Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Gylfi Þór telur Covid-stríðið standa fram á næsta ár: „Hér verða til nýjar sögur á hverjum degi“

Gylfi Þór telur Covid-stríðið standa fram á næsta ár: „Hér verða til nýjar sögur á hverjum degi“
Gylfi Þór Þor­steins­son Mynd / Facebook

„Ég held að við verðum að berj­ast allt þetta ár og eitt­hvað fram á það næsta. En ég er nátt­úr­lega ekki heil­brigð­is­mennt­aður. Þetta er bara til­finn­ing,“ segir Gylfi Þór Þor­steins­son sem hefur starfað sem umsjón­ar­maður far­sótt­ar­húsa í ríf­lega ár. „Ég var sann­færður um að stóra bylgjan kæmi í októ­ber síð­ast­liðin og það gekk eftir. Við sjáum til með þessa spá.”

Mikið hefur mætt á Gylfa og sam­starfs­fólki hans en hann hafði starfað í ríf­lega ára­tug innan við­brags­hóps Rauða kross­ins sem sinnir sál­rænni skyndi­hjálp í til­fellum slysa, nátt­úru­ham­fara eða ann­arra sorg­ar­við­burða í lífi fólk. „Rauði kross­inn leit­aði til mín þar sem ég hef reynslu af stjórnun. Ég var eini starfs­mað­ur­inn fyrstu þrjá mán­uð­ina. Reyndar var ég ráð­inn til þriggja mán­uða. Þeir eru ennþá að líða.”

Aukin trú á manneskjuna

Gylfi Þór er þriggja barna faðir, á hund­inn Trausta, hefur starfað til margra ára við fjöl­miðla og mark­aðs­mál og er mik­ill hesta­maður. „Ég var líka hár­módel þegar ég var 16 ára,” bendir Gylfi á. „En sá draumur dó út af nátt­úru­legum ástæðum!”

Gylfi hefur lagt nótt við dag í starfi sínu.

Mikið hefur mætt á Gylfa og sam­starfs­fólki hans í Covid-19 far­aldr­inum og segir Gylfi að vissu­lega hafi dag­arnir verið langir og að Trausti, hest­arnir og upp­komin börn hafi séð minna af honum. Sem dæmi má nefna að fyrstu þrjá mán­uð­ina bjó hann á sótt­varn­ar­hót­el­inu. „Ég fæ að fara heim á kvöldin. En ég er með síma­vakt­ina allan sól­ar­hring­inn.“ Hann hefur þó ekki staðið einn í bar­átt­unni. „Trú mín á mann­eskj­una hefur auk­ist. Allir hjálp­ast að við að gera það besta fyrir alla, hvort sem þeir eru í sótt­kví eða sýktir. Allar stofn­anir hafa tekið vel í beiðnir mína, flugi hefur meira að segja verið breytt til að koma fólki til heima­landa sinna.“

Hlutir breytast daglega

Gylfi Þór vinnur með 90 manna teymi í að sinna smit­uðum sjúk­lingum og fólki í sótt­kví en 2000 ein­stak­lingar í sótt­kví og 700 smit­aðir hafa farið í gegnum sótt­varn­ar­hús. Hann vinnur náið með öllum við­bragðs­að­ilum. „Heilt yfir litið hafa stjórn­völd staðið sig vel í þessu. Auðvitað má alltaf líta til ein­hvers sem betur hefði mátt fara en þegar að það þurfti að vinna hlut­ina hratt, eins og að opna sótt­varn­ar­hót­elin, var gengið til verks af krafti. Við réðum 80 manns, þjálf­uðum þau og komum af stað á tveim til þremur dögum. Það sýnir sam­heldn­ina innan kerf­is­ins. Hlut­irnir breyt­ast líka mjög hratt í Covid og við erum til­búin að fylgja nýjum ferlum og nýjum reglum dag­lega.”

Sem dæmi nefnir Gylfi að þegar hann náði loks­ins að setj­ast niður með börnum sínum í páska­kvöld­verð náði hann varla að taka upp gaff­all­inn áður en sím­inn hringdi. „Dómurinn var fall­inn og ég þurfti að rjúka. Þau sýndu því fullan skiln­ing.“

„Þetta er bara dómur, byggður á landslögum og ég hef ekki þann munað að gera annað en að hlíta því“

Aðspurður um hvað honum finn­ist um dóm­inn sem féll í hér­aðs­dómi á páska­dag um að ekki megi skikka fólk til dalar í sótt­kví­ar­húsi í sótt­kví segir hann ekki sitt að dæma. „Þetta er bara dómur, byggður á lands­lögum og ég hef ekki þann munað að gera annað en að hlíta því. Hlut­irnir breyt­ast hratt og við verðum bara að vinna með því. Þetta starf mót­ast dag­lega.”

Gylfi hefur aldrei ótt­ast smit.

Þríeykið ótrúlega

Að sögn Gylfa Þórs eru það aðeins um það bil 40 manns sem sinna Covid far­aldr­inum ein­vörð­ungu hér á landi, jafnt innan sótt­varn­ar­húsa og heil­brigð­is­stofn­ana. „Og svo má ekki gleyma þrí­eyk­inu. Þau eru þekkt sem and­lit þessa ástands en það má ekki gleyma hversu gríð­ar­lega mikla vinnu þau hafa lagt af hendi. Ég held að allir átti sig ekki á umfangi hennar.”

Aðspurður hvort hann hafi aldrei ótt­ast um að sýkj­ast sjálfur segir hann svo ekki vera. „Ég er reyndar nýlega bólu­settur en ekk­ert af okkar starfs­fólki hefur smit­ast. Það sýnir hversu góðar smit­varn­irnar sem við búum við eru.”

Þakklátt starf

Það er ekk­ert hik á Gylfa þegar hann er spurður um hvort starfið sé þakk­látt eður ei. „Starfið er langtum meira þakk­látt en van­þakk­látt. Við sinnum veiku fólki og við fáum þakkir fyrir. Hér upp­lifa börn öryggi kannski í fyrsta sinn í langan tíma og hér verða til nýjar sögur á hverjum degi.“

Hann rifjar upp bréf sem hann fékk frá erlendri konu sem hann, ásamt starfs­fólki sínu, sinntu í veik­indum hennar og náðu að aðstoða við að kveðja unnusta sinn hinstu kveðju. Þetta ein­staka bréf birtir Gylfi á Facebook síðu sinni.

Ætla að taka við af Davíð

Er Gylfi ekki orð­inn þreyttur? Hann hlær. „Hefurðu séð nýlega mynd af mér?! Auðvitað koma stundir sem maður er þreyttur en þá er ekk­ert betra en að fara upp í hest­hús, moka skít og ríða út. Tæki­færin gef­ast ekki oft en eru alltaf ánægju­leg.“

Næstu verk­efni liggja þegar fyrir hjá Gylfa. „Við höldum áfram á sömu braut. Við munum opna sótt­varn­ar­hús á Egils­stöðum vegna Norrænu og hugs­an­lega á fleiri stöðum líka. Það eina í stöð­unni er að horfa fram á veg­inn. Ef maður horfir aftur fyrir sig fær maður háls­ríg.

Aðspurður um hvað taki við að loknu Covid segir Gylfi Þór að það verði senni­lega tíu til fimmtán ára hvíld­ar­inn­lögn. „Og kannski fer Davíð ein­hvern tíma af Mogganum, það er aldrei að vita nema ég taki bara við af honum,” segir Gylfi Þór Þor­steins­son, léttur í lundu þrátt fyrir langa Covid daga. Og nætur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ