Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hryllilega vont en þess virði

Hryllilega vont en þess virði
Mynd / Unsplash.com

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Margir hafa heyrt alls kyns hryll­ings­sögur af fegr­un­ar­að­gerðum sem hafa mis­tek­ist og í mörgum til­fellum eru þær sjálf­sagt sannar. Hins vegar heppn­ast meiri­hluti slíkra aðgerða vel og sjúk­ling­arnir eru ánægðir með árang­ur­inn. Ég er ein af þeim.

Ég fór í fitu­sog fyrir um fimm árum og sé ekki eftir því þótt ég hafi kvalist mikið dag­ana eftir aðgerð­ina. Ég var mjög grönn sem barn og ung­lingur og hefði vel sómt mér sem fyr­ir­sæta á ein­hverri for­síðu glans­tíma­rit­anna. Tuttugu og eins árs varð ég ófrísk og þyngd­ist mikið á með­göng­unni. Ég var afar óánægð með þyngd­ar­aukn­ing­una þar sem ég hafði aldrei verið í vand­ræðum með aukakílóin áður og vissi ekki hvernig ég átti að ná þeim af mér. Ljós­móð­irin var­aði mig við að reyna að megra mig en sagði mér að huga vel að matar­æð­inu. Ég reyndi það en var stöðugt svöng og sótti gríð­ar­lega í feitan mat og sæt­indi. Stundum varð löng­unin mér ofviða og ég tók bók­staf­lega átköst. Raðaði í mig frönskum kart­öflum, súkkulaði, ís og öðru góð­gæti.

Ég von­að­ist til að þegar barnið fædd­ist myndi eitt­hvað tölu­vert renna af mér. Vinkona mín hafði fitnað mikið á með­göngu en kílóin fuku af henni um leið og barnið kom í heim­inn. Mikið af þyngd­inni hafði verið bjúgur og hún var fljót að kom­ast í gott form, enda íþrótta­kona og dug­leg að hreyfa sig. Síðustu sex vik­urnar stóð ég í stað. Í hvert sinn sem ég fór í skoðun og sá að talan á vigt­inni var óbreytt fagn­aði ég. En svo fædd­ist barnið. Þar fóru fjögur kíló og búið. Allt hitt sat fast. Tuttugu og sex kíló sem hreyfð­ust ekki neitt.

Brjóstagjöfin var ekki grennandi

Ég beið og von­aði að ég myndi ná mínu fyrra formi meðan barnið var á brjósti. Mamma hafði sagt mér að þegar hún átti mig, grennt­ist hún gríð­ar­lega meðan á brjósta­gjöf stóð og hún hafði alltaf sagt að ég hefði bók­staf­lega étið sig upp. Fyrstu þrjá mán­uð­ina gerð­ist ekk­ert. Ég fór út með stelpuna mína í vagni og gekk og gekk um hverfið í klukku­tíma á hverjum degi. Svo varð hún sex mán­aða og ég ákvað að hafa hana lengur á brjósti. Hugs­an­lega myndi það ein­hverju breyta og ég byrja að grenn­ast eins og þessar heppnu konur sem tálg­uð­ust niður meðan börnin þeirra drukku. Ekkert gerð­ist.

Stelpan mín vandi sig sjálf af brjóst­inu þegar hún var tíu mán­aða. Þá tók hún snuð og það var eins og hún þyrfti ekki á mér að halda eftir það. Ég held reyndar að ég hafi ekki mjólkað mikið þegar þetta var, vegna þess að ég fann aldrei fyrir neinu þegar mjólk­ur­fram­leiðslan var að hætta. Líklega hefur mjólkin þurrkast upp af sjálfu sér og stelp­unni ekki fund­ist nein ástæða til að sjúga þegar hún fékk ekki neitt. Þá fór ég í stífan duft­megr­un­ar­kúr. Keypti mér Her­balife og skipti út nær­ing­ar­drykkjum fyrir tvær mál­tíðir á dag. Ég létt­ist um sex kíló og síðan ekki sög­una meir.

Við tóku við­töl hjá nær­ing­ar­fræð­ingi og skyn­sam­leg megrun með réttu matar­æði og hreyf­ingu undir leið­sögn sér­fræð­inga en kílóin fóru hægt. Á átta mán­uðum fóru átta kíló. Ég reyndi að klæða þessi tólf kíló af mér en það gekk ekki alltaf vel. Ég var svo sem ekk­ert voða­lega feit en ég var með stóran maga og þykk læri sem mér tókst ekki að losa mig við. Um það bil tveimur og hálfu ári eftir að ég eign­að­ist dóttur mína hitti ég gamla vin­konu mína sem var nýflutt til lands­ins eftir nám í útlöndum. Ég gleymi aldrei því sem hún sagði við mig þegar hún sá mig: ,,Nei, en hvað þú ert mynd­ar­leg, bara komin í aðra umferð!“ sagði hún og hélt að ég væri orðin ófrísk aftur. Ég þarf varla að orð­lengja það að þessir end­ur­fundir okkar urðu ákaf­lega vand­ræða­legir þegar ég sagði aum­ingja kon­unni að ég væri alls ekki ófrísk. Það mátti ekki á milli sjá hvor okkar var aum­ingja­legri.

„Það má eig­in­lega segja að þessi fundur hafi verið kornið sem fyllti mæl­inn. Ég var miður mín á leið­inni heim og henti mér hágrát­andi upp í rúm strax og ég kom inn. Maðurinn minn reyndi að róa mig því honum fannst þessi hug­mynd mín um að fara í fitu­sog algjör vit­leysa og pen­inga­eyðsla.“

Gríðarlegar kvalir

Það má eig­in­lega segja að þessi fundur hafi verið kornið sem fyllti mæl­inn. Ég var miður mín á leið­inni heim og henti mér hágrát­andi upp í rúm strax og ég kom inn. Maðurinn minn reyndi að róa mig því honum fannst þessi hug­mynd mín um að fara í fitu­sog algjör vit­leysa og pen­inga­eyðsla. Ég var hins vegar ákveðin í að gera þetta því þessi auka­þyngd var farin að hafa veru­leg áhrif á sál­ar­líf mitt, miklu meiri en nokkurn gat órað fyrir.

Ég pant­aði því tíma hjá lýta­lækni og fór í við­tal til hans. Hann tók mér opnum örmum og mér fannst gott að finna að ég þurfti ekki að afsaka þessa ákvörðun mína fyrir honum. Þetta var ekki bara hégómi og tildur í mér heldur rétt­mæt ákvörðun sem bæri að virða. Ég var því enn ákveðn­ari í því að láta verða af aðgerð­inni og við komum okkur saman um að taka af mag­anum á mér og örlítið af inn­an­verðum lær­unum. Ég var að flestu leyti afar ánægð með þá þjón­ustu sem ég fékk hjá lýta­lækn­inum, allt frá fyrsta við­tali þar til aðgerð­inni var lokið, nema að því leyti að mér fannst hann ekki vara mig nægi­lega vel við þeim ofboðs­legu kvölum sem ég upp­lifði þegar ég vakn­aði eftir svæf­ing­una.

Ég var mjög marin og bólgin þegar ég vakn­aði eins og ég hafði búist við en kval­irnar voru líka alveg ótrú­lega miklar. Til sam­an­burðar get ég sagt að mér fannst fæð­ing dóttur minnar tæpum þremur árum áður, sem þó var nokkuð strembin, afar létt­væg í sam­an­burði við þessa reynslu.

Ég gat þó farið heim af sjúkra­hús­inu sama dag, upp­dópuð af verkja­lyfjum. Ég var afar veik fyrstu dag­ana og mjög við­kvæm and­lega því ég ótt­að­ist að aðgerðin hefði öll verið til einskis því ég sá engan mun á mér. Ég mátti bara ekki til þess hugsa að hafa eytt öllum þessum pen­ingum og gengið í gegnum þessar raunir ef árang­ur­inn yrði eng­inn. Ég gerði mér kannski bara ekki grein fyrir því þarna fyrst að ég var enn þá bólgin og með bjúg og því ekki raun­hæft að ætla að árang­ur­inn sæist.

„Ég var mjög marin og bólgin þegar ég vakn­aði eins og ég hafði búist við en kval­irnar voru líka alveg ótrú­lega miklar. Til sam­an­burðar get ég sagt að mér fannst fæð­ing dóttur minnar tæpum þremur árum áður, sem þó var nokkuð strembin, afar létt­væg í sam­an­burði við þessa reynslu.“

Árangur kemur í ljós

Sem betur fer breytt­ist það smátt og smátt og um tveimur mán­uðum síðar var ég laus við bjúg­inn og afar ánægð með árang­ur­inn. Ég held nú að mað­ur­inn minn hafi innst inni verið ánægður líka þótt hann elskaði mig og væri alveg sama hvernig ég var í lag­inu. En ég gerði þetta heldur ekki fyrir hann heldur fyrir sjálfa mig og engan annan. Nú eru liðin tæp fimm ár síðan ég fór í aðgerð­ina. Ég hef  haldið sama formi og reyndar hef ég örlítið grennst en það hefur kostað aðhald. Það er nefni­lega mis­skiln­ingur að fitu­sog leysi öll vanda­mál. Maður getur ekki bara lagst í sukk og svínarí á eftir og ætl­ast til þess að halda lín­unum. Þess vegna hef ég stundað leik­fimi reglu­lega, sem ég hafði nú reyndar gert í langan tíma áður en ég fór í aðgerð­ina. Ég er þó ekki frá því að mér hafi reynst auð­veld­ara að byrja í leik­fim­inni eftir aðgerð­ina heldur en fyrir hana því sál­ar­tetrið var í betra formi og því átti ég auð­veld­ara með að drífa mig út í lík­ams­rækt­ar­stöð.

Mér finnst leið­in­legt hvað sumt fólk hefur mikla for­dóma gagn­vart svona aðgerðum. Ég hef aldrei leynt því að ég hafi kosið að fara þessa leið og þegar ég tala um það hnussa sumir og hneyksl­ast á hversu hégóm­leg ég sé. Mér hefur líka verið sagt að þetta sé leti og ég hafi ákveðið að fara auð­veldu leið­ina, ekki nennt að hreyfa mig nóg og ná þessu af mér sjálf. Það er líka til fólk sem hefur sagt við mig hreint út að pen­ing­unum hefði verið betur varið í eitt­hvað annað, að ég hefði átt að gefa þá til góð­gerð­ar­mála og svo fram­vegis. En mér finnst samt að ef fólk er það óánægt með útlit sitt að það hefur veru­leg áhrif á and­lega líðan þess eigi það að gera eitt­hvað í því. Í mínu til­felli var fitu­sogið lausnin og ég sé ekki eftir því þrátt fyrir að kval­irnar eftir aðgerð­ina hafi verið miklar. Sárs­auk­inn var þess virði og ég veit að það undir mér komið að halda þessu við og koma í veg fyrir að kílóin safn­ist á mig aftur.

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni. Í hverri viku birt­ast spenn­andi lífs­reynslu­sögur. Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða í áskrift.

Fylgstu með Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Facebook. Lífs­reynslu­sögur er hlað­varp þar sem blaða­konan Guðrún Óla Jóns­dóttir les áhuga­verðar lífs­reynslu­sögur úr Vikunni. Í hverjum þætti eru fimm sögur lesnar. Þætt­irnir koma inn á Spotify og Storytel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina