Margrét Friðriksdóttir segir að hún megi ekki hitta nákominn ættingja sinn án þessa að vera með grímu þrátt fyrir að viðkomandi sé með fyrri bólusetningu. Hún gagnrýnir hjúkrunarheimili viðkomandi fyrir of harða grímuskyldu en ættinginn verður hræddur þegar hann sér ekki framan í fólk.
„Hvað finnst ykkur um að mér er skipað að vera með grímu á hjúkrunarheimili hjá nánum ættingja sem búið er að bólusetja 1x með Pfizer sem samkvæmt WHO á að veita 90% vörn. En ættingi minn heyrir mjög illa og þarf að lesa af vörum, hún verður hálf óttaslegin og þekkir ekki fólkið sitt með grímur,“ segir Margrét á Facebook.
Hún segir að viðkomandi muni líklega ekki fá aðra sprautu svo mögulega verður þetta til lengdar. „En það er gætt 2 metra reglunnar inná hennar einkarými en þangað æddu starfsmenn inn með skít og skömm og skipuðu mér að vera með grímu. Þar að auki var ákveðið að sprauta hana ekki með seinni sprautunni því hún þótti þá of veikburða, en hún hlaut miklar aukaverkanir og leið ekki vel lengi á eftir fyrri spautuna.“
Margrét segir konunni enginn greiði gerður með þessu. „Ég tel þarna alvarlega brotið á mannréttindum hennar því það sem heldur henni gangandi er að fá heimsóknir frá sínum ættingjum en nú á að taka þá nánd frá henni í ofanálag sem ég get ekki séð að standist lög og brýtur gegn stjórnarskrá um friðhelgi heimilis.“































Athugasemdir