Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hólmfríður kom, sá og sigraði: „Kominn tími til að kona leiddi lista VG í Suðurkjördæmi“

Hólmfríður kom, sá og sigraði: „Kominn tími til að kona leiddi lista VG í Suðurkjördæmi“
Hólm­fríður Árna­dóttir: Ég var þá búin að vera í VG síðan árið 2000 og hugs­aði með mér að nú ætl­aði ég að hella mér á kaf í flokks­starfið. Ég fór í vel­ferða­hóp og síðan er ég búin að vera á kafi í alls konar vinnu að vel­ferð­ar­málum í flokknum. Mynd: Jenný Mirra Ringsted

Hólm­fríður Árna­dóttir, skóla­stjóri Sand­gerð­is­skóla, sigr­aði í próf­kjöri VG í Suð­ur­kjör­dæmi. Hún talar hér meðal ann­ars um ástæðu þess að hún skráði sig í VG á sínum tíma, starf sitt þar og áhersl­urnar. Svo talar hún um gosið. 

Hólm­fríður Árna­dóttir fædd­ist í mars árið 1973 og er elsta barn hjón­anna Jennýjar Jóakims­dóttur og Árna Dan Ármanns­sonar. Hún ólst upp á Grenivík og flutti til Akur­eyrar á ung­lings­ár­unum þar sem hún stund­aði fyrst nám við Mennta­skól­ann á Akureyri og síðar Verk­mennta­skól­ann á Akureyri en hún lauk ekki stúd­ents­prófi. Hún varð móðir ung, var 19 ára þegar hún eign­að­ist elsta barnið sitt, og vann við ýmis störf um ára­bil. Hún fór síðan í leik­skóla­kenn­ara­nám við Háskól­ann á Akureyri og útskrif­að­ist árið 2000.

„Ég fór að vinna sem leik­skóla­stjóri á Grenivík í eitt ár og vann þar síðan sem aðstoð­ar­leik­skóla­stjóri og deild­ar­stjóri í nokkur ár. Ég kláraði á þessum árum einnig nám sem grunn­skóla­kenn­ari frá KHÍ og síðar meist­ara­nám í mennt­un­ar­fræðum frá HA árið 2013.“ 

Hér er ótrú­lega fal­leg nátt­úra og margar hjóla- og göngu­leiðir, skemmti­legir veit­inga­staðir og alls konar afþrey­ing.

Hólm­fríður vann í nokkur ár við Brekku­skóla á Akureyri og fór svo að vinna sem sér­fræð­ingur á Miðstöð skóla­þró­unar við Háskól­ann á Akureyri og kenndi auk þess við kenn­ara­deild háskól­ans. Hún var í björg­un­ar­sveit fyrir norðan í ára­tug og það var mikið að gera. Hún á fjögur börn og þar af tvö með fyrr­ver­andi manni sínum og tvö með núver­andi manni sínum en hann átti auk þess eitt barn fyrir. Hólm­fríður les mjög mikið og helst glæpa­sögur, hún hleypur, veiðir og ferð­ast á inn­an­lands á sumrin ásamt því að vera í við­bragð­steymi Rauða kross­ins á Suð­ur­nesjum. 

Velferðarmálin 

Gamall bekkj­ar­bróðir Hólm­fríðar hringdi í hana árið 2000 og spurði hvort hún vildi ekki styðja sig af því að hann væri að fara í próf­kjör hjá VG. 

„Ég sagði „já“, enda hef ég alltaf verið póli­tísk en ég var ekki skráð í neinn flokk. Ég skráði mig í VG í kjöl­farið og hef alltaf fundið mig þar; mér finnst áherslur VG vera lík­astar áherslum mínum í líf­inu.“ 

Það eina sem Hólm­fríður gerði næstu árin varð­andi VG var að greiða árgjaldið og mæta á kjör­stað þegar kosn­ingar voru haldnar. Jú, hún seg­ist stundum hafa kíkt á opna fundi. 

Eig­in­maður Hólm­fríðar er frá Sand­gerði og ákváðu hjónin að flytja þangað fyrir fimm árum síðan og fékk hún starf sem skóla­stjóri við Sand­gerð­is­skóla. 

„Ég var þá búin að vera í VG síðan árið 2000 og hugs­aði með mér að nú ætl­aði ég að hella mér á kaf í flokks­starfið. Ég fór í vel­ferða­hóp og síðan er ég búin að vera á kafi í alls konar vinnu að vel­ferð­ar­málum í flokknum. Við vorum mest­megnis að huga að heil­brigðis- og mennta­málum og svo­lítið líka hús­næð­is­málum. Ég hef auk þess verið í mennta- og menn­ing­ar­mála­hóp en við erum að vinna nýja mennta­stefnu og þar liggur áhugi minn. Við þurfum að styðja miklu betur við ungt barna­fólk; það þarf að lengja fæð­ing­ar­or­lofið enn frekar, það þarf að sjá til þess að börn kom­ist í leik­skóla og stytt­ing vinnu­vik­unnar er líka eitt­hvað sem er gott fyrir fjöl­skyldu­fólkið sem myndi þýða meiri tíma með börn­unum. Ég var í nokkur ár ein­stæð móðir á meðan ég var í námi og ég segi oft að það hafi kostað mig blóð, svita og tár. Það var rosa­lega mikil vinna að púsla þessu saman. Mér finnst auk þess að við þurfum að horfa á miklu fjöl­breytt­ari mennt­un­ar­mögu­leika í land­inu og náms­menn eiga að geta fengið styrki í mun meira magni. Það eiga ekki að vera íþyngj­andi náms­lán eins og er í dag. Það er búið að stíga viss skref í þessa átt en ég vil sjá Mennta­sjóð náms­manna í styrkja­formi og ég vil meiri stuðn­ing fyrir ungt fólk sem er að byrja lífið. Það á ekki að vera þannig að ungt fólk detti í kulnun rétt upp úr þrí­tugu.“ 

Hólm­fríður segir að efla þurfi heilsu­gæsl­una á Suð­ur­nesjum og bendir á að það séu engir með heim­il­is­lækni sinn á Suð­ur­nesjum. „Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að hafa heim­il­is­lækni.“ 

Hún nefnir líka geð­heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir börn. 

„Við þurfum að koma á góðum stuðn­ingi við börn strax í leik­skóla. Það þarf að styðja við þau og sér­þarfir þeirra sem og for­eldr­anna. Og það þarf að halda því áfram þegar þau eru komin í grunn­skóla. Við þurfum að gæta þess að fara í alvöru eftir námskrá og lögum. Það eiga allir rétt á námi og þjón­ustu við hæfi.“ 

Við þurfum að bæta okkur hvað varðar aðlögun inn­flytj­enda.

Innflytjendur um 25% 

Hólm­fríður segir að af um 28.000 íbúum á Suð­ur­nesjum séu 22-25% af erlendum upp­runa. 

„Við erum þar með mjög stórt sam­fé­lag sem er mik­ill auður. Þarna er fullt af flottum ein­stak­lingum sem hafa ótrú­lega mikið fram að færa. Við þurfum að bæta okkur hvað varðar aðlögun inn­flytj­enda. Við þurfum að vera með miklu mark­viss­ari stefnu og utan­um­hald af því að þetta er fólk sem hefur gríð­ar­lega mikið að gefa okkur. Mér finnst vera mik­il­vægt að stofn­anir og fyr­ir­tæki end­ur­spegli sam­fé­lagið og í raun­inni ætti fjórð­ungur starfs­fólks í hverri stofnun og fyr­ir­tæki að vera af erlendu bergi brot­inn ef við ætlum að end­ur­spegla sam­fé­lagið. Við þurfum að hlusta á inn­flytj­endur og mér finnst líka að við þurfum að vera með mark­viss­ari aðlögun hvað varðar tungu­málið og menn­ing­una; að það sé aðgengi­legt fyrir inn­flytj­endur að fá fræðslu á eigin tungu­máli og hafi gott aðgengi að fjöl­breyttri íslensku­kennslu. Hólm­fríður Hilma Sig­urð­ar­dóttir er að vinna gott starf í Reykja­nesbæ þar sem hún er að inn­leiða þessa sýn í allt starf bæj­ar­ins þannig að allir séu með­vit­aðir um hvernig eigi að þjón­usta inn­flytj­endur, hvert eigi að beina þeim og annað slíkt. Við erum að byrja en við þurfum að gera miklu betur og sér­stak­lega hvað varðar börnin. Börn inn­flytj­enda fara síður til dæmis í tón­list­ar­starf og íþróttir. Þetta er eitt­hvað sem við þurfum að skoða vel og sjá til þess að þau séu þátt­tak­endur og fái að alast upp í þessu flotta sam­fé­lagi sem við eigum saman.“ 

Gríðarlegt atvinnuleysi

Um 24% vinnu­færs fólks á Suð­ur­nesjum eru án atvinnu. Inn­flytj­endur eru um 40% af þeim. 

„Þeir sem eru búnir að vera lengst atvinnu­lausir og eru jafn­vel að detta af bótum núna fara á fram­færi sveit­ar­fé­laga eins og sagt er. Það er vitað að lang­tíma atvinnu­leysi getur haft slæm áhrif á and­lega og lík­am­lega heilsu fólks og það fólk þarf að nýta sér heil­brigð­is­þjón­ustu og heilsu­gæslu. Þetta er víta­hringur. Hér þarf mikið að byggja upp er varðar heil­brigð­is­mál og atvinnu­mál.“ 

Vill láta gott af sér leiða

Hólm­fríður vildi gera meira fyrir flokk­inn og Suð­ur­nesin og ákvað í vetur að bjóða sig fram í próf­kjöri VG. Úrslitin voru kunn­gerð 12. apríl. Hún sigr­aði og leiðir VG í Suð­ur­kjör­dæmi. Margir þeirra sem hún atti kappi við voru þjóð­þekktir. 

„Hinir kandi­datarnir eru sann­ar­lega flottir og hafa sannað sig á þessu sviði. Ég hef vissu­lega margt fram að færa en var ekk­ert að missa mig og hringja í alla í kosn­inga­bar­átt­unni. Ég nýtti sam­fé­lags­miðl­ana svo­lítið og tengsla­net mitt sem er stórt en ég þekki marga bæði úr fyrri störfum og núver­andi starfi. Ég held að það hafi verið kom­inn tími til að kona leiddi lista VG í Suð­ur­kjör­dæmi og eins hafi fólk viljað nýtt and­lit. Ég hef aug­ljós­lega sýnt fram á eitt­hvað gott í kosn­inga­bar­átt­unni og tel áherslur mínar eiga algjör­lega upp á pall­borðið.“ 

Hún seg­ist vera spennt fyrir að fara á þing og hafi alltaf brunnið fyrir því að láta gott af sér leiða. 

Svo byrj­aði að gjósa á Reykja­nesi. Hólm­fríður er spurð hvaða máli gosið skipti fyrir svæðið. 

„Þetta er sann­ar­lega upp­lyft­ing fyrir okkur hérna á Reykja­nesskag­anum og ég er að vona að gosið verði til þess að við náum til okkar meiri athygli; að lands­menn horfi hingað til okkar en þetta er svo ofboðs­lega fal­legt og gjöf­ult svæði. Hér er ótrú­lega fal­leg nátt­úra og margar hjóla- og göngu­leiðir, skemmti­legir veit­inga­staðir og alls konar afþrey­ing. Þegar ferða­þjón­ustan hefst á ný þá fáum við meira af ferða­fólki til að skoða þetta fal­lega lands­lag. Þetta gamla hraun.“ 

Og nýja hraunið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina