Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Klámfólkið ætlaði til Íslands í upptökur en kom aldrei: „Ekki ein hugguleg dama mótmælt“

Klámfólkið ætlaði til Íslands í upptökur en kom aldrei: „Ekki ein hugguleg dama mótmælt“

„Ef ég mætti ráða væru 20-30 klám­ráð­stefnur haldnar á hverju ári. Þessir blessuðu femínistar sem eru á móti þessu eru dömur sem hafa orðið undir í líf­inu hjá karl­pen­ingnum um ævina. Ég hef ekki séð eina huggu­lega dömu mót­mæla þess­ari ráð­stefnu. Um leið og ein­hver þekkt feg­urð­ar­dís mót­mælir dæm­inu skal ég láta sokk upp í skítugan kjaft­inn á mér.”

Svo mörg voru þau orð Egils „Gilzeneggers” Ein­ars­sonar þegar hann var spurður um álit sitt á SnowGathering 2007, kaup­stefnu sem hol­lenskir net­klám­s­fram­leið­endur hugð­ust halda í Reykja­vík í mars það sama ár.

Það má með sanni segja að þjóð­fé­lagið hafi farið á hlið­ina vegna umræddrar ráð­stefnu sem þekkt varð sem klám­ráð­stefnan.

Klámupptökur á afskekktum stöðum

Lætin hófust með lág­stemmdri frétt sem flutt var á RÚV að kveldi 15. febr­úar þar sem greint var frá kaup­stefn­unni og rætt við tals­mann hennar, Christina Ponga, sem sagði 150 manns í „iðn­að­inum” vera á leið til lands­ins, þar af þekktar klám­stjörnur og yrði Íslands­ferðin meðal ann­ars nýtt í upp­tökur á klám­efni. Tekið var fram að tökur myndu fara fram á afskekktum stöðum og þyrfti íslenskur almenn­ingur ekki að ótt­ast að rekast á berrassað fólk í atlotum hist og her. Sagði Ponga að kaup­stefnu­gestir væru þó einna helst að leita eftir hefð­bund­inni afþr­ey­ingu á borð við hesta- og skíða­ferðir. Í frétt­inni kom fram að fólkið hygð­ist gista á Hótel Sögu, Radisson SAS.

Sið­gæð­is­vit­und almenn­ings virt­ist vera fótum troðin og reis upp mót­mæla­alda gegn komu „klám­fólks­ins” eins og það var fljót­lega kallað.

Farið fram á rannsókn lögreglu

Daginn eftir sendu Stígamót bréf til rík­is­stjórnar, þing­manna, borg­ar­stjórnar, Lög­reglu­emb­ætt­is­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Rík­is­lög­reglu­stjóra þar sem kallað var eftir að þessir aðilar tækju saman höndum við að koma í veg fyrir ráð­stefn­una. Var meðal ann­ars vísað til þess að á vef­síðu ráð­stefn­unnar væri að finna tengla yfir í vef­síður þátt­tak­enda þar sem væri að finna gróft klám­efni með til­vís­anir í barnaklám.

Þessi tenglar hurfu fljót­lega en Vil­hjálmur Þ. Vil­hjálms­son, þáver­andi borg­ar­stjóri fór engu að síður fram á við lög­reglu að hún myndi rann­saka hvort í hópi ráð­stefnu­gesta kynnu að vera fram­leið­endur barnakláms eða ann­ars ólög­mæts klám­efnis, ef það mætti verða til að koma í veg fyrri dvöl meintra kyn­ferð­is­af­brota­manna hér á landi.

Fljót­lega bætt­ust Presta­fé­lagið og biskup Íslands í hóp­inn og sendu frá sér yfir­lýs­ingu þar sem koma klám­fram­leið­enda til lands­ins var hörmuð og klám sagt ganga í ber­högg við krist­inn mann­skiln­ing.

Blogg­heimar log­uðu og meira að segja Bænda­sam­tökin létu í sér heyra, í krafti eign­ar­halds á Hótel Sögu, og lýstu yfir van­þóknun á komu klám­fólks­ins til lands­ins.

Aðrir voru þó ekki á sama máli og töldu full­langt gengið með úthýsa fólki frá land­inu sökum starfa þeirra. Þjóðin var klofin í klám­kom­unni.

Klámið rætt á Alþingi

Ekki leið á löngu þar til málið var tekið upp á háa alþingi þegar að Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir, þáver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, tók málið upp í fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi og spurði for­sæt­is­ráð­herra hvort rík­is­stjórn­in hygð­ist grípa til ein­hverra ráð­staf­ana þar sem klám­iðn­aður­inn bryti gegn mann­helgi og kyn­frelsi og væri fullur mann­fyr­ir­litn­ingar. Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, kvaðst hafa óbeit á klám­iðn­aði og allri hans fram­leiðslu en benti á að koma fólks­ins gæti varla gefið til­efni til að hefta för þess nema ljóst væri að um ólög­legt athæfi væri að ræða.

Hrönn Greips­dóttir, hót­el­stjóri Hótel Sögu, stóð í eld­lín­unni og var gríð­ar­legur þrýst­ingur á hót­elið að synja klám­fólk­inu gist­ingu. Hafinn var und­ir­bún­ingur að mót­mæla­stöðu við hót­elið og á end­anum var tekin sú ákvörðun hjá stjórn­endum og eig­endum hót­els­ins að draga bók­an­irnar til baka. Sagði Hrönn í við­tali við Morg­un­blaðið á sínum tíma að sú ákvörðun hefði verið tekin með gesti hinna 160 her­bergj­anna á hót­el­inu í huga. Ekki hefði verið verið hægt að bjóða þeim upp á mót­mæla­stöðu við hót­elið, hvað þá vöktun lög­reglu.

Þar með féll klám­ráð­stefnan um sjálfa sig þar sem ómögu­legt var fyrir hóp­inn að fá gist­ingu með þetta skömmum fyr­ir­vara.

Ferðamenn ekki yfirheyrðir um störf

Samtök ferða­þjón­ust­unnar voru aftur á móti þung­orð um við­brögðin og sögðu vand­séð hvernig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki gæti meinað fólki að koma í skemmti­ferð til Íslands þrátt fyrir hverja þá óbeit sem fólk hefði á klám­iðn­aði. Enn fremur bentu sam­tökin á að fólkið stund­aði iðj­una lög­lega í sínu landi. „Það koma rúm­lega 400 þús­und ferða­menn árlega til Íslands, þeir eru ekki yfir­heyrðir um störf sín heima við enda óger­legt. Samkvæmt dag­skrá þess­arar umræddu sam­komu ætl­aði fólkið að vera í skipu­lögðum skoð­un­ar­ferðum allan tím­ann. Ljóst er að ómögu­legt er fyrir fyr­ir­tækin að flokka gesti sína í æski­lega og óæski­lega gesti hafi engin lög­brot verið framin,“ sagði í ályktun sam­tak­anna.

Aldrei komst almenni­lega á hreint hvers eðlis sam­koman átti að vera. Í upp­hafi var rætt um kaup­stefnu sem síðar varð að ráð­stefnu og í end­ann var talað um hóp af fólki í vetr­ar­fríi.

Klám­fólkið fór í kjöl­farið í mál við Hótel Sögu og krafð­ist 10 millj­óna í skaða­bætur. Krafan byggð­ist að mestu leyti á flug­förum til lands­ins sem voru keypt fyrir hátt á fimmta tug manna, launa­greiðslum og öðrum útgjöldum í aðdrag­anda ráð­stefn­unnar.

Að lokum var samið um upp­hæð bóta utan réttar og fengu skipu­leggj­endur SnowGathering fimm millj­ónir íslenskra króna í vas­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ