Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Súkkulaðisvindlarinn Karl laug um bílslys og andlát: „Maðurinn átti samúð allra“

Súkkulaðisvindlarinn Karl laug um bílslys og andlát: „Maðurinn átti samúð allra“

Alda­mótin 1999 til 2000 voru full hörm­unga í lífi Karls Olgeirs­sonar, starfs­manns Nóa-Siríus. Þessi dugn­að­ar­forkur og hvers mann hug­ljúfi, brotn­aði saman við fram­leiðslu á Malta súkkulaði­kexi, og grét eins og barn.

Með því hófst svika­saga manns­ins sem síðar var nefndur Súkkulað­is­vindl­ar­inn á síðum fjöl­miðla.

Bílslys og andlát

Aðspurður sagði Karl sam­starfs­mönnum frá að dóttir hans hefði lent í alvar­legu bílslysi í Svíþjóð og væri háls- og hrygg­brotin og auk þess að vera með ónýt nýru. Hún ku hafa verið á bana­beði og óljóst hvernig færi.

Sam­starfs­menn Karls voru eðli­lega slegnir yfir þessum tíð­indum og ekki bætti úr þegar móðir Karls lést skyndi­lega aðeins viku eftir slysið hrylli­lega. Bylgja sam­úðar reis upp meðal vinnu­fé­lag­ana sem fundu mikið til með sam­starfs­manni sínum sem hafði þurft að þola svo mikla sorg. Ekki bætti úr skák þegar Karl gat stunið upp, á milli ekk­anna, að nú væri gott að hafa eig­in­konu sína sér við hlið. Hún hefði aftur á móti lát­ist úr krabba­meini, aðeins átta mán­uði inn í hjóna­bandið.

Ekki átti af hörm­ungum Karl að ganga, því tveimur dögum eftir and­lát móð­ur­innar lést fyrr­nefnd dóttir á skurð­ar­borð­inu í Svíþjóð.

Peningarnir rúlla inn

Sam­starfs­menn Karls sáu að við svo búið mátti ekki standa og meira þyrfti til en faðm­lög og tis­sjú til að bæta líðan hans. Örn Ottesen, fjár­mála­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, greip til heft­is­ins og skrif­aði í snari upp á ávísun að upp­hæð 200 þús­und krónum og létu starfs­menn sitt ekki eftir liggja. Þeir hófu þegar söfnun þar sem bæði starfs­fólk og for­eldrar þeirra létu fé að hendi renna. Lagt var upp með að ná 500 þús­und krónum svo Karl gæti nú farið til Sví­þjóðar auk þess sem fyrir lá jarð­ar­far­ar­kostn­aður.

Mörg hund­ruð þús­undum var safnað en heim­ildir rokka nokkuð um hversu há upp­hæðin var sem á end­anum safn­að­ist.

Jarðarförin sem aldrei var

Eftir nokkurn tíma fóru tvær grímur að renna á sam­starfs­fólkið. Sér í lagi þegar kom að jarð­ar­för móð­ur­innar sál­ugu sem virt­ist hafa fengið ein­hvers konar flýti­með­ferð í Foss­vogs­kirkju­garði, svo hratt gengu hlut­irnir fyrir sig að sögn Karls. Örn bað verk­smiðju­stjór­ann að kanna málið betur og hringdi hinn síð­ar­nefndi í Foss­vog­skapellu til að spyrj­ast nánar fyrir um útför­ina. Þar kann­að­ist eng­inn við umrædda konu né að nokkur jarð­ar­för í hennar nafni hefði, eða stæði til, að færi fram.

Í jan­úar 2000 komst upp um lyga­sögur Karls og lagði fyr­ir­tækið umsvifa­laust fram kæru á hendur honum til lög­reglu. Vart þarf að taka fram að Karl missti vinn­una.

Erni fjár­mála­stjóra var ekki skemmt og sagði það háal­var­legt mál þegar fólk léki sér með til­finn­ingar ann­ara á þennan hátt. „Maðurinn átti samúð allra hér enda var ég á því að hann ætti að fá verð­laun fyrir leik­list, því­lík var frammi­staða hans,” sagði Ómar í við­tali við DV á sínum tíma.

Missti það sem kærast var

En hann missti ekki bara vinn­una, hann missti líka harm­ónik­una sína. Í við­tali við DV, sem fluttir ítar­legar fréttir af mál­inu, sagði hann frétta­flutn­ing blaðs­ins hafa orðið til þess að hann missti það sem honum var kær­ast. Harm­oník­una sína. „Nágranni minn keypti harm­oník­una fyrir mig og greiddi fyrir með rað­greiðslum á krít­ar­korti sínu og ég borg­aði honum síðan mán­að­ar­lega afborgun. Eftir að hann las um mig í DV þá kom hann rak­leiðis hingað upp og tók harm­oník­una. Þó var ég búinn að greiða allar afborg­an­irnar nema fyrir des­em­ber en þá átti ég ekki pen­ing,” sagði Karl síðar í við­tali við DV.

Karl sagði við DV nokkru síðar ekki fara út fyrir dyr því hann skamm­að­ist sín svo mikið. „Ég verð að leita mér hjálpar. Þetta er eitt­hvað sjúk­legt sem ég ræð ekki við. Mig vant­aði pen­inga og því spann ég sög­una upp,“ sagði súkkulað­is­vindl­ar­inn.

Karl sá mikið eftir gjörðum sínum og við­ur­kenndi brot sín hiks­ta­laust. Hann sagð­ist glíma við lygafíkn og hygð­ist leita sér hjálpar við henni.

Karl var einn af örfáum svika­hröppum, sem upp hefur kom­ist um, sem við­ur­kenndi brot sín. Það er eitt­hvað sem sjaldan sést og verður ekki af honum tekið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ