Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Góða systir til hjálpar Bubba: Lamaður maður fékk loksins ferðafrelsi

Góða systir til hjálpar Bubba: Lamaður maður fékk loksins ferðafrelsi

Hinn 75 ára Flat­eyr­ingur, Guðbjörn Páll Sölvason, er ekki lengur kyrr­settur inni á stofnun, bund­inn við hjóla­stól án auka­hjálpa­tækis til þess að fara í og úr stólnum. Hópur fólks hefur nú útvegað honum dýrt hjálp­ar­tæki sem honum var neitað um á stofn­un­inni, svo hann kom­ist út í hjóla­stóli sínum. Slíkt hjálp­ar­tæki er til staðar inni á Hrafn­istu en stendur honum ekki til boða utan hennar. Dóttir hans hefur barist ötul­lega fyrir rétt­indum föður síns og fann lausn­ina á end­anum.

Sigrún Lilja Guð­björns­dóttir segir farir föður síns Guð­björns Páls Sölva­sonar, eða Bubba eins og hann er jafnan kall­aður,  ekki sléttar í sam­bandi við það að hann á engan rétt á hjálp­ar­tækjum utan Hrafn­istu í Hafn­ar­firði þar sem hann dvelur og á lög­heim­ili.

Guðbjörn sem er  75 ára Flat­eyr­ingur fékk heila­blóð­fall fyrir tveimur árum sem skerti heilsu hans og hann er eftir það bund­inn við hjóla­stól og þurfti í kjöl­farið að leggj­ast inn á stofnun. Hann er þó svo lán­samur að eiga góða að sem vilja ferð­ast með hann á hans heima­slóð­irnar á flat­eyri. Fyr­ir­huguð ferð vestur á firði þann 17. júní næst­kom­andi.

Guðbjörn Páll Sölvason

Frelsissvipting

Það er ekki nóg fyrir Guðbjörn að vera ein­ungis með hjóla­stól með­ferðis, hann þarf búnað sem heitir Sara Stedy til þess að kom­ast í og úr stólnum. Hann fær enga þjón­ustu hjá Sjúkra­trygg­ingum því hann er orð­inn íbúi á Hrafn­istu í Harn­ar­firði og sú stofnun á að standa straum af öllum kostn­aði sem fylgir honum. Hrafn­ista hefur ekki fjár­magn til þess að verða við því að útvega fólki þessi tæki. En Sigrún fann leið­ina til að tryggja föður sínum ferða­frelsi.

Bún­að­ur­inn sem Guðbjörn þarf nauð­syn­lega að hafa utan hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins

 Nýjar reglur á Hrafn­istu

„Þetta var ekki vanda­mál áður. Hrafn­ista hefur lánað okkur Söruna út af stofn­un­inni þegar þess hefur þurft en nú eru komnar nýjar reglur sem banna alfarið að svona tæki séu tekin út af stofn­un­inni. Pabbi sagði við mig nýverið vegan ástands­ins : „Ég er víst ekki mann­eskja,“ hefur Sigrún Lilja eftir föður sínum.

Kerfið ekki fyrir fólkið

„Hjúkr­un­ar­heim­ili er skil­greint á sama hátt og sjúkra­hús, þrátt fyrir það að ein­stak­ling­ur­inn eigi lög­heim­ili þar, ekki getur fólk átt lög­heim­ili á sjúkra­húsi, segir Sigrún Lilja. Þar að auki greiðir fólk fyrir það að dvelja á hjúkr­un­ar­heim­ilum. Það er eitt­hvað mikið að því kerfi sem við búum við þegar kemur að þessu,“ bætir Sigrún við.

Leitaði á náðir Góðrar systur

Sigrún Lilja brá á það ráð að leita hjálpar hjá hópnum Góða systir á Facebook og þar létu við­brögðin ekki á sér standa. Söfnun til styrktar Guðbirni bar strax árangur. Vandinn er þó enn til staðar og almenn­ingur á ekki að þurfa að standa straum af kostn­aði á sjálf­sögðum hjálp­ar­tækjum sem fólk þarf nauð­syn­lega á að halda utan stofn­ana. Það er alls ekki hægt að loka fólk  inni og skerða þannig tíma þess með ást­vinum og fjöl­skyldu utan stofn­an­anna. Séu engin hjálp­ar­tæki í boði fyrir þá sem á þurfa að halda utan stofn­ana segir það sig sjálft að fólki er ekki gert kleift að yfir­gefa stofn­un­ina.

Títus rétti hjálparhönd

Þetta er einnig vanda­mál þegar fólk þarf að leita til tann­læknis svo dæmi sé tekið og í fleiri aðstæðum sem falla til. Í til­felli Guð­björns getur hann ekki með nokkru móti farið úr hjóla­stólnum yfir í tann­lækna­stól og verður því að sitja í honum þegar hann þarf á slíki þjón­ustu að halda. Sigrún fann Söru Stedy hjá fyr­ir­tæki sem heitir Títus á 229.800 krónur en hún segir að hún sé varla að trúa góð­mennsku fólks bæði í gegnum Góða systir sem og góð­mennsku  eig­enda Títus. Þau sögðu henni að hún gæti fengið bún­að­inn strax og greitt fyrir hann eftir því sem safn­að­ist upp í hann með söfn­un­inni sem Sigrún setti af stað fyrir föður sinn inni á Góða systir. Safnast hefur að fullu fyrir bún­aðnum og eru Sigrún og faðir hennar ákaf­lega þakk­lát öllu því góða fólki sem lagði föður hennar lið.

Það er bæði slæmt fyrir Guðbjörn og tann­lækn­inn að hann geti ekki kom­ist í tann­lækna­stól­inn

Eldri borg­arar og öryrkjar, geta í mörgum til­vikum ekki sótt í nauð­syn­leg hjálp­ar­tæki utan stofn­ana. Hrafn­ista eða önnur hjúkr­un­ar­heim­ili geta alls ekki staðið undir þeim kostn­aði enda ástandið allt annað en gott sé litið til fjár­veit­inga til þess­arra stofn­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ