Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Þorgerður segir nemendur og foreldra beita kennara ofbeldi: „Alltof margir gefast upp á hverju ári“

Þorgerður segir nemendur og foreldra beita kennara ofbeldi: „Alltof margir gefast upp á hverju ári“

„Öll ólög­ráða börn eiga alltaf rétt á fyr­ir­gefn­ingu. Þau gera mis­tök í þroska­ferli sínu og þurfa á að halda leið­bein­ingum og fyr­ir­gefn­ingu. Því má heldur ekki gleyma að það er skemm­andi að vera áhorf­andi að ofbeldi og það verður að gæta að rétti barna til að vera ekki vitni að ofbeldi sem önnur börn beita gegn nem­endum eða kenn­urum í skól­anum,“ segir Þor­gerður Laufey Dið­riks­dóttir, for­maður félags grunn­skóla­kenn­ara.

Þor­gerður hefur unnið að því að vekja athygli á földu vanda­máli sem hafi hingað til hefur verið allt að tabú að ræða: Ofbeldi gegn kenn­urum. „Fólki finnst þetta svo óhugs­andi, við erum vön því að eiga við að börn beiti hvort annað ofbeldi en það er alveg nýtt að farið sé að ræða ofbeldi gegn kenn­urum.“

Að sögn Þor­gerðar leita tugir kenn­ara til félags­ins á ári hverju vegna ein­hverrar teg­undar af ofbeldi.

Sex eða sextán ára ekki sami hluturinn

Þor­gerður segir þrjár birt­ing­ar­myndir ofbeldis gagn­vart kenn­urum. Ofbeldi sem þeir verða fyrir af hendi nem­enda, ofbeldi sem þeir verða fyrir af hendi for­eldra og ofbeldi sem þeir vera fyrir af hendi yfir­manna.

Hún segir ofbeldi nem­enda gagn­vart kenn­urum kannski það sem fólk þekki ef til vill best af afspurn, kenn­arar lendi í því að þeir sé slegnir, í þá sparkað eða hrækt á þá. „Við hvetjum kenn­ara til að til­kynna ofbeldi af hendi nem­enda svo unnt sé að grípa bæði barn og kenn­ara en það verður alltaf að líta á ein­stak­ling­inn í stað þess að ein­blína á eitt­hvað ferli. Vissu­lega eru góðir ferlar og skýrar reglur til staðar en það er aug­ljós­lega ekki sami hlut­ur­inn þegar að sex ára barn sparkar í kenn­ara eða þegar 16 ára leggur hönd á kenn­ara. Það er ekki hægt að „ferla” jafnt ólíkar aðstæður.

Nið­ur­staðan getur verið að kenn­ari óski eftir flutn­ingi til að kom­ast úr aðstæðum, hann sé fluttur til eða þá nem­and­inn. Það er ekki sjálf­gefið að unnt sé að sinna vinnu í aðstæðum sem slíkum og mörgum kenn­urum líður illa, finna til skömmustu­til­finn­ingar og finnst þeir hafa kannski átt að gera ein­hverja hluti öðru­vísi.”

Ógnandi hegðun foreldra

Spjallið snýst að for­eldrum. „Oftar en ekki fara for­eldrar með mál inn á borð skóla­stjóra og kenn­ar­inn fær aðeins þá vit­neskju að yfir honum verið kvartað. Hann fær engar frek­ari upp­lýs­ingar vegna per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miða og upp­lifir í kjöl­farið van­traust og þá er lík­legra að fólk geri mis­tök.”

Hún segir ekki alla hafa unnið í for­eldra­lottó­inu. „Börnin okkar hafa ekki val. Þetta eru tíu ár í skyld­námi þar sem við grunn­skóla­kenn­arar erum að sinna þeim. Í sumum til­fellum eru for­eldrar ekki sjálfir með góða reynslu af skóla eða treysta honum ekki. Það eru alls konar hlutir að koma upp og það þarf að byggja upp traust til okkar, kenn­ar­ana sem sjá um gull­mol­ana þeirra. Það eru ekki margar bjargir en það gengur ekki. Það þarf að næra og fóstra traustið.“

Mál hafa þró­ast upp í að for­eldrar sýni kenn­urum ógn­andi hegðun og komi fram með hót­anir, stundum í krafti stöðu sinnar í sam­fé­lag­inu. „Í slíkum til­fellum er það ekki bara kenn­ar­inn sem er magn­laus heldur skóla­sam­fé­lagið allt. Samt geta þau mál verið jafn­vel auð­veld­ari en önnur því þau fara í far­veg hjá lög­reglu. Erfiðu málin eru þegar for­eldrar beita ofbeldi í formi sífelldra kæra, áreitis í síma eða formi tölvu­pósta, krafna um utan­að­kom­andi ráð­gjafa eða þegar for­eldrar missa stjórn á sér sökum vitn­is­burðar barns. Með því er verið að draga í efa fag­mennsku kenn­ar­ans og ef hann hefur ekki stuðn­ing skóla­stjóra getur upp­lifað hann van­mátt og kvíða sem getur orðið til þess að hann gef­ist upp.

Einn skipstjóri í brúnni

Með því berst spjallið að þriðju teg­und ofbeld­is­ins, því af hálfu yfir­manna. „Það kom mér á óvart hversu djúpt falið þetta er. Ofbeldi af þessu tagi lýsir sér í því að grafið er undan fag­mennsku og heil­indum kenn­ara. Í þessum til­fellum standa skóla­stjórar ekki með kenn­urum, trúa ekki sögum þeirra eða gera lítið úr reynslu þeirra og kunn­áttu. Þetta er svo falið því eng­inn vill vera sá sem segir frá. Það verður að hafa í huga að það er bara einn skip­stjóri í brúnni og skóla­stjórar hafa gríð­ar­leg völd í þessu sam­fé­lagi sem skól­inn er. Þeir skipa í kojur og eng­inn á sína koju.

Þarna sker grunn­skól­inn sig úr. Starfs­menn á leik­skóla geta fært sig til milli deilda og fram­halds­skóla­kenn­arar kenna sitt fag. Grunn­skóla­kenn­arar vita aftur á móti aldrei hvað nýtt skólaár ber í skauti sér, við erum færð til og frá, eitt árið kennir maður ef til vill heim­il­is­fræði en stærð­fræði það næsta. Grunn­skóla­kenn­arar lenda ítrekað í að vera skikk­aðir í að kenna eitt­hvað sem þeir þekkja lítið eða ekk­ert.

Þor­gerður segir margar ástæður geta orðið til þess að skóla­stjóri beit kenn­ara slíku ofbeldi. „Kannski hittir hann á fólk sem vill ekki gera hlut­ina á sama hátt, er með ann­ars konar hug­myndir, eða á ein­fald­lega ekki sam­leið með. Hvert ein­asta atvik er sér­stakt en það er sam­hljómur með þeim. Slíkt ein­elti er erfitt að til­kynna þar sem fræðslu­skrif­stofa og skóla­stjóri eru jafnt settir í skipu­riti auk þess sem kenn­arar eru tregir til að að aum­ingja­væða sig. En þessa umræðu þarf að opna. Við erum að missa mik­inn fjölda góðra kenn­ara á hverju ári, fólk sem hefur gef­ist upp í þessu þunga og erf­iða kerfi okkar. Margir fara í veik­inda­leyfi en það er engin lang­tíma­lausn því þeir þurfa síðan að koma aftur og takast á við hið sama. Það er jafn­vel enn erf­ið­ara að koma aftur.“

Mikill fjöldi kenn­ara hefur haft sam­band við Þor­gerður eftir að hún hóf umræð­una um ofbeldi gegn kenn­urum og hún hefur heyrt margar sögur. „Að vera kenn­ari er dásam­leg­asta starf í heimi en eins og ein kona sagði við mig: „Ég er þreytt á að lána öxl en hef ekki nóga sjálfs­ást í að fara,” segir Þor­gerður Laufey Dið­riks­dóttir, for­maður félags grunn­skóla­kenn­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina