Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Njáll Trausti sigraði þrátt fyrir andstöðu Þorsteins Más: Flugumferðarstjórinn sem varð þingmaður

Njáll Trausti sigraði þrátt fyrir andstöðu Þorsteins Más: Flugumferðarstjórinn sem varð þingmaður
Njáll Trausti Frið­berts­son sigr­aði í próf­kjöri flokks­ins, þrátt fyrir and­stöðu valda­mik­ils fólks.

Í nýlegri grein Kjarnans kemur fram að í sam­ræðum „skæru­liða­deildar“ Samherja sé það und­ir­strikað að Þor­steinn Már Bald­vins­son vilji ekki að Njáll Trausti Frið­berts­son verði næsti odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Njáll Trausti, sem er þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, var eigi að síður val­inn í efsta sæti lista flokks­ins í próf­kjöri. Hann segir í sam­tali við Mannlíf að hann viti ekki hvað sé á bak við þetta og að þetta hafi ekki mikil áhrif á sig. Hann talar hér líka um áherslur sínar í stjórn­mál­unum, Akureyri, Varðberg og norð­ur­slóðir.

„Ég veit ekki nákvæm­lega hvað er á bak við þetta þannig að ég er ekki að fabúlera neitt. Þetta er ekk­ert að hafa mikil áhrif á mig. Ég held bara mínu striki,“ segir Njáll Trausti Frið­berts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, varð­andi það að í nýlegri grein Kjarnans kemur fram að í sam­ræðum „skæru­liða­deildar“ Samherja sé það und­ir­strikað að Þor­steinn Már Bald­vins­son vildi ekki að hann verði næsti odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. 

„Samherji er mik­il­vægt fyr­ir­tæki fyrir norðan og ég hef alltaf verið jákvæður gagn­vart þeim þannig að ég hef ekk­ert til að kommenta í sjálfu sér um það. Ég hef líka fundið fyrir góðum stuðn­ingi frá starfs­fólki Samherja þannig að það er ekki eins og allt fyr­ir­tækið sé með þessa afstöðu“.

Í próf­kjöri flokks­ins um síð­ast­liðna helgi kom svo í ljós að Njáll Trausti muni leiða lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Hann er spurður hverju hann vilji ná fram í stjórn­málum.

Flugumferðarstjóri á þing

„Ég hef mik­inn áhuga á mörgum mál­efnum sem styrkja sam­fé­lagið. Ég stofn­aði á sínum tíma félagið Hjartað í Vatns­mýr­inni ásamt félögum mínum en áhersla í þeim félags­skap er að verja stöðu Reykja­vík­ur­flug­vallar í Vatns­mýr­inni.  Það er að verja stöðu þessa gríð­ar­lega mik­il­væga sam­göngu­mann­virkis sem flug­völl­ur­inn er. Hvort sem litið er til sjúkra­flugs­ins, hlut­verks vall­ar­ins sem vara­flug­vallar eða þess mik­il­væga hlut­verk sem hann gegnir í sam­göngu­málum lands­manna. Hér er um grund­vallar­ör­ygg­is­mál að ræða. Áður en ég fór á þing var ég í bæj­ar­mál­efnum á Akureyri; ég byrj­aði að taka þátt í þeim af fullum krafti árið 2010. Þau er býsna mörg mál­efnin sem mér finnst skipta máli sem ég vil ná fram­gang í,“ segir Njáll sem sett­ist á þing árið 2016 en hann starf­aði við flug­um­ferð­ar­stjórn fyrir norðan í fjölda ára.

„Ég hef til dæmis áhuga á upp­bygg­ingu Akur­eyr­ar­flug­vallar, upp­bygg­ingu Egils­staða­flug­vallar og alþjóða­flug­valla­kerfi lands­ins. Þetta er bara þjóðar­ör­ygg­is­mál. Það sama er að segja um raf­orku­kerfi og fjar­skipti. Ég hef ein­fald­lega áhuga á að byggja upp sam­fé­lagið og styrkja það og þar gegna sam­göngu­málin auð­vitað mik­il­vægu hlut­verki hvort sem er í lofti, láði eða legi. Öflug verð­mæta­sköpun er for­senda fyrir því að hægt sé að byggja upp sterkt vel­ferð­ar­sam­fé­lag og ég hef alltaf haft áhuga á að taka þátt í því verk­efni. Mér finnst ég hafa mikið fram að færa sem teng­ist mörgum sviðum. Það eru margir boltar á lofti“.

Njáll seg­ist ekki dreyma um ráð­herra­stól. 

„Stuðn­ings­menn mínir tala mikið um sam­göngu­ráðu­neytið en ég hef mikið rætt um sam­göngu­mál hvort sem það er flugið eða vegir sem þarf að styrkja. Ég er líka áhuga­samur um ferða­mál og má geta þess að þegar ég var í við­skipta­fræði­námi þá lagði ég áherslu á ferða­þjón­ustu í öllu því námi og loka­verk­efnið teng­ist hag­rænum áhrifum í ferða­þjón­ustu. Þetta var fyrir 17 árum þegar eng­inn var að pæla í þessu“.

NATO og norðurslóðir

Njáll Trausti er for­maður Íslands­deildar NATO-þings­ins og er hann auk þess einn af vara­for­mönnum vís­inda- og tækni­nefndar NATO-þings­ins. Þá er hann vara­for­maður Utan­rík­is­mála­nefndar. Njáll er for­maður Varð­bergs sem eru sam­tök um vest­ræna sam­vinnu og alþjóða­mál. 

„Ég varð for­maður Varð­bergs í vetur þegar Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, hætti sem for­maður; hann var búinn að vera for­maður í 10 ár. Það vant­aði mann til að taka við og var leitað til mín þar sem vitað var að ég hafði kynnt mér þessi mál vel og var vel inni í þessum málum.“

Á gam­al­kunnum slóðum í flug­um­ferð­ar­turn­inum.

Njáll Trausti var í Íslands­deild þing­manna­ráð­stefn­unnar um norð­ur­skauts­mál 2017 og tók þátt í vinnu við gerð nýrrar norð­ur­slóða­stefnu fyrir Ísland. 

„Ég held að við eigum að gera okkur gild á norð­ur­slóðum. Það búa bara um fjórar millj­ónir á þessum skil­greindu norð­ur­slóðum og við erum um 10 pró­sent af þeim mann­fjölda. Þannig að þetta skiptir okkur gríð­ar­legu máli. Það er margt að ger­ast í þessum heims­hluta og áhug­inn fer vax­andi í alþjóða­stjórn­mál­unum á mál­efnum norð­ur­slóða svo sem í tengslum við lofts­lags­mál, öryggis- og varn­ar­mál og í sam­bandi við sigl­inga­leið­irnar og ég hugsa að norð­ur­slóða­mál verði einn af meg­in­þáttum í utan­rík­is­mála­stefnu Íslands á næstu árum og ára­tugum. Áhugi á norð­ur­slóðum hefur auk­ist mikið á und­an­förnum árum og ég finn það á NATO-þing­inu hvað áhersl­urnar hafa beinst þangað“.

Þjónustan og skógurinn

Njáll ólst upp á Sel­tjarn­ar­nesi, lék sér úti í Gróttu, og æfði fót­bolta með KR þar til álagið var of mikið á hnén og hann hætti. Hann var lestr­ar­hestur og seg­ist 10 ára gam­all hafi lesið blöðin í um tvo tíma á dag. Hann fylgd­ist með því sem var að ger­ast í þjóð­fé­lag­inu og úti í hinum stóra heimi. Svo hafði hann áhuga á ljós­myndun sem hann gerir enn.

Hann lærði flug­um­ferð­ar­stjórn og flutti til Akur­eyrar rúm­lega tví­tugur til að vinna þar í nokkur ár en hann þekkti Norð­ur­land vel þar sem hann hafði verið í sveit á sumrin á æsku­ár­unum hjá ætt­ingjum fyrir norðan. Síðan eru liðin 30 ár og á Akureyri á hann konu, tvo syni og tík­ina Bellu sem fer með hús­bónda sínum í göngu­ferðir. 

Njáll Trausti nýtur þess að stunda úti­vist. Hér er hann með hundi sínum.

„Ég bý í Nausta­hverfi á Akureyri og þar er allt við hend­ina; stutt í alla þjón­ustu og ég er kom­inn út í skóg eftir stutta göngu. Ég átt­aði mig á því eftir að ég flutti norður hversu geysi­lega fal­legt umhverfið er. Það er ann­ars almennt gott að búa á Íslandi og ég hef kom­ist að því svo sem þegar ég var skiptinemi í Banda­ríkj­unum á sínum tíma og svo þegar maður hefur ferð­ast víða um heim­inn. Við höfum það almennt mjög gott á Íslandi. Verk­efnið hlýtur hins vegar alltaf að vera að gera enn betur. Um það snú­ast stjórn­málin“.

Seltirn­ingur sem varð Akur­eyr­ingur. Njáll er spurður sam­visku­spurn­ingar. Hvað eru tröpp­urnar margar sem liggja upp að Akur­eyr­ar­kirkju?

„Eru þær ekki 107? Ég held þær séu 107.“

Rétt svar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ