Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kitta og Ágústa taka jaðaríþróttirnar með trompi: „Mikil mismunun í nýsköpunarsamfélaginu“

Kitta og Ágústa taka jaðaríþróttirnar með trompi: „Mikil mismunun í nýsköpunarsamfélaginu“
Nágranna­kon­urnar Kitta og Ágústa fengu hug­mynd að ein­stakri vöru og létu verða að því að stofna fyr­ir­tæki.

„Ef það er ein­hvern tíma tími til að prófa eitt­hvað nýtt og skipta um starfs­vett­vang þá er það þegar maður er í kringum fimm­tugt,” segir Kitta Svans­dóttir en hún Ágústa Grét­ars­dóttir eru eig­endur hönn­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Móbotnu í Reykja­nesbæ.

Kitta og Ágústa hafa vakið mikla athygli jafn inn­an­lands sem utan, fyrir hönnun á fóta­bún­aði fyrir jaðar­í­þrótta­greinar. Þær segj­ast hvergi hafa fundið sam­bæri­lega vöru; fóta­búnað sem jafnt er vatns­heldin, ein­stak­lega slit­þolin, heldur alltaf hita og það sem kannski er það þægi­leg­asta fyrir not­and­ann, algjör­lega án allra sauma og kemur í veg fyrir nuddsár.

Byrjaði allt með kajak

Móbotna er akkúrat eins árs núna í júní. „Í jan­úar 2019 hringir Kitta í mig, hún býr reyndar ská­hallt á móti mér, svo við höldum þessu bara í göt­unni, og seg­ist vera með hug­mynd sem hana langi að láta reyna á. Ég var heima þá, var búin að vera í end­ur­hæf­ingu eftir krabba­meins­með­ferð, en ég er mennt­aður verk­efn­is­stjóri og ákvað að láta vaða,” segir Ágústa.

Ágústa sér um rekstr­ar­legu hlið­ina en ber styrkja­kerf­inu ekki vel sög­una.

Kitta seg­ist alltaf hafa verið mikil hand­verks­kona, haft mikla þörf fyrir að skapa og gera til­raunir með efni og prjónað mikið í gegnum tíð­ina. „Vinur minn er kajak­maður og bað mig um að bjarga fyrir sig sér­stökum sokkum. Þeir þurftu að vera sér­stak­lega styrktir, slit­fríir og án allra sauma. Þá fékk ég hug­mynd­ina að því notað þæfða ull. Sokk­arnir heppn­uð­ust gríð­ar­lega vel og allt fór í gang. Ég er engin papp­írs­kona en var svo ein­stak­lega heppin að fá Ágústu í rekstra­hlut­ann, ég væri enn heima við vaskinn ef hún hefði ekki komið í þetta með mér,” segir Kitta.

Konur mega ekki hugsa sig niður

„Ég skal alveg við­ur­kenna að í byrjun leit ég svo á að ég væri bara kella að prjóna flóka­sokka. Þarna var um að ræða við­horf sem er gjör­breytt í dag enda er maður búin að taka sig í gegn, við höfum öll alveg fullt af hæfi­leikum og ef maður tekur þeim sem gefnum breyt­ist aldrei neitt. Af hverju ekki að nýta sér þá hæfi­leika sem maður hefur?

Kitta í hand­verk­inu. Reynsla hennar af úti­vist kenndi henni að ekk­ert er verra en kaldar tásur.

Konur mega ekki hugsa sig niður, við erum að búa til lúx­usvöru af heilum hug og það er full vinna og ríf­lega það. Aldur og kyn koma því ekk­ert við,” bætir Kitta við.

Verk­efnið vatt fljótt upp á sig og Ágústa hóf að sækja um styrki en það hent­aði henni vel á þessum tíma að vinna heima að frá sér. „Ég hef enga þol­in­mæli í við­skipta­hlut­ann og þoli ekki flóknar spurn­ingar, hún er pæl­ar­inn,” skýtur Kitta inn í.

Lokuð klíka í í nýsköpunar- og frumkvöðlasamfélaginu

Ágústa segir að það hafi komið henni á óvart hversu lokað nýsköp­unar- og frum­kvöðla­sam­fé­lagið sé. Það sé þeirra upp­lifum að nauð­syn­legt sé að þekkja rétta fólkið til að kom­ast áfram. „Við tókum þátt í Til sjávar og sveita, þar sem við komust ekki áfram þrátt fyrir að vera í nýsköpun, þar virt­ist öll áhersla vera á mat­vöru. Við tókum líka þátt í Gul­legg­inu og það var alveg aug­ljóst að þar var löngu búið að ákveða vinn­ings­hafa. Ull­ar­þonið var annað, þar var mikil mis­munun í gangi og við vorum ekki sáttar og komum því á fram­færi”.

Kitta segir þær vitað það núna að þær þurfi ekki á svona „hakka­þonum” að halda. „Við getum þetta sjálfar, þrátt fyrir það”.

Lanhelgisgæslan hrifin

Í dag hefur orð­spor sokk­ana farið út fyrir kajak­iðk­endur og iðk­endur jaðar­í­þrótta. „Það eru til dæmis göngu­hópar að nota sokk­ana, svo og hjóla­hópar og sjó­sunds­fólk er mjög hrifið af þeim. Sér­að­gerð­ar­sveit Land­helg­is­gæsl­unnar er með þá í prufum og er mjög hrifin.”

Leynd­ar­málið að baki eig­in­leika vör­unnar segja þær vera ull­ina. „Við notum ein­göngu ull af for­ystufé. Sú ull er sterk­ari og mikið mýkri en önnur ull, hún er svo mjúk að það má taka þelið af for­ystu­féull­inni og búið til nær­fatnað“.

Ullin af for­ystu­sauð­unum er alltaf marg­lit og ein­stak­lega fal­leg.

Blaða­manni byrjar ósjálfrátt að klæja við hug­mynd­ina um nær­föt úr ull og þær vin­konur hlæja. „Nei, þessi ull stingur ekki. Hún er líka alveg hrein og óunnin, það er ekki búið að þvo hana upp úr neinum kemískum efnum og við kembum hana sjálfar.”

Kormákur og Skjöldur fá ekki nóg

Þær eru í sam­vinnu við Fræða­setur um for­ystufé fyrir norð­austan sem útvega ull­ina. „Eitt af mark­miðum okkar er að merkja hvert par með nafni roll­unnar og núm­era það og merkja árinu, gera hvert par alveg ein­stakt”.

Fóta­bún­að­ur­inn er sér­hann­aður fyrir kulda og bleytu eins og oft vilja fylgja jaðar­íþr

„Við ætl­uðum að nota almenna ull  en þegar við kynnt­ust for­ystu­fésull kom aldrei annað til greina. For­ystufé er sterkara, vits­muna­lega klár­ara en annað fé en líka þrjóskar og frekar, senni­lega vegna þess að þær vita betur en hinar roll­urnar. Og þessir eig­in­leikar skila sér í ull­ina,” segir Kitta. „Ég veit að Kormákur og Skjöldur ætl­uðu að gera jakka­föt úr þess­ari ull en það segir sig sjálft að það er ein­fald­lega ekki hægt að fjölda­fram­leiða vöru á borð við jakka­föt þegar aðeins eru um 1500 for­ystu­sauðir á Íslandi, það er ein­fald­lega ekki til nóg hrá­efni. Þetta hentar aftur á móti afar vel í smá­vörur“.

Kaldar tásur fylgifiskar útivistar

Þær segja það hafi komið skemmi­lega á óvart hversu skemmtiekst­ur­inn sé þrátt fyrir að vera sturluð vinna. „Það er ákveðin skemmtun og spenna í ströggl­inu og það er einnig svo gaman að finna að fólk er að styðja okkur,” segir Ágústa. „Sumt er auð­vitað krefj­andi og manni gætu fall­ist hendur en þetta kemur skemmti­lega á óvart, ég fæ kikk út úr þessu.”

Það verður engum kalt í þessum.

Næst á dag­skrá er að halda áfram fjár­mögnun fyrir vél­bún­aði og Kitta ætlar að heim­sækja hesta­manna­mót og kynna sokk­ana. „Ég var nú eitt­hvað í hesta­mennsku áður og hef alltaf verið mikil úti­vist­ar­mann­eskja og man að það sem bögg­aði mann mest voru kaldir fætur og nuddsár undan saumum”.

Þær Ágústa og Kitta eru stór­huga og telja stóran markað fyrir hönnun sína eða eins og þær benda rétti­lega á: „Eru þær eru frekar fáar, íslensku úti­vista­grein­arnar, sem ekki fylgja reglu­lega kaldar tásur?”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ