún var með þvílík brjóst, mjótt mitti og allt í gangi.

Sonurinn sagði við pabbann: „Hey pabbi, eigum við að fara með hana heim og éta hana?“

Sjá einnig: Leifur áður verið rekinn – Sagður hafa varið sjálfan sig með fölsuðum aðgangi á Facebook

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá