Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Niðurbrotinn hælisleitandi: Lýsir harðræði sex lögreglumanna og neitað um innlögn á geðdeild

Niðurbrotinn hælisleitandi: Lýsir harðræði sex lögreglumanna og neitað um innlögn á geðdeild

Mohammed Alswerki, 26 ára palest­ínskur flótta­maður, full­yrðir að sex íslenskir lög­reglu­menn hafi beitt sig harð­ræði síð­ast­lið­inn fimmtu­dag þegar hann gerði til­raun til að kom­ast inn á geð­deild. Hann segir hafa verið í algjöru losti eftir hand­tök­una harka­legu.

Mohammed hefur þrátt fyrir ungan aldur upp­lifað hræði­lega atburði, sem fæstir geta fylli­lega ímyndað sér. Hann kemur frá Gaza en þaðan þurfti hann að flýja vegna þess að hann átti kær­ustu, það er strang­lega bannað á hans heima­slóðum, þú verður að gifta þig. Hann var tek­inn höndum og mis­þyrmt  hrotta­lega og í kjöl­farið end­aði hann á sjúkra­húsi.

Mohammed sá enga aðra leið en að yfir­gefa Gaza og fjöl­skyldu sína þar til þess að halda lífi. Hann hefur fengið synjun Útlend­inga­stofn­unar einu sinni og bíður nú seinni úrskurðar.

Mohammed Alswerki

Mannlíf hitti Mohammed og þar blasti við nið­ur­brot­inn ungur maður.

Áföll og geðheilsa

„Ég hef átt við mik­inn geð­heilsu­vanda að stríða eftir allt það slæma sem hefur yfir mig gengið síð­ustu ár. Ég er þung­lyndur, kvíð­inn, með áfallastreituröskun og fæ mjög oft kæf­andi til­finn­ingu og allt verður bara of mikið, ég verð þreyttur og langar að gef­ast upp. Ég var 22 ára þegar ég þurfti að flýja frá Gaza, yfir­gefa líf mitt og fjöl­skyldu. Blaða­maður sér að hér er Mohammed við það að beygja af og spyr hann um fjöl­skyldu hans og ástandið á Gaza. Ég hef ekki getað náð sam­bandi við þau í nokkra daga en Ísra­els­her sprengdi húsið þeirra og þau voru á göt­unni þegar ég heyrði í þeim síð­ast,“ segir Mohammed.

Mohammed á for­eldra og fimm syst­kyni, 18, 12,10,7 og 4 ára sem, búa á Gaza sem hann veit ekki hvar þau eru niður komin eða hvort þau séu yfir­höfuð lífs eða liðin.

Faðir Mohammeds
Móðir Mohammeds og einn bræðra hans
Systur Mohammeds eru 4 og 7 ára
Bræð­urnir þrír eru 18, 12 og 10 ára

Geðlæknir hringdi á lögreglu

Mohammed hefur papp­íra upp á svo­kall­að­ann opinn tíma hjá Geðdeild Lands­spít­al­ans, sem þýðir að hann má koma þegar ástand hans verður mjög slæmt. Það gerði Mohammed fimmtu­dag­inn síð­ast­lið­inn en hann var þá við það að gef­ast upp, var orðin mjög þreyttur eins og hann lýsir sjálfur og þurfti sár­lega á hjálp að halda. Ástandið varð­andi fjöl­skyldu hans og sam­landa, ofan á allt annað sem hann er að kljást við, fyrir var að sliga hann. Mohammed leit­aði því á geð­deild­ina síð­ast fimmtu­dag en var vísað þaðan frá.

Mohammed neit­aði aftur á móti að yfir­gefa spít­al­ann. Að eigin sögn var hann rólegur og neit­aði út fara þaðam út þar til hann fengi hjálp. Lækn­ir­inn bregður hins vegar á það ráð að hringja í lög­regl­una. Alls mættu sex lög­reglu­þjón­arnir á svæðið. Mohammed full­yrðir að lög­reglu­menn hafi ekk­ert hlustað á hann og hann tek­inn með valdi og offorsi út af spít­al­anum.

Mohammed segir að sér hafi verið slengt harka­lega í göt­una hné sett í bakið á honum og þrengt hafi verið að hálsi sínum þannig hafi hafi ekki getað andað. Þar að auki hafi hann hlotið höf­uð­á­kverka. Hann seg­ist hafa verið hand­járn­aður harka­lega og er enn mjög þjáður eftir járnin. Þá seg­ist Mohammed hafa verið dreg­inn eftir göt­unni og kastað inn í lög­reglu­bíl sem sem fjórir lög­reglu­þjónar eiga að hafa haldið honum föstum niðri í gólf­inu og að minnsta kosti einn setið ofan á honum. Þegar hér er komið við sögu lýsir hann stöð­unni þannig að hann hafi átti mjög erfitt með að anda og misst með­vit­und.

Lög­reglan hringir í kjöl­farið í lækni og ákveðið er að flytja Mohammed með sjúkra­bíl niður á Land­spít­al­ann í Fossvogi þar sem hlúð er að honum eftir bestu getu og hann fær að vera þar og ná áttum og hvíla sig. Þar er sér­fræði­læknir sem úrskurðar að hann þarfn­ist inn­lagnar á geð­deild.

Mohammed hlaut áverka á höfði og höndum og er aumur um allan lík­amann eftir með­höndlun lög­regl­unnar.

Allt breytt en traustið farið

Allt í einu stóð Mohammed því til boða að leggj­ast inn á geð­deild­ina. Honum finnst mjög skrítið að allt í einu væri hægt að taka við honum og hjálpa honum en honum neitað upp­haf­lega um aðstoð og lög­regl­unni sigað á hann nokkrum klukku­tímum fyrr. Mohammed segir að hegðun sín hafi alls ekki verið ógn­andi á nokkurn hátt og hann hafi verið mjög rólegur og hegðun hans því ekki verð­skuldað nær­veru sex lög­reglu­þjóna.

Staðfesting frá lögfræðingi

Mannlíf hafði sam­band við Albert Björn Lúð­vígs­son lög­fræð­ing Mohammeds og stað­festi hann að hann hefur fengið gögn frá Land­spít­al­anum sem stað­festa atburða­rás­ina. Í þeim gögnum kemur hvergi annað fram en að Mohammed hafi verið rólegur og alls ekki sýnt af sér ógn­andi hegðun eða beitt ofbeldi af neinu tagi, né nokkrar aðrar nei­kvæðar athuga­semdir. Albert stað­festir það að Mohammed hafi leitað aðstoðar Geð­deildar Land­spít­al­ans og neitað að fara eftir að honum var synjað um aðstoð. Lögregla var kölluð til og Mohammed hafi svo verið fluttur með sjúkra­bíl frá lög­reglu­stöð­inni niður á Land­spít­al­ann í Fossvogi þar sem var talin þörf á inn­lögn á Geðdeild Land­spít­al­ans. Þetta kemur allt fram í gögnum sem hann kall­aði eftir frá Land­spít­al­anum.

Albert Björn Lúð­vígs­son lög­fræð­ingur hjá Rauða kross­inum

Þráir eðlilegt líf

Mohammed er mennt­aður lög­fræð­ingur og hann á sér þann eina draum að vera öruggur, fara í háskóla og klára það nám sem til þarf hér á landi til þess að öðl­ast lög­fræðirétt­indi og hjálpa fólki sem hefur þurft að þola svipað og hann hefur þurft að þola. Hann þráir stöð­ug­leika og rétt­indi. Mohammed vill gifta sig eign­ast fjöl­skyldu og reyna að byggja sig upp eftir öll áföllin sem á honum hafa dunið.

Bíður með lífið í lúkunum

Eins og áður sagði bíður Mohammed eftir úrskurði áfrýj­unar og verði honum synjað verður hann sendur til Grikk­lands þar sem hann verður að búa á göt­unni, pen­inga­laus og alls­laus. Það er ekk­ert líf fyrir flótta­fólk í Grikk­landi segir Mohammed.

„Venju­legt fólk hugsar um Grikk­land sem fal­legan stað fyrir sum­ar­frí en raun­veru­leiki okkar flótta­mann­anna er allt annar, hræði­legur. Ég upp­lifði versta tíma lífs míns úti í Grikk­landi og ég bara get ekki farið þangað aftur og ekki get ég farið til Gaza. Mér finnst eins og fólk haldi að allt flótta­fólk komi til Íslands til þess að lifa á kerf­inu hér en sann­leik­ur­inn er sá að við höfum ekki kenni­tölu og megum því alls ekki vinna né nokkuð annað. Við verðum að sitja og bíða okkar dóms frá Útlend­inga­stofnun sem snýr öllum sem hafa haft við­komu á Grikk­landi við á for­sendum Dyfl­inn­ar­á­kvæð­is­ins. Það er ekki verið að skoða mál ein­stak­linga það er bara athugað hvort ekki sé hægt að hafna og það er gert. Við erum öll fólk með okkar sögu, við erum ekki öll með sömu sög­una og þetta er ekki sann­gjörn með­ferð,“ segir Mohammed.

Hér að ofan má sjá svip­myndir frá flótta­manna­eyj­unni Chios, Grikk­landi.

Svona var farið með Mohammed í Grikk­landi, hann var pynt­aður hrotta­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ