Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Handtökuskipun gefin út á Siggu Kling: „Er samt ekki að meika neina líkamsleit“

Handtökuskipun gefin út á Siggu Kling: „Er samt ekki að meika neina líkamsleit“

„Ég fékk hand­töku­skipun, fjóra daga á Hólms­heið­inni. Haltu á ketti hvað mér finnd­ist ofsa­lega for­vitni­legt að kíkja við og sitja inni í sveit­inni í nokkra daga. Senni­lega leið­ist föng­unum og fang­els­is­yf­ir­völdum vant­aði ein­hvern til að hressa þá við, klappa á bakið og svona. Það er eina skýr­ingin sem mér dettur í hug að þeir hafi áhuga á mér því mér skilst að það sé því­líkt löng bið eftir afplánun,” segir Sigga Kling, lífskúnstner með meiru.

„Mér finnst aga­lega gaman að horfa á heim­ilda­myndir um fang­elsi og var bara spennt fyrir þessu. Ég er samt ekki að meika neina lík­ams­leit, ekki séns að ein­hver fái að skoða undir júll­urnar á mér!” segir Sigga skelli­hlæj­andi.

Kom hágrenjandi heim

Sigga seg­ist vera lög­hlýðin með afbrigðum og ekki nenna neinu ves­eni en hún hafi lent nýlega í því að vera stoppuð af lög­regl­unni fyrir að vera yfir hraða­mörkum.

„Sem er merki­legt því ég keyri eins og túristi, alltof hægt og með hasar­d­ljósin á svo það er sífellt verið að flauta á mig. Ég er til dæmis alveg skít­hrædd við stóra bíla og kom heim hágrenj­andi um dag­inn þegar einn af þessum stóru trukkum með risa­dekk hræddi mig til dauða. Hann var næstum búinn að keyra yfir mig, held ég.“

Sigga sést sjaldan hatt­laus enda smekk­kona.

„Ég ráð­legg alltaf konum sem eru í maka­leit að finna sér mann sem er góður við aðra í umferð­inni og öskrar ekki á fólk eins og mig. Það segir margt um karl­mann hvort hann kemur vel fram við fólk sem ekki er að gera hlut­ina rétt”.

Sigga segir að hún muni að öllum lík­indum ekki sitja inn þar sem hún sé ekki spennt fyrir að fara á saka­skrá.

„Ætli ég endi ekki á að borga sekt­ina í stað­inn. Allavega mælir vin­kona mín sem er lög­fræð­ingur með því. En ég ætla pott­þétt að ramma inn hand­töku­skip­un­ina og finna veg­legan stað uppi á vegg fyrir hana”.

Hin alíslenska redding

Sigga er spennt fyrir sumr­inu og fram­tíð­inni almennt. „Ég vona að við dettum ekki í sama normið og fyrir þessa blessuðu Covid óværu því normið er svo leið­in­legt. Núna er yfir svo mörgu að gleðj­ast sem maður hugs­aði ekki út í áður, maður getur til dæmis alveg pissað í sig af gleði yfir að losna við grímuna. Nú er tæki­færið til að hugsa hlut­ina upp á nýtt. Á meðan þetta gekk yfir fundum við ný tæki­færi og nýjar leiðir til að lifa þessa ömurð af. Ég var til dæmis atvinnu­laus í heilt ár en lærði bara að hugsa hlut­ina upp á nýtt og fann leiðir til að gera hitt og þetta.

Við skulum ekki gleyma því að hið alís­lenska „þetta redd­ast” er ekki til í neinu öðru tungu­máli.

Sigga er í bull­andi stuði fyrir sumr­inu.

Fyrir utan reiða bíl­stjóra er ekki margt sem pirrar Siggu. Nema biðraðir. „En lærði það í tveggja metra regl­unni að bíða í bið­röðum sem þroskaði þol­in­mæði mína. Svo gleymdi ég alltaf grímunni og komst ekki inn í mat­vöru­versl­anir svo ég létt­ist um 7 kíló af gleymsk­unni einni

Hættu að vera leiðinleg!

Sigga heldur fyr­ir­lestra út um allt, í skólum, stofn­unum og fyr­ir­tækjum þar sem hún hvetur til jákvæðni og gleði. „Það er ekki eðl­is­lægt að vera jákvæður, það er ákvörðun sem maður þarf að taka með sjálfum sér á hverjum degi. Ég gæti skilið við karl og komið upp­komnum krökkum úr húsi en ég þarf að lifa með sjálfri mér. Stundum segi ég við sjálfa mig á morgn­ana: „Sigga! Ef þú hættir ekki að vera svona leið­in­leg fer ég ekki út með þér í dag. Tek sjálfa mig í hnakka­drambið og trixa mig til. Og hlæ að sjálfri mér.”

Sigga er reyndar síhlæj­andi. Og alltaf óað­finn­an­lega útlít­andi.

„Mottóið er að vera alltaf til­búin til að fara í fimm­tugs­af­mæli með engum fyr­ir­vara. Þú myndir ekki hitta mig á Esjunni nema með bleikan lipp­ara. Ekki séns”.

Spræk eins og nýhreinsaður hundur

Húmorinn er allt að mati Siggu. Hún getur ekki lifað án hans og segir nei­kvæðn­ina éta fólk upp.

„Það bjargar manni að hressa aðra við enda erum við öll ein heild. Og það er bless­un­ar­lega smit­andi. Ég er jafn spræk og nýhreins­aður hundur eftir þennan far­aldur og gleðst meira yfir litlu hlut­unum. Ég held að við höfum lært margt og munum hætta að böðl­ast um á þessu enda­lausa hamstra­hjóli við vorum föst í. Við munum snerta meira, elska meira, kunna að meta landið okkar og finna til meiri sam­kenndar hvort með öðru, ekki síst gamla fólk­inu. Sjáðu til dæmis börn! Ef þau fæ ekki snert­ingu deyja þau og sjálf erum við ekk­ert annað en stór börn sem þurfum að gefa hvort öðru klappa á bakið. Sjálf er ég val­hopp­andi af kæti og knúsa ókunn­uga núna þegar ég fæ loks­ins tæki­færi til“.

Mottóið er að vera alltaf til fara eins og maður sé að fara í fimm­tugs­af­mæli segir Sigga sem aldrei sést án vara­lits.

Ekkert samviskubit í sumar!

Komandi sumar er Siggu mjög í huga þessa dag­ana. „Það er alltof margi fullir af sam­visku­biti á sumrin og gera þá kröfu á sjálfa sig að vera á yfir­snún­ingi alla daga í sum­ar­dressi, fullir af fyr­ir­ætl­unum um að skemmta börn­unum hægri og vinstri á sól­ar­dögum. Ég segi bara eins og í AA: Taka einn dag í einu. Það þarf svo lítið til til að finna ham­ingj­una. Ég hef til dæmis farið reglu­lega upp að Hval­eyr­ar­vatni síð­ustu 40 ár. Þar veiðum við síli, grillum og börnin sulla. Heill­andi! Það er ynd­is­legt og margar bestu minn­ingar barn­anna minna eru þaðan. Svo má ekki gleyma hvítu strönd­inni á Álfta­nesi sem er í beinu flúkti við Snæ­fells­jökul­inn. Það er bara nákvæm­lega eins og að vera komin til útlanda“.

Sigga aftekur með öllu að eyða þurfi miklu til að njóta kom­andi sum­ar­daga.

„Ég fór oft í labbitúr í Heið­mörk­ina með krakk­ana þegar ég var ung og blönk. Setti bara djús á brúsa og smurði nesti og pakk­aði í kerruna. Þetta er hlut­irnir sem gleðja börnin okkar, þau þurfa ekki mikið, það þarf bara að skilja þau, vera góð þau og elska þau. Ég elska börn út af líf­inu og er svo heppin að eiga stóran hóp af barna­börnum“.

Lifði af fallhlífastökkið af

Hún er full af plönum.

„Ég við­ur­kenni reyndar að ég er fík­ill í alls kyns loppu­mark­aði, ég kaupi svo mikið að húsið er smekk­fullt. Núna kem ég ekki meiru fyrir og er búin að redda mér sendi­ferða­bíl á morgun og ætla að fylla hann af barna­fötum og dóti og selja í gull­inu mínu í Holta­görðum um helg­ina, það er svo gott fyrir umhverfið að geta end­ur­nýtt og ég ætla að selja þetta á ein­hverja hund­rað­kalla. Þá get ég byrjað að safna aftur.“

Hvað annað dreymir Siggu um? „Ég er með „bucket lista”. Sumt af því er búið. Ég fór til dæmis í fall­hlífa­stökk og grenj­aði úr mér augun þegar ég kvaddi krakk­ana, en þorði því samt. Og lifði það af. Var samt hræði­legt. Næst er það sjó­sund, það er í næstu viku. Svo lang­aði mig að koma upp upp aðstöðu fyrir hlað­varp heima hjá mér en ég ætla að byrja með alls konar útsend­ingar. Húmor og skemmti­leg­heit með alls konar fólki. Ég minnt­ist á það við æsku­vin minn sem bara gekk í málið og nú er allt reddí“.

Sigga þarf að hlaupa. Hún er á sífelldum hlaupum. Orkan og lífs­gleðin er enda­laus.

„En má ég bæta einu við í lokin áður en ég rýk? Hættið að slá allan gróður niður í svörð! Leyfum okkur smá­stund að njóta þess grass og þeirra blóma sem vilja bless­un­ar­lega byggja landið okkar eftir langan vetur. Plís,“ segir Sigga í sum­ar­skapi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ