Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

SÖFNUN- Íris var allslaus og í forræðisdeilu í Bretlandi:„Ég átti ekkert og lenti næstum á götunni“

SÖFNUN- Íris var allslaus og í forræðisdeilu í Bretlandi:„Ég átti ekkert og lenti næstum á götunni“

„Sé litið til baka sé ég núna að það voru ský á lofti sem ég tók ekki eftir, ég gæti trúað að þar sé menn­ing­ar­mun­ur­inn að spila inn í,” segir Íris Dögg Mar­geirs­dóttir, leik­skóla­starfs­maður, búsett í Bret­landi, sem stendur í for­ræð­is­deilu við fyrr­ver­andi sam­býl­is­mann sinn.

Íris er 36 ára Kefla­vík­ur­mær sem flutti ásamt fjöl­skyldu sinni til Dan­merkur árið 2007. Hún kynnt­ist manni sínum á Facebook tveimur árum síðar og ástin vakn­aði. Hann er Portú­gali sem var við nám í London. „Ég flyt út til hans í febr­úar 2010 til að gefa honum færi á að klára námið. Hug­myndin var alltaf að við færum aftur til Dan­merkur en hann dró það og ekk­ert varð úr. Síðan ger­ast hlut­irnir hratt. Við eign­umst eldri stelpuna í des­em­ber sama ár og þá þá yngri árið 2014.“

Stóð uppi allslaus

Íris segir vissu­lega hafa verið erfitt að vera nýbökuð móðir í ókunn­ugu landi án stuðn­ings fjöl­skyldu og vina. „Þegar eldri dóttir mín var lítil fékk ég hluta­starf fjögur kvöld í viku en fannst erfitt að vera án fjöl­skyld­unnar á kvöldin svo ég sam­ein­aði tvær kvöld­vaktir í eina dag­vakt. Það þýddi auð­vitað að ég þurfti að setja hana á leik­skóla, sem er rán­dýr hérna úti, en það var litið svo á á mínu heim­ili að börnin væru á mína ábyrgð og því væri það mitt að greiða fyrir leik­skól­ann.“

Íris Dögg ásamt Oliviu Hafdísi og Isabellu Írisi á góðri stund.

Fjöl­skyldan keypti hús árið 2013. „Minn fyrr­ver­andi sagði það ekki góða hug­mynd að setja nafn mann­eskju í hluta­starfi á papp­írana á lán­inu við hús­kaupin og ég tók þeirri skýr­ingu sem eðli­legri á sínum tíma. Það kom í bakið á mér þegar við skildum fjórum árum seinna og ég stóð uppi alls­laus með ekk­ert á mínu nafni.“

Heim­il­is­haldið var alfarið á höndum Írisar, hún sá um dag­legan rekstur heim­il­is­ins og sinnti dætr­unum enda leit faðir þeirra svo á að það væri hlut­verk móður að elda og sinna barna­gæslu á meðan að hann ynni. „Ég var líka mikið ein og þekkti fáa, við höfðum flutt bæja á milli og lítið náð að kynn­ast fólki. Ég eign­að­ist þó nokkrar vin­konur í kennslu í ung­barna­nuddi þar sem ég var með eldri stelpuna, þær eru góðar vin­konur mínar enn þann dag í dag.”

Skrítin og vond tilfinning

Íris stóð uppi heim­il­is­laus við skiln­að­inn. „Ég átti ekk­ert og lenti næstum á göt­unni. Ég fékk að gista hjá vin­konu í nokkra daga því minn fyrr­ver­andi tók ekki í mál að flytja. Kerfið hérna er gríð­ar­lega flókið, ekki síst fyrir útlend­ing sem er að reyna að fá stuðn­ing. Sem betur fer lenti ég á góðum leigu­sala sem tók séns­inn á að leigja mér áður en ég fékk svör um húsa­leigu­bætur sem ég síðan fékk.

Ég fékk ekki að taka neitt af heim­il­inu, ekki einu sinni rúm eða önnur hús­gögn barn­anna. Þegar ég fór fram á það fékk ég þau svör að það myndi eyði­legga ásýnd her­berg­is­ins. Því sváfum við á dýnum í galtómri íbúð í byrjun. Ég þurfti að leita á náðir fjöl­skyldu­hjálpar sem var mjög lágur punktur í mínu lífi. Það var skrítin og vond til­finn­ing að vera upp á aðra komin með nauð­synjar. Í mat­vöru­versl­unum hér eru stórar grindur þar sem unnt er að setja í mat og nauð­synjar aðrar en fersk­meti sem síðan er deilt á mat­ar­banka. Ég set alltaf eitt­hvað í grind­ina þegar ég kaupi inn, ég veit vel hvernig er að vera í þessum sporum.“

Litla fjöl­skyldan ásamt heim­ils­hund­unum Kilo og Freyju.

Saknar stuðningsnets

Íris tekur fram að fyrr­ver­andi maður hennar sé alls ekki vondur maður en með afar ólíkan bak­grunn og for­gangs­röðun. „Honum finnst gaman að vera leik­pabb­inn og tekur þær aðra hvora helgi þótt ég viti reyndar aldrei hvenær hann kemur og hvort hann kemur yfir­leitt. Hann kom til dæmis ekki þegar hann var að vinna í hús­inu, það hefði truflað hann. Hann vill fara í bíó, spila tölvu­leiki og gera skemmti­legu hlut­ina með þeim. Hann hefur aftur á móti aldrei verið á því að vakna með þeim eldsnemma um miðja vik­una og und­ir­búa þær í skól­ann, hann segir það skemma lík­ams­klukk­una sína!

Með tím­anum fór Íris að sakna fjöl­skyldu sinnar sífellt meira, ekki síst þegar þjóð­fé­lagið lok­að­ist í Covid. „Ég hef ekki haft neitt stuðn­ings­net hérna í Bret­landi og vildi kom­ast til mömmu, pabba og systk­ina minna í Danmörku. Mamma vildi gjarnan koma en sá sér það ekki fært því hún er með yngri börn. Ég er náin fjöl­skyld­unni minni og það var alltaf ætl­unin að búa nálægt þeim. Skóla­fríin er líka erfið, það er aug­ljóst að þegar skól­inn er lok­aður 11-12 vikur á ári er það erfitt fyrir ein­stæða móður sem er með þriggja vikna sum­ar­frí á ári.“

Lög­fræði­kostn­að­ur­inn hefur reynst Írisi þungur í skauti.

Aðspurð að því hvort hennar fyrr­ver­andi hafi ekki tekið börnin í fríum segir Íris hann hafa tekið telp­urnar þegar hann var sjálfur í sum­ar­fríi. „Hann hefur farið með þær til Portúgal í sum­ar­frí en hann er ekki týpan sem tekur sér annað frí úr vinnu til að „passa” þær. Ég má heldur ekki senda þær til for­eldra minna í Danmörku. Svo er mikið ströggl að koma þeim í tóm­stunda­starf eins og er á Íslandi, eins og allt sem snertir börn hérna er það óska­lega dýrt.”

Reyndi að finna lausnir

Sam­býl­is­mað­ur­inn fyrr­ver­andi tók afar illa í hug­mynd Írisar um flutn­inga. „Ég reyndi bók­staf­lega allt til að ná sam­eig­in­legri nið­ur­stöðu. Ég bauðst til að fá borgað með­lag annan hvern mánuð svo hann gæti nýtt hinn helm­ing­inn í að ferð­ast eða fljúga þeim til sín en það var strax slegið út af borð­inu.

Ég skil hann svo sem alveg, þetta eru líka börnin hans, en ég er ekki að taka þau frá honum. Það er fullt af fólki í þessum sporum og gengur bara ágæt­lega. Ég bauðst einnig til að koma með þeim þrisvar til fjórum sinnum á ári auk þess sem hann gæti komið í heim­sókn til Dan­merkur. Ég bauðst meira að segja flytja úr þeirri íbúð sem ég væri komin í og inn til mömmu og leyfa honum að vera með stelp­urnar í friði. En nei, því var ekki tekið. Hann segir að það mér sé vel­komið að flytja svo lengi sem ég skil þær eftir, þær séu fæddar í Bret­landi, séu Bretar og eigi að vera þar.

Sem er í raun fyndið því hann hefur ekk­ert verið að sinna þessum dag­legum hlutum og aldrei mætt á for­eldra­fundi eða séð stelpuna í fim­leikum.“

Íris stakk upp á að þau færu í sátta­með­ferð sem hann var ekki fylgj­andi og reidd­ist hann til­ög­unni í upp­hafi. Hann lét þó til leið­ast en þær við­ræður sigldu í strand.

Dómstólar eini kosturinn

Þá sá Íris eng­ann annan kost í stöð­unni en að leita til dóm­stóla. Fyr­ir­taka máls­ins var í nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. „Það er eng­inn milli­vegur í þessu máli. Það er ekki eins og ég flytji til Þýska­lands því það er á milli Bret­lands og Dan­merkur. Ann­að­hvort fæ ég að fara með stelp­urnar úr landi eða ég er föst hérna í mörg ár í við­bót. Það kemur aldrei til greina að ég yfir­gefi börnin mín. Ég hef verið hrein­skilin við þær um hvað er í gangi og þær vita að þetta er ekki lengur í höndum mömmu og pabba, þetta er í höndum dóm­ar­ans. Fyrr­ver­andi maður minn hefur reyndað spilað þennan leik af færni, ýtt undir sekt­ar­kennd stelpn­anna um að yfir­gefa hann og flogið mömmu sína til lands­ins til að sýna fram á fjöl­skyldu­net í Bret­landi. Hún skildi að baki eig­in­mann, börn, barna­börn, hús og hund!

Hún kann reyndar enga ensku og þar sem hann kenndi aldrei stelp­unum portú­gölsku geta þær ekk­ert talað við ömmu sína.”

Ferlið hefur reynst Írisi dýrt. „Lög­fræð­ingar eru rán­dýrir og ég hef þurft að nurla hverri krónu saman. Leik­skóla­starfs­menn eru ekki hátekju­stétt. Fjöl­skylda mín og nánar vin­konur hafa lagt sitt af mörkum, sem ég er óend­an­lega þakk­lát fyrir, en ég við­ur­kenni alveg að ég hef átt svefn­lausar nætur. Auðvitað var mitt val að fara þessa leið en ég sá engan annan kost í stöð­unni. Það er sorg­legt að hugsa til þess en ein­hver verður afar miður sín þegar þessu er lokið. Ég treysti mér ekki til að segja hvort okkar það verður,“ segir Íris Dögg Mar­geirs­dóttir, móðir og leik­skóla­starfs­maður í Bret­landi.

Þeir sem vilja leggja Írisi lið við lög­fræði­kostn­að­inn er bent á söfn­un­ar­síðu sem er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina