Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sonja lifði af þrjá lífshættulega sjúkdóma: „Allir héldu að ég væri að deyja“

Sonja lifði af þrjá lífshættulega sjúkdóma: „Allir héldu að ég væri að deyja“
Sonja var við dauð­ans dyr.

„Ég skráði mig í þessa keppni síð­ast­liðið haust, en svo gerð­ist það óhugs­an­leg­asta í des­em­ber; ég var lögð inn á bráðamóttöku í lok mán­að­ar­ins og í kjölfarið inn á gjörgæslu­deild, þar sem mér var ekki hugað líf,“ segir hinn hálf­þrí­tugi lög­fræð­ingur og kepp­andi í þrí­þraut, Sonja  Sím­on­ar­dóttir og bætir við:

„Allir héldu að ég væri að deyja.“

Við dauð­ans dyr í jan­úar – Keppti í hálfum járn­karl í júní –  Lifði af þrjá lífs­hættu­lega sjúk­dóma

Sonja fékk slæma þvag­færa­sýk­ingu í des­em­ber sem leiddi til sýkla­sótt­ar­losts og: „Ég hafði aldrei fengið þvag­fara­sýk­ingu og fann engin ein­kenni; sýk­ingin mall­aði í mér og skil­aði sér síðan út í nýrun; þaðan út í blóðið.“ Það var svo í lok des­em­ber í fyrra sem Sonja fer að finna fyrir miklum bak­verkjum:

„Ég vissi ekki að nýrun væru stað­sett svona neð­ar­lega í bak­inu; hélt að þetta væri æfing­ar­á­lag og hélt áfram að æfa.“

Stóð ekki í lappirnar

Sonja segir að „sárs­auk­inn versnar og versnar þar til ég fæ mik­inn hita, upp­köst og gat ekki staðið í lapp­irnar vegna sárs­auka.“

Þá var hringt á sjúkra­bíl og Sonja strax lögð inn á gjör­gæslu.

Þess ber að geta að keppni í þrí­þraut – hálfum járn­karli – er ekki fyrir neina aukvisa; þeir þurfa að synda tvo kíló­metra, hjóla níu­tíu kíló­metra og hlaupa hálft mara­þon, sem er rétt rúmir tutt­ugu og einn kíló­metri.

En aftur að veik­indum Sonju.

Þegar nið­ur­stöður lágu fyrir varð­andi heift­ar­leg veik­indi hennar kom í ljós „að ég hafði fengið sýklasóttar­lost – Sepsis – brátt andnauð­ar­heil­kenni -ARDS – og ekki nóg með það, heldur líka fjöllíffæra­kerf­is­bilun.“

Það næsta sem beið Sonju var önd­un­ar­vél en „ég lá í önd­un­ar­vél á gjör­gæslu­deild í níu sól­ar­hringa og dvaldi á spít­ala í tvær vikur.“

Hálfur járnkarl

Þrátt fyrir hræði­legar bata­horfur sýndi Sonja að hún er miklu meira en hálfur járn­karl; hún lifði af þrjá lífs­hættu­lega sjúk­dóma:

„Eitt það fyrsta sem fólk sagði við mig þegar ég kom úr öndun­arvélinni var að ég mætti ekki taka þátt í neinum keppnum þetta árið; yrði að gleyma þessum járnkarli sem fór fram í síð­asta mán­uði.“

Sonja sagð­ist skilja vel áhyggjur fólks af heilsu hennar.

„Ég skildi þetta og fann að ég þurfti tíma til að byggja upp líkamann á nýjan leik eftir þessi hræði­legu veik­indi.“

Sonja segir að það hafi nán­ast verið búið að afskrifa hana, veik­indin voru svo hræði­leg og hættu­leg:

„Eins og segir í útskrift­ar­bréf­inu mínu þá fékk ég þrjá lífs­hættu­lega sjúk­dóma en með stífri gjör­gæslu­með­ferð þá bless­un­ar­lega lifði ég þetta af.“

Tók tíma að safna kjarki

Hún segir að eftir að hún losn­aði úr önd­un­ar­vél­inni hafi hún fyrst um sinn þurft hjálp við allar dag­legar athafnir:

„Það var mikið sjokk og ég fór í mikla afneitun, en á sama tíma átt­aði ég mig á því að þetta var mikið sjokk fyrir lík­amann. Mig hefði aldrei grunað að þetta gæti komið fyrir mig, því ég lifi heil­brigðu lífi og hreyfi mig mikið.“

Eftir dvöl­ina í önd­un­ar­vél­inni tók við tími end­ur­hæf­ingar þar sem byrj­unin var fólgin í göngut­úrum og henni var tjáð af læknum að það tæki lík­amann eitt ár að ná aftur sex­tíu pró­sentum af venju­legri orku; draum­ur­inn um þrí­þraut­ar­keppni væri dáinn.

„Ég var alveg búin að afskrifa þessa keppni.“

Sonja segir að „það hafi tekið tíma að safna kjarki á ný eftir veik­indin; fór hægt af stað, en í apríl segi ég þjálf­ar­anum mínum að ég ætli ekki að keppa. Hún segir mér að hugsa málið og segir að ég sé á góðu róli. Þá fyllt­ist ég svaka­legum eld­móð.“

Sonja tók „ákvörðun um að keppa þrátt fyrir veik­indin,“ og það kom fjöl­skyldu hennar ekki á óvart enda Sonja þekkt fyrir mikið keppn­is­skap; segir keppn­ina í júní hafa hjálpað henni að treysta lík­am­anum á ný eftir veik­indin, aðeins nokkrum mán­uðum eftir að hún lá við dauð­ans dyr.

Og segir að lokum að það að „ná síðan að klára svona áskorun og að lík­am­inn skili sér í gegn er ótrú­lega dýr­mætt. Þannig að ég og lík­am­inn erum orðnir vinir vera vinir á nýjan leik.“

Heimild: visir.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ