Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Stórsöngvarinn glímir við kvíða: Geir vill gefa 500 þúsund kallinn

Stórsöngvarinn glímir við kvíða: Geir vill gefa 500 þúsund kallinn
Geir Ólafsson.

Geir Ólafsson söngv­ari hefur marga fjör­una sopið í líf­inu. Á sól­ríkum sum­ar­degi í lok júní er hann ósáttur við þá stöðu sem eig­in­kona hans, Adriana Patricia Sanchez Krieger, er í en hún hefur sótt um fjölda starfa hér á landi en hvergi fengið og mun á næst­unni flytja ásamt dóttur þeirra hjóna, Önnu Rós sem er fimm ára, til heima­lands síns Kólumbíu þar sem hún hefur fengið gott starf hjá VISA. Adriana hefur mikla reynslu í við­skipta­líf­inu erlendis og hefur meðal ann­ars unnið fyrir Sant­ander-bank­ann á Spáni.

Sumir svöruðu ekki

„Draumur okkar var alltaf að hún fengi vinnu við sitt hæfi hér á Íslandi en því miður þá tókst það ekki og þá fór hún að leita fyrir sér erlendis og sá VISA, stærsta fjár­mála­fyr­ir­tæki í heim­inum, hag sinn í að ráða hana í vinnu. Og þá vakna ýmsar spurn­ingar hjá manni. Snýst þetta ekki um hér á landi að vera með eins mikið af hæfu fólki og mögu­legt er til þess að sjá um fjár­málin í fjár­mála­heim­inum hér heima? Það var mis­jafn­lega tekið á móti henni í atvinnu­við­tölum hér á landi. Ég hef heyrt ýmis­legt en ég varð vitni að því þegar hún var að koma heim og segja mér hvernig hlut­irnir væru. Þetta er ekki Íslend­ingum sér­stak­lega til fram­dráttar. Á einum staðnum var henni sagt að fólk frá heima­landi hennar kæmi yfir­leitt til Íslands til þess að skúra. Þetta er okkur til mik­illar skammar. Adriana hefur það mikla reynslu, þekk­ingu og breitt bak að hún var eig­in­lega mest hissa á þessu. Er landið okkar fyrir ákveðna hópa eða fyrir okkur öll? Sum fyr­ir­tæki svör­uðu ekki þegar hún sótti um og sums staðar var henni tjáð að hún gæti ekki sótt um af því að hún talar ekki íslensku. Konan mín talar reiprenn­andi spænsku, portú­gölsku og ensku. Og ef fyr­ir­tæki eru að mark­aðs­setja erlendis þá er ekki töluð íslenska þó ég hvetji alla sem koma hingað til að búa til að læra íslensku.“

Kvíðinn

Mæðgurnar munu flytja til Kólumbíu á næst­unni en Geir mun búa áfram á Íslandi en frá upp­hafi sam­bands þeirra hjóna þá hafa þau oft verið í fjar­búð þar sem Adriana hefur starfað erlendis.

Geir segir að kvíð­inn sem hann berst við sé ein af ástæð­unum fyrir því að hann muni búa áfram á Íslandi en hann er í með­ferð við honum. Hann var far­inn að fá kvíða­köst þegar hann var barn og segir að hann hafi verið lagður í ein­elti í æsku út af þeim.

„Þegar barn fær kvíða­kast þá veit það í raun og veru ekki hvað er í gangi. Ég fékk ekki hjálp vegna kvíða­kast­anna þegar ég var barn. Ég var kannski öðru­vísi og krakkar fundu það. Einelti er auð­vitað ömur­legt tæki. Og ég hef miklar áhyggjur af því þegar full­orðið fólk leggur í ein­elti og er með yfir­gang. Það er bara sorg­legt. Ég trúi því að maður eigi að reyna að ná því besta fram í fólki og það gerir maður nátt­úr­lega með því að koma eins vel fram og maður mögu­lega getur hverju sinni. Ég set til dæmis aldrei neitt nei­kvætt um aðra á Facebook og ég tala aldrei opin­bera­lega illa um neinn. Það er ekki í mínu fari. Ég lærði það þegar ég var lít­ill strákur að bera virð­ingu fyrir öðrum. Ég vil ekki sjá ein­elti. Hvar sem ég verð var við slíkt þá reyni ég að hafa áhrif þannig að það hætti. Einelti er í eðli sínu mjög óheil­brigt ástand sem á ekki að eiga sér stað.“

Kvíðaköstin eru oft slæm

„Ég treysti mér stundum ekki út vegna kvíða eða að keyra. Þetta er svo­lítið flókið. Ég er samt ekk­ert hræddur við að hitta fólk og gera ein­hverja hluti. Það er bara þessi van­líðan sem ég ræð ekki við. Þetta hefur víð­tæk áhrif. Ég er ekki fem­inn við að tala um kvíð­ann vegna þess að það hjálpar kannski ein­hverjum sem eiga börn sem eru haldin ein­hvers konar kvíða. Það þarf að vinna strax með kvíða og tala um hann. Það var ekki gert þegar ég var strákur. Þetta fékk bara að grass­era í mér sem barn og ung­lingur þannig að ég byrj­aði frekar seint að vinna í þessu. Ég er samt miklu betri en ég hef verið. Þetta er þó stundum þannig að mér finnst eins ég ég sá að missa stjórn á hugs­unum. Manni finnst allt vera skrýtið og allt í kringum mig ein­hvern veg­inn óraun­veru­legt. Svo kemur rosa­leg hræðsla eða ótti sem ég get ekki útskýrt. Þetta er svo skrýtið. Ég geri allt sem ég get til að koma í veg fyrir að þetta verði verra þannig að ég reyni að passa mig á því hvað ég borða og ég drekk ekki. Þá reyni ég að hreyfa mig og lifa heilsu­sam­legu lífi.“

Hætti að drekka

Geir drakk áður miklu meira en góðu hófi gegndi.

„Já, það eru svo mörg ár síðan. Ég er búinn að vera án áfengis í um 21 ár. Það var fínt að geta sagt skilið við áfengið.“

Hvað með lær­dóm­inn af þessu öllu?

„Ég vona að þetta hafi gert mig að betri manni. Ég hef reynt að ein­falda líf mitt þannig að ég sé ekki upp á kant við fólk, sé ekki að standa í rifr­ildi eða gera eitt­hvað sem getur trig­gerað að manni líði verr. Ég er hepp­inn að mér hefur tek­ist það þokka­lega.“

…gert mig að betri manni. Það hefur vakið athygli að Geir vill taka 500.000 krónur, hálfa milljón, fyrir að lesa inn kveðju hjá fyr­ir­tæk­inu Boomerang þar sem fólk getur fengið senda kveðjur frá þekktu fólki. Og hann vill ekki sjá þær krónur í eigin vasa.

Geir Ólafsson ásamt eig­in­konu og dóttur.

„Það hafa margir beðið mig í gengum tíð­ina um að senda svona kveðjur og ég hef aldrei tekið krónu fyrir það. Það tekur í raun og veru enga stund að senda kveðju. Svo þegar ég var beð­inn um að vera með í þessu Boomerang sem sér­hæfir sig í þessu þar sem lista­menn fá greitt fyrir kveðj­urnar þá ákvað ég að taka 500.000 krónur fyrir kveðj­una og ég ætla að láta hverja krónu renna til ein­hvers góðs mál­efnis tengdu börnum. Þetta er kjörið fyrir fyr­ir­tæki og stóra hópa.“

Hvers vegna börn?

„Þegar ég eign­að­ist dóttur mína þá fór ég að lesa meira um börn og skoða hvað væri að ger­ast í heim­inum hvað varðar börn og það er sorg­legt hvernig sums staðar er komið fram við börn sem búa sum við erf­iðar aðstæður. Mig lang­aði til að nota tæki­færið og reyna þá að styrkja félög eða ein­hverja sem eru að vinna í því af alúð að greiða leið barna og hjálpa þeim til betra lífs.“

Söngv­ar­inn, sem er að fara að gefa út nýja plötu með eigin lögum, segir að það að verða faðir hafi breytt öllu.

„Allt í einu var ég ekki að hugsa um sjálfan mig; allt í einu fór ég að hugsa um eitt­hvað miklu mik­il­væg­ara og merki­legra en mig sjálfan. Ég vona að þetta hafi breytt mér til hins betra. Og ég held ég hafi orðið við­kvæm­ari fyrir vikið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ