Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Magni sló ærlega í gegn í Rockstar Supernova: „Ég var fáviti“

Magni sló ærlega í gegn í Rockstar Supernova: „Ég var fáviti“

Tón­list­ar­út­rás Íslend­inga fór brös­ug­lega af stað árið 2006 þegar eng­inn skildi brandar­ann að baki Silvíu Nótt í Júró­visjón keppn­inni sem haldin var í Grikk­landi. Ágústa Eva var púuð niður af áhorf­endum og komst ekki upp úr for­keppn­inni. Íslend­ingar voru svekktir.

Landinn hresstist þó mjög þegar leið á sum­arið og fréttir bár­ust af því að ungur og dag­far­sprúður Aust­firð­ingur hefði verið val­inn í fimmtán manna hóp til að taka þátt í banda­rísku raun­veru­leika­þátt­unum Rockstar:Supernova. Í keppn­inni börð­ust efni­legir söngv­arar alls staðar að úr heim­inum um hlut­verk söngv­ara í hljóm­sveit­inni nýt­stofn­uðu Supernova sem ekki var mönnuð minni mönnum en trommar­anum Tommy Lee, úr Mötley Crue, gít­ar­leik­ar­anum Gilby Clarke úr Guns N’ Roses og Jason Newsted, fyrrum bassa­leik­ari Metallica. Hér var um þunga­vigt­ar­menn að ræða.

Fjórir héldu í víking

Upp­haf­lega höfðu fjórir Íslend­ingar haldið í vík­ing vestur um haf í von um frægð og frama í þætt­inum. Það voru þau Hreimur Örn Heim­is­son úr Landi og sonum, Idol­stjarnan Aðal­heiður Ólafs­dóttir, Krist­ó­fer Jensson úr Lights on the Highway auk ljúf­lings­ins að austan, Magna Ásgeirs­sonar, sem hafði getið sér nafn sem söngv­ari sveita­balla­bands­ins Á móti Sól. Magni var sá eini af fjór­menn­ing­unum sem komst áfram og komst hann í fimmtán manna loka­hóp sem barð­ist um hið eft­ir­sótta sæti söngv­ara Supernova.

Þætt­irnir voru sýndir á Skjá einum og ekki var mann að sjá á götum borg­ar­innar þegar Magni hóf upp raust sína, landi og þjóð til sóma. Nýtt óska­barn var fætt.

Dregur til tíðinda

Magni varð fljótt gríð­ar­lega vin­sæll meðal stjórn­enda keppn­innar, áhorf­enda svo og ann­arra kepp­enda en þeir bjuggu allir saman á veg­legu setri. Hann skap­aði sér fljótt orð fyrir að vera góð­lyndur og skemmti­legur drengur, ein­lægur fjöl­skyldu­maður með báða fætur á jörð­inni. Í þátt­unum var oft komið inn á söknuð Magna eftir syni sínum og sáu þátta­stjórn­endur sér aug­ljós­lega hag í teng­ing­unni því þeir buðu Eyrúnu eig­in­konu hans og syni óvænt í heim­sókn til hans á setrið.

Eftir því sem leið á þætt­ina varð fólki smám saman ljóst að Magni gæti unnið keppn­ina og orðið stór­stjarna í kjöl­farið. Spennan jókst og sam­ein­að­ist þjóðin sem aldrei fyrr í að tryggja að Magni félli ekki úr keppni. Far­síma­fyr­ir­tækin duttu hvert um annað í til­boðum á texta­skila­boðum.

Magni allra landsmanna

Ekki fór svo að Magni ynni keppn­ina. Sá heiður hlotn­að­ist Kanada­manni nokkrum, Lukas Rossi, sem sam­kvæmt fljót­unn­inni vef­leit, virð­ist hafa gengið vel á tón­list­ar­ferl­inum á þeim fimmtán árum sem liðið hafa.

Magni lenti í fjórða sæti.

Eins og þá var van­inn var efnt til veg­legrar mót­töku­há­tíðar í Smára­lind þar sem átta þús­und manns öskr­uðu sig hása þegar söngv­ar­inn knái gekk inn. Það var aug­ljóst hver var sig­ur­veg­ari keppn­innar að mati áhorf­enda.

Smám saman fór þó að halla undan fæti fyrir nýja ofur­band­inu Supernova. Þeir félagar urðu að gefa eftir nafnið eftir að pönk­sveit frá Kali­fornu sem bar saman nafn fór í mál við þá. Breyttu þeir þá nafn­inu í Rockstar Supernova og gáfu út breið­skífu sem var illa tekið jafnt af almenn­ingi og gagn­rýnendum. Tæplega tveimur árum síðar voru allir hljóm­sveit­ar­með­limir farnir hver í sína átt­ina.

„Ég var fáviti“

Til stóð að Magni færi ásamt þremur með­kepp­endum sína í stóra tón­leika­ferð um Banda­ríkin við und­ir­leik hús­hljóm­sveit­ar­innar sem spilað hafði í þætt­inum. Aldrei varð af því vegna kostn­aðar. Í við­tali við Vísi í októ­ber 2006 sagð­ist Magni vera sár og svekktur en væri með önnur verk­efni í burð­ar­liðnum.

Magni hélt áfram að syngja með hljóm­sveit sinni, Á móti Sól, gaf út sóló­plöt­una „Magni” árið 2007 og hefur nokkrum sinnum þátt í und­ankeppnum Júrós­visjón.

Hann rifj­aði upp keppn­ina tíu árum síðar í sam­tali við Aust­ur­glugg­ann. Þar kveðst Magni í raun muna sára­lítið eftir þeim tíma þegar hann tók þátt í Rockstar Supernova en það tíma­bil spann­aði allt í allt fjóra mán­uði. Þá kvaðst hann lítið hafa orðið var við gíf­ur­legar vin­sældir þátt­ar­ins á meðan á þátt­töku hans stóð. „Við átt­uðum okkur ekki á því enda í ein­hverri lok­aðri kúlu og fengum ekk­ert að vita.“

Hann sagð­ist hafa orðið snar­rugl­aðir eftir að kúlan sprakk. „Ég var far­inn að finna fyrir þessu síð­ustu vik­urnar úti og labb­aði svo alger­lega á vegg þegar þessu lauk, var lík­lega orð­inn alveg bull­andi þung­lyndur. Ég var alveg hálft ár að ná að fún­kera aftur, bara að fara í vinn­una og lifa eðli­legu lífi,“ sagði Magni jafn­framt og bætti því við að jafn­framt hafi þetta haft slæm áhrif á sam­bandið og slitu hann og Eyrún sam­vistum um tíma.

„Við skildum um stund af því ég var fáviti. Ég elti hana og sem betur fer tók hún við mér aftur enda er Eyrún ynd­is­leg­asta mann­eskja sem ég þekki og ég hlakka til að eyða ævinni með henni.“

Magni og Eyrún búa í dag á Akureyri ásamt fjórum sonum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ