Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Versta augnablik Vilhjálms: „Að fá hláturskast á versta tíma við athöfn í kirkju“

Versta augnablik Vilhjálms: „Að fá hláturskast á versta tíma við athöfn í kirkju“

Leik­ar­inn og Norð­lend­ing­ur­inn geð­þekki, Vil­hjálmur B. Bragason, var undir stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Vil­hjálmur stund­aði nám við hinn virta skóla Royal Academy of Dramatic Art í London og útskrif­að­ist þaðan með MA gráðu af sviðs­höf­unda­braut.
Nú stjórnar Vil­hjálmur Föstu­dags­þætt­inum á sjón­varps­stöð­inni N4 og leikur þess á milli með Leik­fé­lagi Akur­eyrar.
Vil­hjálmur er einn af höf­undum gam­an­leiks­ins Full­orðin sem frum­sýndur var í byrjun árs og óhætt er að segja að hafa slegið í gegn. En þar fer hann einnig með eitt aðal­hlut­verkið.
Mannlíf komst að því að mestu von­brigði í lífi Vil­hjálms var að verða full­orð­inn og var það einmitt ein af kveikj­unum að sýn­ing­unni.

Vil­hjálmur B. Bragason. Mynd/ Sindri Swan

Fjöl­skyldu­hagir? Ein­hleypur.

Menntun/atvinna? Skemmti­kraftur, tón­list­ar­maður og leik­hús­lista­maður/MA gráða af sviðs­höf­und­ar­braut Royal Academy of Dramatic Art í London.

Upp­á­halds Sjón­varps­efni? Frasier.

Leikari? Þekki svo marga frá­bæra, það er erfitt að gera upp á milli vina og sam­starfs­fé­laga. Jack Nicholson varð fyrsti upp­á­halds kvik­mynda­leik­ar­inn minn þegar ég var 5 ára. Erfitt að setja út á það val.

Rit­höf­undur? Joe Orton, Oscar Wilde og Tom Stoppard. Geri ekki upp á milli leik­skálda.

Bók eða bíó? Bæði.

Besti matur? Er borð­aður með góðum vinum og paraður með kok­teil! Og á Múla­bergi bistro og bar!

Kók eða Pepsí? Pepsí.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Fullur salur af hlæj­andi fólki.

Mynd/ Sindri Swan

Hvað er skemmti­legt? Vinnan. Að semja og flytja lög, leik­rit og texta. Sköpun í öllum myndum. Og auð­vitað mat­ar­boð, ferða­lög og ýmis­legt annað þess á milli.

Hvað er leið­in­legt? Bókhald og upp­taln­ingar á hlutum (bók­hald er auð­vitað bara upp­taln­ing á tölum, sem gerir það verra).

Hvaða flokkur? Ég er ekki til­bú­inn að flokka mig. Ætti þó lík­leg­ast heima í líf­ræna.

Hvaða skemmti­staður? Maður er auð­vitað búinn að gleyma því hvernig það er að fara á skemmti­staði, en hugsa að ég til­nefni Götu­bar­inn á Akureyri – sem píanisti gæti ég aldrei sagt annað.

Kostir? Verð mjög sjaldan uppi­skroppa með góðar sögur. Gest­gjafi fram í fing­ur­góma.

Lestir? Frest­un­ar­árátta.

Hver er fynd­inn? Vinir mínir eru fram­úr­skar­andi fyndið fólk. Svo er auð­vitað enda­laust af grínistum, það er bara ekk­ert fyndið við að telja þá upp.

Hver er leið­in­legur? Fólk sem tekur sig of hátíð­lega.

Trúir þú á drauga? Ég trúi ekki á þá og þeir ekki á mig. Að öðru leyti náum við ágæt­lega saman.

Stærsta augna­blikið? Í hvert sinn sem maður frum­sýnir nýtt verk.

Mynd/ Sindri Swan

Mestu von­brigðin?  Að verða full­orð­inn. Svo mikil von­brigði að við gerðum heila leik­sýn­ingu um það!

Hver er draum­ur­inn? Að fá tæki­færi og vett­vang til að hrinda drauma­verk­efnum í alls­konar listum í fram­kvæmd. Skapa leik­hús, tón­list og alls­konar með ein­vala­liði snill­inga.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Semja, æfa og frum­sýna grín­sýn­ing­una Full­orðin hjá Leik­fé­lagi Akur­eyrar með frá­bæru fólki. Aldrei verið jafn mikil þörf fyrir hlátur og einmitt núna.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Aldeilis ekki. Setti mér líka mark­mið um að setja mér fleiri mark­mið og er ekki heldur búinn að ná því.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Já, en það varðar bæði við höf­und­ar­rétt­ar­lög og almenn hegn­ing­ar­lög að hafa hann eftir.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Að fá hlát­ur­skast á versta tíma við athöfn í kirkju.

Sorg­leg­asta stundin? Að kveðja fólk sem manni þykir vænt um.

Mesta gleðin? Að fá að starfa við það sem veitir manni inn­blástur og ánægju alla daga.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Hafa gaman af því sem maður gerir og gera hlut­ina vel!

Mynd/ Sindri Swan
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ