Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Þorvaldur myrti fyrrverandi eiginkonu sína og setti í baðkarið: „Öllu er lokið“

Þorvaldur myrti fyrrverandi eiginkonu sína og setti í baðkarið: „Öllu er lokið“

Það var rétt ríf­lega klukkan 9 að morgni laug­ar­dags­ins 7. jan­úar árið 1967, að kona, búsett að Kvist­haga 25 í Reykja­vík, hringdi í lög­reglu og kvaðst telja að eitt­hvað skelfi­legt væri í gangi á neðri hæð húss­ins. Hafði hún bankað upp á til að kanna hvað á gengi og hafði rödd kallað til hennar að kalla til lög­reglu sem hún og gerði.

Hræðileg sjón

Tveir lög­reglu­þjónar mættu þegar á stað­inn og hittu þar fyrir Þorvald Ara Arason, vel þekktan 38 ára gamlan lög­fræð­ing, sitj­andi á úti­dyra­tröppum húss­ins. Þor­valdur var blóð­ugur, sér­stak­lega á hönd­unum, drukk­inn en ann­ars afar rólegur. Í gegnum störf sín þekktu lög­reglu­menn­irnir vel til Þor­valdar og þegar þeir spurðu hann um hvað á gengi svar­aði Þor­valdur hinn róleg­asti: „Eig­in­lega ekk­ert, öllu er lokið.“

Þor­valdur tók vel í þá beiðni lög­reglu­mann­anna að hinkra við á tröpp­unum á meðan að þeir könn­uðu málið nánar. Við augum þeirra blasti hræði­leg sjón þegar þeir stigu inn í íbúð­ina. Íbúðin var þakin blóði blóði, jafnt á gólfi og veggjum, og ljóst að hrylli­legir atburðir höfðu átt sér stað.

Mesti blóð­fer­ill­inn var í tveim for­stofum íbúð­ar­innar. Þegar lög­reglu­þjón­arnir litu inn á bað­her­bergið fundu þeir mjög illa farið lík konu í baðkar­inu en konan var með fjölda svöðusára, meðal ann­ars á and­liti, brjósti og kvið. Af blóðslóð virt­ist aug­ljóst að ráð­ist hefði verið á kon­una í for­stofu og hún dregin inn bað­her­bergið og lögð í baðkarið.

Konan reynd­ist vera Hjördís Ulla Vil­hjálms­dóttir, jafn­aldra Þor­valdar, fyrr­ver­andi eig­in­kona hans og móðir fjög­urra barna þeirra, sex ára telpu og þriggja drengja á aldr­inum átta til tólf ára.

Sótti meira áfengi….og hníf

Þor­valdur og Hjördís höfðu skilið mán­uði fyrir morðið en þau höfðu gengið í hjóna­band árið 1953 og áttu saman þrjá drengi og eina stúlku. Þeir sem til þekktu vissu að Þorvaldi hafði verið skiln­að­inum á móti skapi, hafði mætt stop­ult til vinnu og drukkið mikið. Aftur á móti kváðu sam­starfs­menn hans hafa verið þægi­legan, allt að því afskipta­lausan, á vinnu­stað en aug­ljós­lega sleg­inn. Kom verkn­að­ur­inn afar flatt upp á þá.

Þennan örlaga­ríka dag voru synir þeirra Hjör­dísar og Þor­valdar ekki heima en dóttir þeirra og frænkur Þor­valdar, mæðgur, staddar í íbúð­inni með Hjördísi. Um klukkan tíu á föstu­dags­kvöld­inu fór Þor­valdur á bar­inn á Naustinu sem þá var, drakk viskí, spjall­aði við fólk og var hinn hress­asti að sögn starfs­fólks Nausts­ins. Þegar Naustinu sleppti fór Þor­valdur með hópi fólks í sam­kvæmi og greiddi Þor­valdur leigu­bíla fyrir hóp­inn. Þar var sungið og drukkið og leið svo fram til klukkan fjögur um nótt­ina sem Þor­valdur seg­ist ætla að fara og sækja meira áfengi.

Hann sótti einnig stóran eld­hús­hníf sem sumar heim­ildir segja hafa verið 20 sentí­metra langan en aðrar 30 sentí­metra að lengd.

Braut sér leið inn

Þor­valdur var í sam­kvæm­inu og drakk stíft þar til hann biður um, og fær, far á Kvist­hag­ann rétt fyrir klukkan 8 um morg­un­inn. Hjördís tók alfarið fyrir að hleypa honum inn. Byrjaði þá Þor­valdur að öskra og berja á úti­dyrnar sem end­aði á því að hann braut dyrarúð­una, setti inn hönd­ina, tók úr lás og gekk inn. Hófst þá mikið rifr­ildi sem end­aði með því Þor­valdur dró upp eld­hús­hníf­inn og marg­veitt­ist að Hjördísi. Reyndi eldri frænkan að ganga á milli en fékk sjálf skurð á hné sem reynd­ist ekki alvar­legur.

Lagði Þor­valdur ítrekað til Hjör­dísar sem reyndi að flýja en hné niður af sárum sínum í for­stof­unni. Bar Þor­valdur þá hana inn í bað­her­bergið og setti í baðkarið.

Hjördís var úrskurðuð látin á staðnum og Þor­valdur hand­tek­inn. Hann við­ur­kenndi að hafa komið með hníf­inn með sér en neit­aði að hafa myrt Hjördísi af yfir­lögðu ráði. Kvaðst hann hafa ætlað að láta Hjördísi hafa hníf­inn til að bana honum sjálfum.

Fékk uppreist æru

Þor­valdur var úrskurð­aður sak­hæfur og hófust rétt­ar­höld fyrir luktum dyrum í Sakadómi Reykja­víkur í sept­em­ber. Það þótti afar óvenju­legt en mun hafa verið að beiðni jafnt verj­anda og sækj­anda sem sögðu það gert vegna við­kvæmrar stöðu vitna. Þann 30. októ­ber 1967 var Þor­valdur Ari dæmdur til 16 ára fang­els­is­vistar, sviptur lög­manns­rétt­indum og dæmdur til greiðslu sak­ar­kostn­aðar. Sá dómur var stað­festur í Hæsta­rétti 14. októ­ber ári síðar og hóf Þor­valdur afplánun í fang­els­inu að Litla-Hrauni.

Þor­valdur skrif­aði fjölda greina um íslenska rétt­ar­kerfi á meðan á fang­els­is­vist hans stóð og bar því ekki góða sög­una. Sagði hann enga áherslu á betrun, litið væri á fanga sem svín og ekki hugað að and­legri heilsu þeirra. Hann stund­aði einnig list­muna­gerð og bók­band.

Þorvaldi Ara var sleppt árið 1975, vann verka­manna­vinnu og nam bóka­safns­fræði en fékk aftur full lög­manns­rétt­indi árið 1980

Kristján Eldjárn, fyrr­ver­andi for­seti, lét það verða meðal sinna síð­ustu emb­ætt­is­verka að veita Þorvaldi Ara upp­reist æru árið 1980.

Þor­valdur Ari lést árið 1996.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ