Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Skúli í Subway um Svein Andra: „Hann tældi unga nýmóður fyrir nokkrum árum“

Skúli í Subway um Svein Andra: „Hann tældi unga nýmóður fyrir nokkrum árum“
Sveinn Andri Sveins­son.

„Sveinn Andri er ekki ein­göngu þekktur fyrir að tæla til sín ung­lings­stúlkur heldur hefur hann tælt til sín ungar konur sem eru veikar fyrir vegna fíkni­vanda og borið í þær vímu­efni. Þannig nýtir lög­mað­ur­inn sér neyð þeirra og kemur fram vilja sínum. Um þetta hefur verið fjallað á opin­berum vett­vangi,“ skrifar Skúli Gunnar Sig­fús­son, sem oft er kenndur við Subway, í aðsendri grein á Vísi í dag. Skúli er harð­orður í garð Sveins Andra Sveins­sonar lög­manns sem hefur herjað á hann um end­ur­greiðslur vegna þrota­bús EK 1923 ehf. Hæsti­réttur hefir nú dæmt Skúla til að greiða hálfan millj­arð króna til þrota­bús­ins sem Sveinn Andri stýrir.

Skúli í Subway er harð­orður í grein sinni.

Í grein Skúla í Vísi í dag segir að mikil spill­ing eigi sér stað innan Hæsta­réttar. Hann fer ekki fögrum orðum um dóm­ara máls­ins, Benedikt Bogason, né lög­mann­inn Svein Andra sem hann telur vera vini.

„Það mátti greina glott á íhygl­is­legu and­liti Bene­dikts Boga­sonar, for­seta Hæsta­réttar, þegar hann las upp dóm yfir mér í Hæsta­rétti í vetur leið, þar sem mér var gert að greiða um hálfan millj­arð til þrota­bús EK 1923 ehf,“ skrifar Skúli og heldur áfram.

„Með dóm­inum var Sveinn Andri Sveins­son, lög­maður sem sat þarna og hlust­aði fjöðrum feng­inn á vin sinn lesa dóm­inn, að fá upp í hend­urnar hátt á annað hund­rað millj­ónir í þóknun fyrir að sýsla með þrotabú milli­stórrar heild­sölu.“

Skúli vill meina að sökum vin­skapar Sveins Andra og Bene­dikts, hafi sá síðar nefndi verið van­hæfur til að dæma í mál­inu og undr­ast hann mjög nið­ur­stöðu dóms­ins: „Þessa nið­ur­stöðu höfðu ýmsir lög­menn, sem gjör­þekktu málið, aldrei hug­mynda­flug til að setja fram sem fjar­lægan mögu­leika þegar ég hafði þrá­spurt þá í nokkra mán­uði um allar hugs­an­legar dóms­nið­ur­stöður Hæsta­réttar.“

„Hæsti­réttur kúventi þarna dómi Lands­réttar, sem hafði á vor­mán­uðum síð­asta árs fellt vel ígrund­aðan og rök­studdan dóm mér í vil,“ skrifar Skúli.

Skúli hafði áður gert þá kröfu að Benedikt Bogason viki sæti í mál­inu fyrir Hæsta­rétti. Og benti á vin­skap þeirra Sveins Andra og Boga. „Sveinn Andri hafði stuttu áður birt á Facebook mynd af sjálfum sér með Benedikt Bogasyni í útskrift­ar­veislu dætra Sveins Andra. Hann merkti vin sinn, hæsta­rétt­ar­dóm­ar­ann, sér­stak­lega í færsl­unni með yfir­skrift­inni: „Sveinn A Sveins­son og Benni Boga eru saman.”

Síðasta sumar birt­ist frétt þess efnis og segir Skúli að Benedikt hafi lengi fal­ast eftir emb­ætti Hæsta­rétt­ar­dóm­ara og því hafi hann tekið því afar illa þegar fréttin hafi birst um þá kröfu Skúla að Bogi viki í mál­inu.

„Benedikt Bogason hafði stefnt að því í ára­tugi að öðl­ast þetta æðsta emb­ætti íslensks dóms­valds og mér er sagt að hann hafi bliknað og blánað af bræði þegar fréttin birt­ist. Hún birt­ist á laug­ar­degi og tveimur dögum síðar stóð til að kjósa for­seta Hæsta­réttar. Eftir þetta átti ég mér tæp­lega við­reisnar von með mála­rekst­ur­inn fyrir Hæsta­rétti Íslands“.

Segist Skúli viss um að í kjöl­far birt­ingu frétt­ar­innar hafi Benedikt ákveðið að dæma gegn Skúla.

„Ég er sann­færður um að á þessum tíma­punkti hafi Benedikt Bogason ákveðið að „sekta“ mig í raun um hálfan millj­arð fyrir að benda á náinn vin­skap hans við mann sem hefur verið þekktur fyrir að tæla ung­lings­stúlkur til fylgilags við sig. Sú sekt er ekk­ert smá­ræði — um helm­ingur af nýju varð­skipi svo að tekið sé dæmi.“

Skúli segir að Sveinn Andri hafi fellt unga móður, sem hafi í kjöl­farið aldrei náð sér og að lokum tekið sitt eigið líf inni á Vogi.

„Þessi per­sónu­legi vinur Bene­dikts Boga­sonar, nú for­seta Hæsta­réttar, er gæddur þeirri ónátt­úru að hann tældi unga nýmóður fyrir nokkrum árum þegar hún var nýkomin úr með­ferð við fíkni­vanda. Móðirin hafði ætlað sér að standa sig fyrir ungt barn sitt en lög­mað­ur­inn taldi hana á að þiggja frekar áfengi og kókaín heima hjá sér en að fara til barns­ins síns.“

Segir hann þetta hafi komið fram í fjöl­miðlum og sé alkunna.

Skúli segir Benedikt hafi ótt­ast það að vera ekki kjör­inn for­seti Hæsta­réttar vegna birt­ingu áður­nefndar fréttar um vin­skap hans og Sveins Andra.

„Benedikt hefur hugs­an­lega talið að fréttin um náin tengsl hans við mann, sem sumir telja einn alræmdasta barna­perra lög­manns­stétt­ar­innar fyrir utan Róbert Downey, gæti stofnað því í hættu að hann yrði kjör­inn for­seti Hæsta­réttar. Það gæti skýrt bræðiskast hans og hefnd­ar­þorsta. Í kjöl­far fjöl­miðlaum­fjöll­unar sagði Benedikt sig frá mál­inu en ég er engu að síður sann­færður um að hann hefur beitt áhrifum sínum til að fá fram þessa frá­leitu dóms­nið­ur­stöðu.“

Samkvæmt Skúla vita allir lög­menn að Sveinn Andri fær ávalt úthlutað bestu þrota­bú­unum og segir „dóm­araklík­una“ slá „þögg­un­ar­skjald­borg“ um Svein Andra og hans menn.

„Sveinn Andri Sveins­son, Símon Sig­valda­son og Benedikt Bogason eru allir hluti af sömu klíku lög­manna og dóm­ara sem fer með ógn­ar­völd og svífst einskis til að vernda sína og veita þeim braut­ar­gengi. Þetta er ný kyn­slóð elítu sem í eru ein­göngu hægri­s­inn­aðir mið­aldra karl­menn sem flestir voru saman í laga­deild HÍ um og upp úr miðjum níunda ára­tugnum. Vinfengi æðstu manna íslensks dóms­kerfis við lög­mann sem hefur orðið upp­vís að stór­kost­lega ámæl­is­verðum sið­ferð­is­brotum gagn­vart stúlkum nýkomnum af barns­aldri — sem í þokka­bót hafa leitað ásjár hans sem lög­manns — vekur upp áleitnar spurn­ingar um sið­ferðið sem þar þrífst.

Áður en ég fór í gegnum þessa martröð sem þetta dóms­mál hefur verið hafði ég ekki trú á því að spill­ing þrif­ist í íslensku dóms­kerfi – hvað þá í Hæsta­rétti Íslands. Ég var sann­færður um að við værum svo miklu fremri flestum öðrum þjóðum og að spill­ingu í dóms­kerfi væri ein­göngu að finna í van­þró­uðum löndum og ban­ana­lýð­veldum. Þessi reynsla sem ég hef gengið í gegnum hefur kennt mér að ég hafði rangt fyrir mér.“

Skúli segir nið­ur­stöðu dóms­ins frá­leita og afar alvar­legt ef fórn­ar­lömb ofbeldis lendi í spill­ingu dóms­kerf­is­ins.

„Með sölu eigna, þ.m.t. heim­ilis míns, get ég staðið undir því að borga fyrir frá­leita nið­ur­stöðu dóms­ins sem hér hefur verið rakin. Mér er engin vor­kunn þar sem ein­göngu er um pen­inga að ræða, þótt ég við­ur­kenni fús­lega að þetta áfall hefur tekið veru­lega á mig and­lega. Það er aftur á móti mun alvar­legra þegar fórn­ar­lömb ofbeldis verða fyrir barð­inu á spill­ingu í íslenska dóms­kerf­inu og að því mun koma ef það hefur ekki þegar gerst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ